Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Page 22
22
LAUGARDAGUR'8. DESEMBER 1990.
„Kemstekkií
skóna hans Gísla"
„Menn hafa mikið talað um það
hvort mér þaetti ekki óþægilegt að
vera að fara í sporin hans Gísla
Halldórssonar. Ég hef snuið þessu
upp í grín og sagt að ég noti núm-
eri stærra svo'ég komist ekki í
skóna hans hvort sem er,“ sagði
Árni Pétur Guðjónsson leikari í
samtali viö DV.
Árni leikur eitt af aðalhlutverk-
unum í Fló á skinm eftir Feydeau
sem Borgarleikhúsið sýnir um
þessar mundir við gífurlega að-
sókn. Þegar hafa verið sýndar 40
sýningar og ekkert lát á vinsældun-
um. Hlutverk Árna er nokkuð sér-
stætt því hann leikur tvo menn í
leikritinu. Annar er tvífari hms og
það veldur þeim misskilningi sem
þessi sívinsæli farsi byggir á. Þetta
krefst þess hins vegar af Árna að
hann skipti um ham á augabragði.
Margir hafa velt því fyrir sér
hvernig það sé tæknilega fram-
kvæmanlegt fyrir leikara að ganga
út í gervi einnar persónu og koma
nær jafnharðan inn aftur í öörum
búningi og nýju gervi sem önnur
persóna. Þetta gerir Árni í Flónni
svo hratt aö kliður fer um salinn
þegar hann birtist. Margir hafa
klórað sér í kollinum yfir öllu sam-
an en hvernig er farið aö þessu.
Árni?
„Það á náttúrlega að vera leynd-
armál," segir Árni og hlær
hrekkjalómslega. „Hitt er augljóst
að ég geri þetta ekki einn. Þegar
ég kem út af sviðinu þá standa
reiðubúnir aöstoðarmenn sem
hjálpa mér að stökkva úr einum
búningi í annan. Þeir þurfa líka að
hjálpa mér að ná áttum því þegar
ég kem út veit ég ekkert hvert ég
er að fara eða hvað er að ske."
Þannig standa menn í röð, einn
með skó, annar með frakka og svo
framvegis. Árni er nánast klæddur
í á ofsahraða, honum snúið við,
hvíslað að honum stikkorðum og
honum ýtt inn á sviðið aftur. Hrað-
inn er gífurlegur.
„Höfundurinn leggur þetta ná-
kvæmlega upp," segir Árni. „Síð-
ustu skiptin eru hröðust og þá er
einn mótleikara minna, Þór Tuli-
níus, meö stutta rullu á meöan.
Þetta eru svona fjórar línur og það
er tíminn sem ég hef. Ef ég er tilbú-
inn fy rr þá tek ég af honum nokkur
orð en ef ég er seinn þá verður
hann að halda áfram og bæta við.
Maður veit aldrei hvernig þetta fer
í hvert sinn."
Má ekki endur-
taka „sukksess,"
Ein af goðsögnunum sem ganga
í leikhúsinu er að aldrei megi reyna
aö endurtaka verulega vel heppn-
aða sýningu því slíkt sé dæmt til
að mistakast. Leikfélag Reykjavík-
ur sýndi Fló á skinni síðast fyrir
18 árum við gífurlegar vinsældir.
Þá var Gísli Halldórsson í tvískipta
hlutverkinu sem Árni fer meö í
þessari sýningu. Sú uppfærsla
gekk í um 2 leikár samfleytt fyrir
fullu húsi. Hvernig fannst Árna að
feta í fótspor Gísla?
„Ég sá ekki fyrri sýninguna svo
það þvældist ekki beinlínis fyrir
mér. Ég tek það ekki mjög alvar-
lega þó fólk hafi ekki spáð vel fyrir
þessu. Við erum búin að sýnafram
á að þessi goðsögn er röng. Mér
finnst líka að áhorfendahópur leik-
- segir Árni Pétur Guðjónsson
Árni Pétur i hlutverki Chandebise í Fló á skinni
Gisli Halldórsson i 17 ára gamalli uppfærslu
Leikfélags Reykjavikur á Fló á skinni ásamt
Helga Skúlasyni.
í hlutverki Poche í sama leikriti.
bil. Síðan hann hóf störf hér heima
fyrir þremur árum hefur hann
leikið mörg dramatísk hlutverk þó
engin sýninganna hafi náð mikilli
hylli. Þannig voru fimm leiksýn-
ingar nefndar til menningarverð-
launa DV á síðasta ári og lék Árni
stór hlutverk í þremur þeirra. Þetta
er í fyrsta sinn sem hann er í stóru
hlutverki á íslandi í sýningu sem
fær mikla aðsókn. Hvernig er þaö
Árni, ertu ekki orðinn frægur?
„Ég held ekki. Ég er svo venjuleg-
ur náungi að það þekkir mig eng-
inn sem sér mig utan leikhússins.
Ég varð miklu frægari fyrir örlítið
hlutverk í kvikmyndinni Magnús
hér um árið. Ég held að það veröi.
engir leikarar á íslandi frægir
nema þeir sem leika í kvikmyndum
og auglýsingum.
Mér finnst óskaplega gaman að
koma fólki til þess að hlæja og þess-
vepa er ég mjög ánægður í
Flónni," segir Árni að lokum.
-Pá
hússins sé að breytast. Það er
miklu meira af ungu fólki að koma
inn og það er mjög ánægjulegt.
Hvað varðar samanburðinn við
Gísla Halldórsson þá held ég aö þó
áhorfendur muni eftir honum þá
muni þeir ekki eftir leikritinu og
hafa því jafngaman af.“
- En er meistarinn búinn aö koma
qg sjá lærisveininn. Hefur Gísli séð
Árna í hlutverkinu?
„Ekki svo ég viti," segir Árni og
glottir. „Ég hef hins vegar heyrt að
hann hafi verið mjög ánægður með
val á leikurum í sýninguna."
Ég ersvovenju-
legur að það
þekkir mig enginn
Árni Pétur Guðjónsson hefur
starfað mjög lengi að leiklist, bæði
hér heima og ekki síst úti í Dan-
mörku þar sem hann bjó um ára-
Arni segist vera óskaplega venjulegur.
DV-mynd S