Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
11
Æviminningar Sigurðar Ólafssonar í nýrri bók:
Dáðist alltaf að þess-
um hæfileikamanni
- segir Ragnheiður Davíðsdóttir sem gefur út tvær bækur um þessar mundir
„Ég tók viðtal við Sigurð Ólafsson
fyrir gömlu gufuna árið 1984. Þá
heillaðist ég mjög af honum. Ætli ég
hafi ekki ákveðið bókina þá,“ segir
Ragnheiður Davíðsdóttir sem sendir
frá sér tvær bækur fyrir þessi jól.
Æviminmngar Sigurðar Ólafssonar
bónda, söngvara og hestamanns og
barnabókina Egill og Garpur sem
fræðir Utlu lesenduma í umferðinni
á skemmtilegan og myndrænan hátt.
Ragnheiður hefur einmitt unnið
mikið að umferðarmálum bæði sem
lögreglumaður og meðhmur í Sam-
tökum áhugamanna um bætta um-
ferðarmenningu.
Bókin um Sigurð Ólafsson hefur
verið lengi í vinnslu. Ragnheiður
hafði þó hugsað sér hana á markað
fyrir nokkrum árum. Hins vegar
veiktist Sigurður alvarlega árið 1987
og tafðist útkoma bókarinnar vegna
þess. Ragnheiður segist hafa unnið
bókina með mikilli og góðri hjálp
Ingu Valfríðar Einarsdóttur, eigin-
konu Sigurðar, og margra fleiri.
„Útvarpsviðtaliö við Sigurð tók ég
á sínum tíma þvi ég dáðist svo mikið
að manmnum með orfið og ljáinn í
Laugamesinu," segir Ragnheiður.
Hann var mikill bóndi þó í borginm
væri.
„Sjálfur söng ég fyrst opinberlega,
ef hægt er að tala um það, þegar ég
var 12 ára. Þá var ég í efsta bekk í
skóla Hailgríms Jónssonar," segir
Sigurður í bókinm.
„Líf þessa manns hefur snúist í
kringum söng og hesta,“ segir Ragn-
heiður. „Það var mjög erfitt að gera
upp á milli þessara tveggja þátta í
lifi hans. Hann var þekktur hesta-
maður og átti hina frægu hryssu
Glettu. Sigurður var auk þess frægm
söngvari sem söng allar tegundir
tónlistar. Ég man ekki í augnablikinu
eftir öðrum söngvurum sem gátu
sungið jafnvel á svo mörgum svið-
um,“ heldur hún áfram. „Sigurður
söng kannski við jarðarfór aö morgni
og að kvöldi á söngskemmtun undir
píanóleik. Síðar um kvöldið fór hann
niður í Gúttó og söng með dans-
hljómsveit. Hæfileikar hans voru á
mörgum sviðum og mér fannst mjög
heillandi viðfangsefm að ná þessu
öllu saman í bók,“ segir Ragnheiður.
Inga Valfríður, eða Snúlla eins og
hún er alltaf kölluð, starfaði á Café
Royal í Austurstrætinu þegar hún
kynntist væntanlegum eiginmanm.
Hann var meðal fastagesta þar. Aðrir
voru vel þekktir listamenn ems og
Kjarval. Snúila lýsir þessu í bókinni:
„Þá var Sigurður áberandi meðal
ungra og sprækra stráka í Reykjavík
sem.vöndu komur sínar á kaffihúsin
og bölhn," segir hún. „Líklega hefur
það ráðið mestu um samband okkar'
að bæði áttum við sameiginlegt
áhugamál þar sem hestamennskan
var - enda hittumst við oft á hest-
baki. Það tók okkur þó nokkurn tíma
að kynnast það vel að hægt væri að
tala um náið samband - enda flanaði
maður ekki að slíkum hlutum í þá
daga. Ég minnist þess þó að Sigurður
var alla tið sérstaklega kurteis og
mikill séntilmaður í sér.“
Ragnheiður segir að margir muni
Sigurö sem bónda í Laugamesinu.
„Hann bjó í Laugamesinu fram til
ársins 1982,“ segir hún. „Það er sér-
kennilegt til þess að hugsa að í öll
þau 34 ár sem þau hjónin bjuggu þar
með börnum sínum, höfðu þau aldrei
heitt vatn. Þau höfðu kolakyndingu
og ég held að hús þeirra hafi verið
það síðasta í borginni með slíkri
Ragnheiður Davíðsdóttir með barnabókina um Egil og Garp þar sem hún sameinar skemmtilegan lestur og um-
ferðarfræðslu. DV-mynd GVA
kyndingu. Þetta mátti Snúlla búa við
öll þessi ár,“ segir Ragnheiður.
„Eg þekkti Sigurð Olafsson alltaf,
að mér fannst, í gegnum útvarpið.
Lög eins og Síldarvalsinn og Ástar-
vísur hestamannsins hljómuðu oft-
sinnis og móðir mín raulaði þau oft,“
segir Ragnheiður ennfremur.
Allt þetta ár hefur hún verið að
vinna bókina með Sigurði, Snúllu,
börnum þeirra og mörgum fleirum.
„Ég leitaði víða heimilda og gagna.
Veikindi Sigurðar settu auðvitað
strik í reikninginn varðandi ýmis
atriði. Hann fékk heilablóðfall og
hefur verið sjúklingur. Ég held samt
að þeir aðilar sem hjálpuðu okkur
vegi ýmislegt upp. Frásögmn varð
létt og lopinn er hvergi teygður. Þess
vegna tel ég að fólk hafi gaman af
að lesa hana,“ segir Ragnheiður.
„Sigurður hefur alla tíð verið afar
hress maður og Snúlla, kona hans,
full af lífsgleði. Ég vona að lífsgleðin
endurspeglist í bókinni," segir hún.
í bókiimi er samtal við Jón á Reykj-
um þar sem hann segir Sigurð alla
tíö hafa haft mikla tilfinmngu fyrir
hestum og góðri hestamennsku. „Þá
áttu þau hjón sameiginlegt að vera
alltaf mjög snyrtileg í klæðaburði.
Aldrei sá ég þau svo á hestbaki að
þau væru ekki í faliegum reiðfötum
og vel burstuðum stígvélum. Sjálfur
var Sigurður alltaf í glansandi leður-
stígvélum, reiðbuxum og gjarnan
köflóttri skyrtu eða peysu að ofan.
Snúlla var aftur á móti oftast í jakka.
Ég er ekki frá þvi að snyrtimennska
þeirra í klæðaburöi hafi haft varan-
leg áhrif á aðra hestamenn."
I bókinni eru margar myndir og
segist Ragnheiður hafa setið með
áttatíu myndir úr fjölskyldualbúm-
um til að velja úr. „Það var ekki
mjög auðvelt,“ segir hún. „Þaö er oft
þannig að mesta vinnan er eftir að
maður er búinn að skrifa bókina. Þá
kemur að nostrinu sem fylgir útgáf-
unni,“ segir hún ennfremur.
Ragnheiður starfaði sem blaða-
maður hjá Fróða en hætti þar störf-
um til að geta skrifað þessar tvær
bækur. Nú situr hún á skólabekk í
Háskóla íslands til að bæta íslensku-
kunnáttuna.
Bókm um Sigurð Ólafsson heitir í
söngvarans jóreyk og er það hug-
mynd Ragnheiðar. „Mér fannst það
sameina vel þessar ástríður í lífi Sig-
urðar,“ segir hún.
Bamabókina Egill og Garpur skrif-
aöi Ragnheiður í febrúar. „Þetta var
hugmynd sem kom allt í einu. Sögu-
þráðurinn varð til í kringum son
minn sem er á svipuðum aldri og
sögupersóna bókarinnar. Hann á
kött sem heitir Tommi en Egill á
kött sem heitir Garpur. Bókin er
nokkurs konar sambland af persónu-
legri reynslu og reynslu úr lögregl-
unni,“ segir Ragnheiður. „Sem lög-
reglumaður fór ég oft að heimsækja
börmn í skólana og þess á milh þurfti
maður að mæta á vígvöU umferðar-
innar þar sem sögusviðið var öllu
hræðilegra en í bókinni. Ég skrifaði
bókina til að koma inn hjá þessum
Utlu börnum og foreldrum þeirra
boðskap um umferðina."
-ELA
5 ára ábyrgð á myndlampa
f E —m i
J55» MUNALÁN
Síðasta sending seldist upp
á 10 dögum
Missið ekki af þessari sendingu
GRUflDIG
vestur-þýsk hágæða litsjónvörp - frábært verð
S-VHS litsjónvarp með fjarstýringu
NICAM-STEREO, 2x20 W, textavarp, 2xScart tengi
S-VHS tengi, CTI (skarpari litir)
25" (ST 63-660) kr. 85.455,- stgr.
28" (ST 70-660) kr. 89.950,- stgr.
21" mono (TSS-440) kr. 48.555,- stgr.
25" mono (T63-430) kr. 63.950,- stgr.
28" mono (T70-440) kr. 71.910,- stgr.
----------\
Umboðsmenn
um land allt
SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HE
Síöumúla 2 - sími 68-90-90