Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Page 23
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
23
dv__________________________________________________________________________________Sviðsljós
Drottning tískunnar:
Merkj avörumar
eru búnar að vera
„Einfaldleikinn ræður ríkjum.
Lúxusdellan hefur sungið sitt síð-
asta.“ Þetta er haft eftir Li Edel-
koort, hollenskri Parísardömu sem
er ókrýnd drottning tísku og innrétt-
inga, að því er kunnugir segja. Hún
bendir á að hlutabréf bandaríska fyr-
irtækisins Gapp hækki stöðugt í
verði á meðan almenn kreppa ríki á
heimsmarkaðnum. „Gapp framleiðir
fyrst og fremst fatnað sem hefur mik-
ið notagildi.“
Li segir einnig að tími merkjavar-
anna sé Uðinn, að minnsta kosti sé
hann það í Japan. Og hvers vegna
skyldu menn vera að greiða aukalega
fyrir merkið samtímis því sem þeir
eru gangandi auglýsingaskilti? „Nú-
tímakonan velur sjálf hvaða flíkum
hún viU ganga í,“ segir Edelkoort.
Það var Edelkoort sem í fyrra lagði
áherslu á notalegan og persónulegan
stíl innan heimihsveggjanna. Og nú
segir hún fyrir um hvemig fötum við
munum ganga í næsta áratuginn. Við
erum að faUa frá skáhnunum. Ed-
elkoort segir að með skálínum í vefn-
aði hafi efnin Utið út fyrir að vera
meira glansandi en þau voru í raun.
Evrópskar tískuverslanir hafa áhuga
á fatnaöi amerískra hönnuða, eins
og til dæmis þessu pilsi eftir Ralph
Lauren.
Nú boðar hún kafla- og blómamunst-
ur í bómuUarefnum sem eru í Utum
náttúrunnar.
Li og níu samstarfsmenn hennar
sækja hugmyndir víða að, frá Usta-
mannsheimilum og eigin bernsku-
heimUum. Aftur til fortíðarinnar
virðist vera einkunnarorð tísku-
drottningarinnar.
Evrópskar konur eru að minnsta
kosti famar að breyta um stíl þó enn
sé hann ekki orðinn eins og Edelko-
ort spáir. Áður fyrr Utu konur í Evr-
ópu vart við öðrum bandarískum
fótum en gaUabuxum. En á nýaf-
stöðnum tískusýningum í New York
vom kaupendur frá helstu tísku-
verslunum í Evrópu sem og blaða-
menn frá helstu evrópsku tískublöð-
unum. AthygU þeirra beindist nú í
meira mæU en áður að vinsælum
bandarískum hönnuðum eins og
Donna Karan, Michael Kors, Ralph
Lauren og Calvin Klein.
Amerísk fatatíska er sögð hafa fylgt
i kjölfar ameríska lífsstílsins sem
þegar hefur hafið innreið sína í Evr-
ópu. Franskar og ítalskar hástéttar-
konur veija ekki lengur heUum
morgni í það að kleeðast fyrir hádeg-
isverð og síðdeginu í blund áður en
skrýðst er fyrir kvöldverð.
Hönnuðurinn Kors segir að evr-
ópskar könur hafi ekki látið það á
sig fá þótt einhver flík hafi verið
óþægUeg. „Þær klæddust henni af
því að hún var faUeg. Nú er lífsstfll
þeirra orðinn eins og Bandaríkja-
kvenna og þá klæðast þær í takt við
hann. Þær þurfa þægUeg föt sem
krumpast ekki og það em einmitt
þess háttar föt sem bandarískir
hönnuðir hafa einbeitt sér að síðast-
Uðna tvo áratugi.
Bandarískir hönnuðir fagna mjög
aukinni sölu í Evrópu því vegna
kreppunnar henna fyrir hefur salan
verið dræm. Hönnuðimir eiga samt
eftir að læra ýmislegt varðandi við-
skipti við suma Evrópubúa sem
greinUega hafa ekki breytt um stíl
að öUu leyti. Donna Karan fyrirtækið
gerði ráð fyrir góðri sölu á jakkateg-
und nokkurri en franskir viðskipta-
vinir Utu ekki við jakkanum. Á hon-
um stóð nefnUega: Made in Korea eða
framleiddur í Kóreu. TU að koma í
veg fyrir frekari vandamál af þessu
tagi ráðgera nú bandarískir hönnuð-
ir að láta framleiða meira af tísku-
fatnaði sínum á ítaHu á næsta ári.
Köflótt dragt, hönnuð af Michael
Kors.
JOLIJAPIS
Verum hagsýn þessi jól og verslum í JAPIS.
Panasonic
S G H D 5 2
•Alsjálfvirkur plötuspilari
•fullkominn geislaspilari
•tvöfalt segulband
•útvarp m/FM, MW, LW
•magnari 180 w
•7 banda tónjafnari m/minni
•fallegir hátalarar í viðarkassa
•fjarstýring.
kr. 69.800 stgr.
Panasonic
S G H M 4 2
•háIfsjálfvirkur plötuspilari
•fullkominn geislaspilari
•tvöfalt segulband
•útvarp m/FM, MW, LW
•50 w. magnari
•5 banda tónjafnari
•fallegir hátalarar í viðarkassa
•fjarstýring
kr. 56.950 stgr.
Panasonic
S G H M 2 2
•hálfsjálfvirkur plötuspilari
•fullkominn geislaspilari
•tvöfalt segulband
•útvarp m/FM, MW, LW
•20 w. magnari
•5 banda tónjafnari
•fallegir hátalarar í viðarkassa
•fjarstýring
kr. 49.970 stgr
JAPIS3
BRAUTARHOLTI 2 • KRINGLUNNISÍMI 625200