Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Page 27
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991.
27
fín og flott. En þegar hún kom heim
eftir þijú ár úti fannst henni hún vera
hallærislegasta kona í heimi.
í stílviðsjálfan sig
Eitt af þvi sem ég reyni aö koma í
gegn í minni kennslu er aö fólk leit-
ist við aö verða meiri einstaklingar,
skapi sér sinn eigin persónuiega stíl
og sækist meira eftir því sem það
sjálft langar raunverulega til aö gera
og vera, ekki eftir því sem aðrir eru
að gera.
íslendingar leggja svo mikið upp
úr ytri glæsileika að ég held að þar
sé engin samhking til. En samt er
um leið reynt að halda í meðal-
mennskuna, þannig að enginn skeri
sig úr, enginn sé öðruvísi. Konur
kaupa oft eldhúsgardínur sem þókn-
ast konunni á móti, ekki endilega
þeim sjálfum. Smæð þjóðfélagins
fylgir yfirgengileg tillitssemi við
aðra. Ogþetta er auðvitað enn meira
áberandi úti á landi.
Þegar ég var að byrja að fara út á
land var sjáanlegur örlítill munur á
því hvað konur á höfuðborgarsvæð-
inu voru betur klæddar og fylgdust
betur með tískunni, en nú er sá mun-
ur ekki lengur til. Ef eitthvað er, þá
eru konur úti á landi jafnvel betur
og klassískar klæddar, af því að þær
hafa kannski ekki aðstöðu til að elt-
ast við tískuna út í ystu æsar. Þess
vegna klæða þær sig oft í dýrari og
vandaðri föt.
En mér finnst ég líka verða var við
að eftir því sem bæjarfélagið minnk-
ar verða pilsfaldarnir síðari ogkjólar
ekki eins flegnir. Konur á höfuðborg-
arsvæðinu geta kannski leyft sér að
vera djarfari enkonur í litlu bæjarfé-
lagi, sem þekkja hvern einasta mann
á ballinu þegar þær fara út að
skemmta sér. Því hef ég stundum
lagt áherslu á að það eigi ekki að
vera nein staðarkvöð að þurfa að
draga úr.“
(Ath.: Fyrirsögn og millifyrirsagnir
eru ’uiaðsins)
svona hefur þetta orðið hjá okkur.
Yngri dóttir okkar fær miklu meira
en eldri systkini hennar fengu. Hún
hefur meira að segja kvartað yfir því
sjálf að hún fengi alla hluti um leið
og hún bæði um þá.
„Þið ahð upp í mér frekjuna," sagði
hún.
Hamingjan víkur
fyrir veraldlegum
gæðum
Skiljanlegt er að fólk sem sjálft bjó
ekki við allsnægtir í uppvextinum
og gat kannski ékki látið mikið eftir
eldri börnum vilji láta bömin sín eða
bamabömin njóta þeirra lífsins
gæða sem það hefur nú efni á að
veita þeim. En ég óttast að með þessp
sé í rauninni ekki verið að gefa böm-
unum neitt, heldur sé verið að taka
eitthvað frá þeim, eitthvað sem
kannski er dýrmætara en nokkur
gjöf gæti orðið.
Ég er þeirrar skoðunar að með því
að taka þátt í slíku kapphlaupi séum
við að eyðileggja svo margt í lífi okk-
ar. Við emm að skemma möguleika
okkar á að verða hamingjusöm með
því að vera alltaf að keppa að því að
öðlast einhver veraldleg gæði.
Kýs lítið húsnæði
Fólk verður oft undrandi þegar það
kemst að því að ég bý ekki í einbýlis-
húsi, heldur í blokkaríbúð í Breið-
holtinu. Og ég hef oft gaman af því
aö sjá andlitið detta af fólki sem kem-
ur heim til mín í fyrsta sinn. Það á
greinilega von á einhverju allt öðru.
Við búum á rúmum 70 fermetrum
með þrjá afkomendur og þijá ketti,
og þar rúmast fátt annað en bækur.
Ég held að við eigum núna stærra
bókasafn en fósturfaðir minn átti á
sínum tíma, en raunar fengum við
góðan skerf af hans safni. Stærsti
útgjaldaliður heimilisins er tvímæla-
A ég að sýna ykkur hvernig hún gengur inn í salinn. Heiðar Jónsson við störf.
laust bókakaup. Við búum þröngt og
heimili okkar er laust við allan íburð.
Ég er alveg tilbúinn til að viður-
kenna að ég heföi ekkert á móti því
að eiga stærra og búa betur. En ég
er hins vegar ekki reiðubúinn til að
leggja stærri Hluta af tekjum mínum
í húsnæði, í umbúðir sem ég þarf í
rauninni ekki á að halda. Þá yrði ég
að fórna einhverju í staðinn, ein-
hverju sem ég met meira.
Auðvitað eru sumir sem vilja ekk-
ert frekar en eiga stórt hús og fínan
bíl. Það er þeirra áhugamál og ekk-
ert við því að segja. En ég held að
margir sem eiga eitthvað slíkt hafi í
rauninni lítinn áhuga fyrir því sjálf-
ir. Þeir eru að berjast við að kaupa
þetta fyrir aðra.
Við gerum ógurlegar tískukröfur,
kannski meiri en nokkur skynsemi
er í. Þegar við klæðum okkur upp á
Mynd sem tekin var af Heiðari fyrir
árbók Franklin High School.
förum við miklu lengra en aðrir. Allt
þarf að vera nýtt og fínt. Útlending-
ar sem koma hingað fá oft hálfgert
áfall.
Tískan frá íslandi
Þegar verið var að kjósa Stjörnu
Hollywood fyrir nokkrum árum var
ég að vinna hjá Klassík. Þá kom hinn
þekkti franski snyrtir Annick Ber-
trand hingað, og þegar hún var búin
að mála stelpurnar sem þátt tóku í
keppninni sagði hún:
„Eg er að koma hingað frá París.
En nú sé ég hvað er í tísku.“
Ekki er langt síðan til mín kom
stúlka sem hafði nýverið búið í þrjú
ár í Danmörku. Hún sagði að það
heföi verið kúltúrsjokk að koma
heim, því að þegar hún fór út heföi
hún þótt smart og vel klædd. í Dan-
mörku heföi hún þótt algjör bjáni að
leggja svona mikið upp úr því að vera
Veljum íslenskt í jólabaksturinn!
Móna hefur staðið við þjóðarsáttina, vörurnar eru á sama verði og í fyrra.
Mónu bökunarsúkkufaði er hágæða vara unnin af
íslenskum höndum fyrir íslenska neytendur. Veljið
íslenskt gæða súkkulaði frá Mónu í jólabaksturinn til
að tryggja góðan árangur.