Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1991, Qupperneq 42
54 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1991. Brotalamirnar í breska dómkerfinu koma sífellt betur í ljós. Fyrr í þess- ari viku skýrðu dómarar í Bretlandi frá því að einn þeirra þriggja sem sakfelldir voru 1987 fyrir að myrða lögreglumann væfi saklaus af morðákærunni. Er þetta síðasti at- burðurinn í röð mála þar sem áður fallinn dómur er lýstur ógildur. Ekki hefur heldur verið lát á öörum hneykslismálum. Síðastliðið sumar kom eitt þeirra, Stalker-málið svo- kallaða, aftur á síður dagblaðanna. Það mál ijallaði upphaflega um að- gerðir bresku lögreglunnar á Norð- ur-írlandi og þrálátan orðróm um að háttsettir embættismenn, og jafnvel ráðherrar, hefðu tekið þátt í tilraun til að koma í veg fyrir að sannleikur- inn Uti dagsins ljós. Skotnirtil bana John Stalker var háttsettur lög- reglumaður í Manchester þegar hann árið 1984 fékk það verkefni að rannsaka dauða alls sex manna á Norður-írlandi sem lögreglan hafði skotið til bana í þremur tilvikum. Mennimir sex voru allir grunaðir um hryðjuverk. Ástæða þótti til að ákæra fjóra lög- reglumenn. Þeir voru hins vegar sýknaðir í réttarhöldum sem kaþó- Ukkar á írlandi fylgdust náið með. Brátt komust þær sögur á kreik að áhrifamiklir menn í lögreglunni á Norður-írlandi hefðu haldið leyndum mikilvægum staðreyndum. Einnig var gefið í skyn að margir hefðu ekki greint rétt frá við réttarhöldin. Lögreglumanninum Stalker var fal- in rannsókn málsins. Hann hélt til Belfast ásamt nokkrum aðstoðar- mönnum og hóf rannsóknina. Það kom ekki á óvart að verkefnið skyldi reynast erfitt. Vikið frá störfum Honum þótti þó sem rannsókninni miðaði áfram. En um vorið 1986 var honum meinað að hlusta á segul- bandsupptöku af einu tilvikanna þegar skotið var á meintan hryðju- verkamann. Hann setti lögreglunni í Belfast það skilyrði að ef hann hefði ekki fengið segulbandsspóluna í síð- asta lagi 29. maí myndi hann gera málið opinbert. En 19. maí var hann leystur frá verkefninu og honum vik- ið frá störfum. Ástæðan var sögð sú að hann þekkti menn sem lægju undir grun um að hafa brotið af sér. Meðal þeirra sem tilgreindir voru var Kevin Tayl- or. Taylor hélt því fram að hann hefði verið ákærður þar sem lögreglan vildi koma óorði á Stalker vin hans. Við rannsókn kom í ljós að Stalker hafði ekki gert sig sekan um neitt ólöglegt. Hann fékk stöðu sína aftur en sagði strax af sér. Sá sem tók við rannsókninni á dauða - meintu hryðjuverkamannanna komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki stefna lögreglunnar og hersins á Norður-írlandi að skjóta á færi. Ekki var gripið til neinna aögerða í kjölfar rannsóknarinnar. Stalker skrifaði bók um reynslu sína og varð bókin metsölubók. Hann hefur greint frá því að ákvörðunin um að reka hann 1986 hafi verið tek- in meðal hæstu ráðamanna. Tapaði milljónum vegna ákærunnar Það var ekki fyrr en í janúar 1990 sem Kevin Taylor var sýknaöur af Þær kröfur urðu áberandi háværar síðastliðinn vetur þegar sexmenn- ingunum frá Birmingham svoköll- uðu var sleppt. Árið 1974 voru þessir sex írar dæmdir fyrir sprengjuárásir á tveimur krám í Birmingham. Ang- ar stjórnmálanna þykja hafa teygt sig til þessa máls sem og máls fjór- menninganna frá Guildford. Þeir voru látnir lausir 1989 eftir að hafa setið inni í fjórtán ár, dæmdir fyrir sprengjutilræði á krá. Bent er á aö bæði þessi mál tengist ástandinu á Norður-írlandi og því hafi eftirlit stjórnmálamanna ekki verið sem skyldi. Almenningur krafðist hefnda í sprengjutilræðunum í Birming- ham lét tuttugu og einn lífið og hundrað og sextíu særðust. Þetta vakti mikla reiði meðal bresks al- mennings sem krafðist hefnda. Þegar ódæðisverkin voru framin hafði írski lýðveldisherinn, IRA, staðiö fyrir fjölda sprengjutilræða í Bret- landi. Þremur klukkustundum eftir sprengjuárásirnar í Birmingham voru fimm sexmenninganna hand- teknir á járnbrautarstöð í Lancaster. Þeir ætluðu þaðan með bát til Belfast til þess að vera við jarðarfór IRA- félaga sem hafði sprengt sjálfan sig til dauða nokkrum vikum áður. Lög- reglan misþyrmdi sexmenningunum og falsaði sönnunargögn til að fá þá dæmda. Því hefur verið haldið fram að þeg- ar sexmenningarnir voru dæmdir hafi lögreglan þegar vitað hvérjir sökudólgarnir voru. Hún hafi hins vegar ekki viljað láta það uppi til að missa ekki andlitið. Hið sama hefur verið sagt um meðferð dómstóla á máhnu. Fullyrt er að þetta viðhorf eigi ekki bara við þegar um er að ræða íra sem flestir eru kaþólskir. Tímaritið New Statesman and Society fjallaði síð- asthðinn vetur um mál í Armagh á Norður-írlandi. Þar afplána fiórir menn lífstíðardóma fyrir dráp sem dregið er í efa að þeir hafi framiö. Þetta mál er frábrugðið öðrum þar sem Qórmenningarnir eru mótmæl- endur í hðssveit sem hhðholl er Bret- um. Fórnarlambið var hins vegar kaþólskt. Langur listi Listinn yfir samsvarandi mál er langur. Mörg þeirra eiga rætur sínar að rekja til óeirða í breskum borgum á síðasta áratug, cins og til dæmis máhð sem getið var um í upphafi þessarar greinar. Það er þó hægt aö finna hneykslismál miklu lengra aft- ur í tímann. Árið 1950 var Timothy Evans hengdur fyrir dráp á konu sinni og lítilli dóttur. Sannanir gegn Evans, sem var svolítið þroskaheft- ur, þóttu ónógar en lögregla og dóm- stólar héldu málinu til streitu. Síðar kom í ljós að leigusali Evans var geð- sjúklingur sem hafði mörg kvenna- morð á samviskunni. Leigusahnn, John Reginald Christie, var hengdur 1953 en það var ekki fyrr en 1966 sem Evans var náðaður, sextán árum eft- ir að hann var líflátinn. Áriö 1962 var James Hanratty hengdur vegna meints morðs á pari í bíl sem lagt hafði verið við þjóðveg utan við London. Dómurinn gegn honum var ekki ógiltur þótt vitni fullyrtu að þau hefðu séð Hanratty á allt öðrum stað þegar morðið var framið. Brian Conlon, einn af fjórmenningunum frá Guildford, fagnar frelsi. Fjórtán árum eftir að þeir voru dæmdir þótti sannað að játning þeirra væri fölsuð. Garry Hunter og Paddy Hill, tveir sexmenninganna frá Birmingham, eftir að þeim var sleppt síðastliðinn vetur. Mál sexmenninganna þykir eitt hið stærsta af mörgum hneykslismálum i sögu bresks réttarkerfis. Eitt hneyksl- ismálanna, Stalker-málið, hefur af og til verið á síðum bresku dagblaðanna í mörg ár. ákærum um svindl og fíkniefna- smygl. Taylor var áður milljóna- mæringur en lifir nú á sjúkrabótum. Hann hefur lýst því yfir að honum hafi verið veitt ,eftirfór, sími hans hleraður og síðast en ekki síst hafi hann misst heimili sitt og heilsu vegna rannsóknarinnar. Máhð gegn Taylor var fellt niður þegar dómari komst að þvi að tveir lögreglumenn hefðu logið til að afla sér upplýsinga. Taylor fór í mál við yfirmann lög- reglunnar í Manchester, Sir James Anderton. Sakaði Taylor hann um samsæri. Lögreglumenn, sem látnir voru rannsaka máhð, fundu engar sannanir fyrir því að Taylor hefði verið fórnarlamb samsæris og var Anderton því sýknaður. Máhð er samt ekki úr sögunni því Taylor hef- ur heitið því að krefiast skaðabóta upp á milljónir punda af bæði Ander- ton og lögreglunni í Manchester. Dómaraveldi Það draga það víst fæstir lengur í efa að spilhng og ofbeldi hefur verið útbreitt meðal bresku lögreglunnar. Lögreglan fuhyrðir sjálf að hún sé komin vel á veg með að uppræta slíkt. Ástandið meðal dómaranna þykir hins vegar verra. Þeir fuUyrða enn að það séu kviðdómendur, og ekki dómarinn, sem sýkni eða sakfelh. Ábyrgðin sé hjá kviðdómendum. Því hefur hins vegar verið haldiö fram aö breskir dómarar hafi talsverð áhrif. Þeir eru sagðir sýna vitnum fyrirhtningu og tortryggja framburð þeirra. Margir heimta að dómara- veldið verði brotiö á bak aftur. Hneyksiismál í breska réttarkerfinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.