Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1990, Qupperneq 40
52 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990. Enn ný Úrvalsbók Stórbrotin bók um átökin sem gerast næst okkur um þessar mundir. Á einni nóttu þyrlast söguhetjan inn i skuggaveröld borgarstríðs- ins á Írlandi. Hryðjuverkamenn- ina þyrstir í blóð - en hvar verð- urþvi útheilt? Meistaralega skrifuð bók sem engan lætur ósnortinn. Sannkölluð úrvals spennusaga. Fæst á næsta bóka- og blaðsölu- stað, eða þú hringir og færð bókina senda i póstkröfu án aukakostnaðar. Lygi þagnarinnar kom fyrst út í september á þessu ári. Umsagn- ir gagnrýnenda eru mjög á eina lund: „Brian Moore verðskuldar það orð sem af honum fer sem einum besta sagnahöfundi sam- timans." - Martin Seymour- Smith, Financial Times. „Gallalausfrásögn. . .afburða afrakstur ímyndunaraflsins." - Paul Ableman, Spectator. „Mr. Moore er vissulega einn fimasti og áleitnasti höfundur samtimans." - Elizabeth Ber- redge Daily Telegraph. Brian Moore fæddist i Belfast á Írlandi árið 1921 en hann flutti árið 1948 til Kanada, síðan til New York og settist loks að í Los Angeles. Hann hefur sent frá sér fjölda bóka sem sumar hafa verið kvik- myndaðar. Pantanasíminn er 91-27022 Bókin kostar aðeins kr. 691. Handbolti unglinga_______________________________________pv 21 árs landslið í Danmörku: Góð ferð sem skilur mikið eftir sig Landslið íslands, 21 árs og yngri, sem lék gegn Dönum um siðustu helgi. Landslið íslands, skipað 21 árs leik- mönnumng'yngri, lék þrjá landsleiki við Dani um síðustu helgi og fóru allir leikirnir fram'á Sjálandi í Dan- mörku. Þessir leikir voru liður í þjálfun liðsins fyrir heimsmeistara- keppni 21 árs liða sem fram fer í Grikklandi i byrjun september á næsta ári. Jafnt og spennandi á föstudegi Það var ljóst í byrjun þessa leiks að liðið hafði nokkra minnimáttar- kennd gagnvart því danska því Dan- ir höfðu forystu til að byrja með en staðan í hálfleik var 9-9. Danir komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og áður en nokkur vissi af var staðan 14-9, Dönum í vil. Þá gerði þjálfari liðsins, Gunnar Ein- arsson, nokkrar breytingar og hægt og bítandi náði íslenska liðið að jafna leikinn. Þegar um 5 mínútur voru til leiksloka var staðan 17-17 og með góöum endaspretti vann íslenska lið- ið, 20-18. Besti leikmaður íslendinga var að þessu sinni Jason Ólafsson úr Fram en hann kom inn á í seinni hálfleik og skoraði alls 5 mörk og gaf þar fyrir utan nokkrar sendingar sem gáfu mörk. Þá varði Axel Stef- ánsson úr KA vel i seinni hálfleik. Merkjanlegur munur í miðleiknum Þessi leikur var mjög góður af ís- lands hálfu og hafði maður það alltaf á tilfmningunni að íslendingarnir gætu hrist Danina af sé þegar þeir vildu. Þó var eins og þá vantaði vilj- ann eða einbeitingu til að klára dæm- iö. Leikurinn var jafn frá fyrstu mín- útu og í hálfleik var staðan 11-9, ís- lendingum í vil. Seinni hálfleikurinn var svipaður þeim fyrri, jafn og spennandi, og gripu Danir til þess ráðs rétt fyrir leikslok að leika maö- ur á mann sem virtist koma okkar mönnum nokkuð úr jafnvægi. Loka- tölur leiksins urðu þannig að íslend- ingar sigruðu, 20-19. Björgvin Rún- arsson, Víkingi, Patrekur Jóhannes- son, Stjörnunni, og Hallgrímur Jón- asson, ÍR, voru bestir íslensku leik- mannanna í þessum leik. Þreyta sagði til sín í síðasta leik Þessi síðasti leikur bar þess greini- leg merki að þreyta var komin í mannskapinn eftir tvo jafna og erflða leiki þarna úti og ekki síður að síð- ustu vikur áður en lagt var í ferðina voru margir og erfiðir leikir hjá ungu mönnunum hér heima. Eins og fyrri leikir var þessi jafn frá fyrstu mínútu. .Öfugt við hina leikina voru það þó Danirnir sem höfðu jafnan yflrhöndina og staðan í leikhléi var 9-11, Dönum í vil. Strák- arnir okkar komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og um miðbik hans var staðan orðin 16-15, okkur í vil. Það voru þó Danir sem höfðu yfir- höndina þegar upp var staðið en leiknum lauk 19-23. Geta þeir nokk- uð þakkað dómurum þennan mikla markamun því sænsku dómararnir tóku sig til og dæmdu mjög vafasama dóma undir lok leiksins, alla á móti íslenska liðinu. Enginn íslensku leikmannanna stóð upp úr í þessum leik og má segja að meðalmennskan og tæplega það hafi verið ráðandi. ,,Frábær hópur oggóóurandi" „Þetta var einstaklega góð ferð í alla staði og það er virkilega gaman að vinna með svona hóp,“ sagði Gunnar Kvaran þegar DV spurðist fyrir um þessa ferð. „Þessi ferð var liður í undirbúningi liðsins fyrir HM í Grikklandi sem hefst 4. september næsta ár og ég er sannfærður um að ef liðið heldur áfram á þessari braut, bæði móralskt og handboltalega, er ástæðulaust að óttast það verkefni," sagði Gunnar að lokum, greinilega stoltur af sínum mönnum. Kjarninn er kominn „Ég er nokkuð ánægður með þessa ferð en það er alveg ljóst að mikil vinna er fyrir höndum ef við ætlum okkur einhverja hluti í Grikklandi," sagði Gunnar Einarsson, þjálfari liösins, er hann var spurður um leik- ina. „Þetta er mjög öflugt lið sem verður gaman að vinna með,“ sagði Gunnar aö lokum. Kópavogsbikarinn 1990 - jöfn og spennandi keppni hjá 6. flokki Oft sáust glæsileg tilþrif leikmanna um síðustu helgi og hér er eitt fjöl- margra fallegra marka mótsins. Fyrst áttust við lið Fjölnis og Fylk- is og höfðu Fylkismenn betur á loka- sprettinum, 4-2. Leikur HK og FH var mjög jafn fram í seinni hálfleik en þá gerðu HK-ingar út um leikinn og sigruðu 5-1. Þar með höfðu HK og Fylkir tryggt sér rétt til að leika um 1. sæti í B- úrslitum. Lið HK mætti mun ákveðnara til leiks en Fylkir og vann öruggan sig- ur, 6-2, og þar með 1. sæti í B-úrslit- um og bikar til eignar. Einstaklingsverðlaun Einstaklingsverðlaun voru veitt í mótslok og var prúðasti leikmaður- inn valinn Magnús Jónsson hjá Fylki, Hermann Grétarsson var val- inn besti leikmaðurinn, besti varnar- maöurinn var valinn Halldór Elías- son og Veigar Gunnarsson besti sóknarmaöurinn. Um síðustu helgi fór fram keppni um Kópavogsbikarinn í annað sinn en fyrst var leikið í 6. flokki karla um bikarinn í fyrra og bar þá UFHÖ sigur úr býtum. Leiknir voru alls 76 leikir á þremur dögum en 35 lið tilkynntu þátttöku að þessu sinni. Voru allir þátttakend- ur nokkuð ánægöir með mótin um Kópavogsbikarinn svo og keppnina hjá 5. flokki kvenna. Þó varð blaða- maður DV var við nokkra óánægju hjá forráðamönnum félaganna með hve há þátttökugjöldin væru en þau voru mun hærri en gengur og geris.t hjá öðrum yngri flokkum. A-, B- o^C-Iiö saman i riðlum I forkeppninni var leikið í riðlum þar sem A-, B- og C-lið léku saman, nokkuð sem ekki á að eiga sér staö, enda var munur í leikjum A- og C- liða eðlilega allt of mikill og þá léku A-lið félaga í B-úrslitum í stað B-liöa. Þrátt fyrir þetta var keppni milli efstu liða oft mjög spennandi og réð markatala úrslitum í einum riðlinum hvaöa lið kæmist áfram í A-undanúr- slit. VíkingurogÍR léku tilúrslita í A-undanúrslit komust lið Víkings, Fylkis, ÍR og Stjörnunnar. Víkingar og ÍR-ingar höfðu betur og léku því til úrslita um 1. sætið en um 3. sætiö léku liö Stjörnunnar og Fylkis. Leikurinn um 1. sætið var spenn- andi og var staðan í hálfleik jöfn, 3- 3. Þrátt fyrir stórgóða markvörslu markmanns ÍR-inga réð hann ekki viö fjögur vítaköst Víkinga sem unnu nauman sigur, 6-5, og var gleði þeirra mikil eftir að dómari hafði flautað til leiksloka. Stjarnan hafði betur í leik um 3. sætið og vann Fylki í tvísýnum leik, 4- 3. Heimamenn unnu B-úrslitin í B-úrslitum áttust við lið HK b, FH b, Fylkis b og Fjölnis a. HK bar sigur ur býtum í keppni B-liða og hér sést liðið með sigurverðlaunin. Sigurlið Víkinga að loknu móti en þeir unnu IR í úrslita- leik með einu marki og sýndu oft á tíðum skemmtilegan handknattleik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.