Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Blaðsíða 34
46 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990. Sviðsljós Gina Marie Tolleson um keppnina „Ungfrú heimur": „Er ekki bara keppni um snotur snjáldur" ,Ég er ekki fallegasta kona i heimi,“ segir ungfrú heimur. Kærastinn trúði því ekki að hún hefði unnið keppnina. „Ég hef verið á forsíðum blaða og tímarita úti um allan heim, þetta er líkast draurni," sagði ungfrú heimur, Gina Marie Tolleson, þegar hún kom aftur heim til Bandaríkjanna eftir sigurinn. „Það var ólýsanlega undarleg til- finning þegar ég sat á sviðinu með kórónunaá höfðinu. Blossar mynda- vélanna blinduðu mig, ég heyrði kynninn segja Gina þetta, Gina hitt, ungfrú heimur..., ég náði engu samhengi í hvað verið var að segja. Þegar ég gekk niður af sviðinu starði ég á mynd mína í speglinum með kórónu ungfrú heims á höfðinu og spurði sjálfa mig: Er þetta í raun og veru ég sjálf? Þetta var eins og í draumi.“ Gina hefur stundað nám við blaða- mannaskóla í Atlanta i Georgíufylki og á tvö ár eftir í útskrift. Hún ætlar þó að taka sér frí í ár til að geta sinnt hlutverki sínu sem ungfrú heimur. Hún kemur til með að hafa a.m.k. 4 milljónir í tekjur á þessu ári og gerir ráð fyrir að nota peningana í mennt- un sína. Gina á annasamt ár framundan. Hún mun þurfa að koma fram sem ungfrú heimur um allan heim en það þýðir að hún verður lítið samvistum við kærastann sinn. Þau hafa veriö saman í mörg ár en hún neitar að gefa upp hver hann er. „Hann trúði því ekki að ég hefði unnið keppnina, hann fór alveg kkerfi," segir Gina og hlær. Gina er 21 árs, eldri en flestar stúlk- urnar sem tóku þátt í keppninni. „Mér finnst ég ekki vera fallegasta kona í heimi. Persónuleikinn skiptir afar miklu máli og dómararnir tóku mið af honum líka. Tökum ungfrú Ástralíu sem dæmi, hún komst ekki í úrslit þótt hún sé ein fallegasta kona sem ég hef séð. Sumar stúlkn- anna tala fjögur til fimm tungumál, þessi keppni er greinilega ekki bara keppni um snotur snjáldur,-' segir ungfrú heimur, Gina Marie Tolleson. I skammdeginu, þegar myrkrið er sem svartast, er mikilvægt að gang- andi vegfarendur beri endurskinsmerki eða borða. Þetta vita krakkarnir í Varmárskóla í Mosfellsbæ því að i mörg ár hefur formaður Slysavarna- deildar Lágafellssóknar, Ragnar Björnsson, heimsótt þau i skólann og afhent þeim endurskinsmerki. Einnig fer hann mánaðarlega í allar bekkj- ardeildir til að athuga hvort krakkarnir nota merkin sem þeim eru gef- in. Nú hefur Slysavarnadeildin tekið upp þá nýbreytni að gefa börnunum endurskinsboröa og á myndinni hér að ofan má sjá Ragnar og Ses- selju Guðjónsdóttur kennara með átta ára bekkjardeild í Varmárskóla. Krakkarnir þar ætla allir að vera duglegir að nota borðana sína í vetur til að auka öryggi sitt í umferðinni. H.Guð. DV-mynd Brynjar Gauti Björn Sigurbjörnsson skólastjóri og Gunnar Þórðarson, formaður bridge- klúbbsins á Sauðárkróki. DV-mynd Þórhallur Grunnskóli Sauðárkróks: Fær uppstoppaða fugla Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki Bridgeklúbbur Sauðárkróks af- henti um daginn grunnskóla bæjar- ins að gjöf nokkra algengustu fugl- ana okkar uppstoppaða og er gjöfin hugsuð sem vísir að náttúrugripa- safni skólanna. Það var Gunnar Þórðarson, for- maður bridgeklúbbsins, sem afhenti gjöfina Birni Sigurbjörnssyni, skóla- stjóra eldra stigs grunnskólans. Gunnar gat þess að með gjöfinni vildi klúbburinn leggja sitt af mörkum til æsku bæjarins, um leið og þakkað væri fyrir afnot af skólastofum skól- ans þar sem spilamennskan fór fr'am síðasta vetur. Þá sakaöi ekki að ungl- ingar hugsuðu til bridgeklúbbsins, því ailtaf vantaði unga spilara, end- urnýjun væri nauðsynleg í bridge sem öðrum iþróttuín„ Vísnaþáttur Laxana fer að langa heim Það er ekki einleikið hve ásóknin í laxveiðar er mikil, menn koma hingað til lands á einkaþotum sín- um langt utan úr heimi til þess eins að standa einhvers staðar við berg- vatnsá meö veiðistöng í hendi og bíða þess að laxinn bíti á. Ekki er það hagnaðarvonin sem dregur þá hingaö - en hvað þá? Ef til vill tæki- færi til að gleyma áhyggjum og ann- ríki daganna og jafnvel sjálfum sér meðan þeir horfa í árstrauminn? Það er orðið alllangt síðan klausan, sem hér fer á eftir, birtist í Morgunblaðinu, ártal hefur mér láðst að skrifa á úrklippuna og eins hver var höfundur textans. Grunar að það hafi verið Matthías Johann- essen en það er ábyrgðarlaus grunur: „Við minntum Jóhannes Jósefs- son á það, að hann hefði einu sinni talað um „að vinna fyrir island“. Við spurðum hann því hvernig hann teldi að það væri bezt gert nú á dögum. Hann svaraði: - Þessu ætla ég ekki að svara, það er of auöskilið mál til þess. Við létum auðvitaö þar við sitja en snerum okkar að síöustu spurningunni. Jóhannes dvelst um þessar mundir í sumarbústað sínum við Hítará. Viö sögðum: - Nú hvílið þér yður við veiðiskap á þeim slóðum, þar sem margt gerðist á gamalli tíð. Er það laxinn eða sambandið við for- tíðina sem dregur yður hingað? - Ég held þessari spurningu sé bezt svarað með eftirfarandi vísu, segir Jóhannes á Borg aö lokum og mælir vísuna af munni fram: Er fyllt var að barmi mín kvalanna krús, sem kynngin og erillinn lána, þá byggði ég hvíldar og kærleikans hús á klettunum frammi við ána.“ Fegurö Vesturlands og þá ekki síst Borgarfjarðar hefur orðið mörgum skáldum og hagyrðingum að yrkisefni. Páll Guðmundsson á Hjálmsstöðum í Laugardal orti er hann var þar einn á ferð: Ber mig yfir Borgarfjörð beisladrekinn knái. Glitrar dögg við gróinn svörö, gull er í hverju strái. Hér er jökla og hamraþil, hálsar og dalir grænir. Niðri í bláum bergvatnshyl byltast laxar vænir. Gróskumáttur gróandans gagnsemd eykur hjarðar. Fyllir augu ferðamanns fegurð Borgarfjarðar. Skúli Guðjónsson, læknir og prófessor við háskólann í Árósum, Vísnaþáttur Torfi Jónsson var mikill áhugamaður um lax- veiðar og kvað sín laxaljóð: Nú er vor um víöan geim varmi suðri frá. Laxana fer að langa heim - langar fleiri en þá. Hann er að sveima um höfm blá og hranna geima víða. Hann er að dreyma ós og á og æskuheima blíða. Það hlýtur að vera gaman að geta sleppt fram af sér beislinu í hópi góðra félaga við laxveiðar. Matthí- as Johannessen ritstjóri yrkir svo um veiðitúr í Gljúfurá: Og þarna var glaðst og gantast og gengið á sveig við það sem öllum er efst í huga: þetta eilífa basl og strit, og gott er að geta losnað viö gáfur og fjármálavit. Svo eru þeir sem halda því fram að stærsti hluti laxins sé veiðisagan og stundum hafi brögð verið í tafii, samanber eftirfarandi stef: Við Straumana stendur maöur með stöng í höndum tveim. Víöa flýgur valurinr. um vorbjartan geim. Sumir kaupa laxinn á leiðinni heim. Mér er ekki kunnugt um hVer ber ábyrgð á þessum dylgjum en hvernig sem því er nú varið þá hafa veiðisögur yljað mörgum veiöimanninum. Víglundur Möll- er: Vaki um skeið, ei von á neitt vor og heiða daga, getur leiða í gleði breytt gömul veiðisaga! Enginn breytir eöli því okkar veiðimanna, að viö lifum löngum í löndum minninganna. Menn eru oft misjafnlega fisknir en ekki veit ég hvort veldur, veiði- m'aður eða veiðarfæri, ef til vill hvort tveggja. Skúli Guðjónsson kvað: Tognar lína, stælist stöng, strengir fínir titra. Hjólin hvína lotulöng, laxar skína og glitra. Fiskur kaldur feigðarbráð forðast sjaldan mína, en varast aldrei vélaráð og veiðigaldra þína. Brostnir strengir, brotin spjót, blóm á engi kalin, veiðigengi og vinahót vöit eru lengi talin. Og jafnvel fögur kona minnir Skúla á laxveiðar: Oft mér glæður ásta þá Urðu að skæðu báli, þegar klæöalaus hún lá sem lax í flæðarmáli. Ogþegar svo er komið er vissara að fara ekki fleiri orðum um veiði- skapinn. Torfi Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.