Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1992, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1992, Síða 15
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992. 15 Jákvæður uppalandi Bölvuö leti er þetta, sagöi ég við son minn þar sem hann hékk í hrúgaldinu og horföi á Tortímand- ann 2 af myndbandi. Væri þér ekki nær að dratthalast að skrifborðinu og reyna að troða einhverju í haus- inn á þér núna rétt fyrir próf, bætti ég við. Það umlaði aðeins í drengn- um og ég sá á honum að ég var fyrir Arnold Schwarzenegger í miðri tortímingu. Snautaðu inn í herbergið þitt og farðu aö læra, sagði ég um leið og slæmdi skank- anum í sjónvarpið og kom í veg fyrir frekari linúestingar á skján- um. Hvað ertu að bögga mig, sagði strákurinn og lét ófriðlega vegna meints ofbeldis fóður síns. Hann togaði hrúgaldið með sér inn í her- bergi og lokaði á eftir sér. Skömmu seinna heyrðust tortímingarhljóð út úr herberginu. Tortímandinn lét öllum illum látum á einkaskjá drengsins. Faðirinn játaði sig sigr- aðan og gafst upp. Ótti við upp- þvottafrumvarpið Þetta er ekki rétt uppeldisaðferð hjá þér, sagði minn betri helmingur þegar ég varð frá að hverfa. Þú átt ekki að vera svona neikvæður heldur koma þínu fram með já- kvæðum hætti. Ég hef heyrt þessar athugasemdir áður og lét mér fátt um finnast. Þó vildi ég ekki styggja konuna þar sem hún ber mjög fyr- ir sig í seinni tíð frumvarpsdrög þar sem það ákvæði þykir merkast að karlar eigi að þvo upp til jafns við konur sínar. Meðan þessi frum- varpsómynd er konunni svona of- arlega í huga tek ég öðrum athuga- semdum vel í þeirri von að smám saman fymist yfir uppþvottafrum- varpið. Jákvæðurupp- eldisfræðingur Ég er héma með grein í Moggan- um um bandarískan uppeldisfræð- ing, sagði konan. Uppeldisfræðing- urinn segir að ávítum eigi að beina að atvikum sem foreldrar séu ósátt- ir við en ekki að barninu sjálfu. Þú átt, sagði konan og vitnaði í blaðið, ekki að segja að barnið sé óþekkt eða latt heldur að við séum óánægð þegar það hegðar sér á þennan hátt. Hún tók dæmi og vitnaði í fræðinginn. Þú átt að segja: Það fer í taugarnar á mér þegar þú lærir ekki heimalexíurnar þínar í stað þess að segja: Óttalega geturðu ver- ið latur, þú nennir aldrei að læra heima. Lenging í Síberíu Ég benti konúnni á að varla væri hægt að segja að drengurinn væri bam. Hann væri á sextánda ári og orðinn rétt eins langur og ég. Þess má raunar geta með lengdina á stráknum að honum finnst það alls ekki nóg að vera kominn vel yfir 1,80. Hann æfir körfubolta og finnst þetta dvergvöxtur. Hann hefur m.a. komið að máh viö fóður sinn og rætt um lengingaraðgerðir í Síber- íu. Ég hef heldur dregið úr því. Annað mál tengt körfuboltanum hefur hann frekar rætt við móður sína. Hann gefur ekkert fyrir hvita htarháttinn og viU láta breyta sér í svertingja. Móðir hans hefur líka dregið heldur úr þessu. Næði hann fram þessum óskum sínum væri óhætt að segja að hann Uktist ekki í mína ætt. Pirraður nemandi En þetta var útúrdúr. Mér var bent á jákvætt og uppbyggjandi uppeldi. Ég fór því aftur af stað tU námsmannsins unga. Tortímand- inn var kominn heldur lengra í ætlunarverkum sínum. Ég fór með ruUuna og sagði: Það fer í taugarn- ar á mér þegar þú lærir ekki heima. Ég beið eftir því að drengurinn stæði upp, slekkti á Tortímandan- um og settist við skrifborðið fuUur námslöngunar og iðrunar vegna viðbragða sinna fyrir stuttu. Ekk- ert slíkt gerðist. Hann gaf það ber- lega í skyn að þessar sífeUdu trufl- anir væru að verða þreytandi. Hvort ég hefði ekkert þarflegra Við Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri tímann að gera. Sér kæmi ekkert við þótt þetta og hitt færi í taugam- ar í mér. Það færi hins vegar í taug- amar á sér að geta ekki horft á Tortímandann í friði. Ég stillti mig um að hrópa á pUt- inn og ákvað að gefast ekki upp í jákvæðu uppeldi. Ég lét gott heita í biU og strákurinn horfði á Tor- tímandann til enda. Konan var ánægð með geðprýði eiginmanns- ins og jákvætt viðhorf til uppeldis- mála og minntist ekki á uppþvotta- frumvarpið. Skriflegtuppeldi Næst ákvað ég að hafa jákvæð uppeldisáhrif á frumburðinn sem að vísu er sjaldan heima nema yfir blánóttina og auk þess vaxinn mér yfir höfuð. Betra er seint en aldrei. Þar sem ég er yfirleitt sofnaður áöur en honum þóknast að koma heim og farinn í vinnuna áður en hann vaknar skrifaði ég honum miða með nokkrum jákvæðum uppeldisatriðum. Á miðanum stóð meðal annars: Það fer í taugamar á mér að sjá aldrei í gólfið á her- berginu þínu, finna gamla epla- kjama og þomaðan appelsínubörk í hiUum og á borðum, hávaðinn í græjunum, ofnotkun á fotunum mínum, bensínlaus heimilisbíUinn og eitthvað fleira tók ég til. Ég var ánægður þegar ég hafði skrifað þetta á miðann og fann að ég var jákvæður uppalandi. Ég hrópaði ekki á börnin heldur benti þeim á það sem fer í taugarnar á mér. Ég lét þess að visu ekki getið í þessu tUskrifi mínu að ég hef orðið var við sama taugatitringinn í minn garð. Sá víbringur kemur frá frúnni sem telur mig stundum vera sitt elsta bam og engu betri í um- gengni en hin. Þannig finni hún fataleppana mína í hrúgum hér og þar, ég nenni sjaldan að ganga frá eftir mig í eldhúsi og kunni best við mig flatur fyrir framan sjón- varpið. Þessar athugasemdir í minn garð eru auðvitað út í hött. Ég tel mig góðan í sambúð og óþarfa að vera að gera veður út af smáatriðum. Aldrei styggðaryrði Næstu daga fengu aUir í fjöl- skyldunni að kenna á jákvæðu uppeldi. Hitt og þetta fór í taugarn- ar á mér og ég benti góðlátlega á það í töluðu og rituðu máli. Aldrei féll styggðaryrði. Aðeins bent á það sem ég var ósáttur við en ekki af- kvæmið sjálft. Andrúmsloftið varð smám saman heldur sérkennUegt. Eldri strákurinn spurði hvort ég væri alveg að brenna yfir og hvort ég sprengdi ekki á öllum. Ég verð að játa það að ég skil ekki alltaf unglingamálið en náði því þó að honum fannst eitthvað athugavert við þann gamla. Ég benti honum á að vera jákvæður í garð eldri kyn- slóðarinnar. Ef hann hefði yfir ein- hverju að kvarta skyldi hann tala við móður sína. Hún væri frum- kvöðull að hinu jákvæða í uppeld- inu. Hann lét ekki segja sér það tvisvar og kvartaði sárlega undan óþolandi jákvæðum fóður. Hin börnin tóku undir þetta og settu allt traust sitt á móðurina. Það er alltaf sama sagan með þig, sagði konan. Þú sveiflast öfganna á mUli. Vepjulega skiptir þú þér ekki af neinu en nú hefurðu breyst í algeran nörd. Fyrr má nú vera. Þú varst þó skömminni skárri með- an þú lést mig um uppeldið. Æth það sé ekki best að hafa það eins og veriö hefur í nærri tuttugu ár. Eðlilegt ástand áný Nú tók ég stóran séns með kon- una, uppþvottafrumvarpið og alla sambúðina. Ég ákvað að vera já- kvæður og sagði: Það fer í taugam- ar á mér að þú skulir láta svona fyrir framan börnin. Benti aðeins á það sem ég var ósáttur við en ávítaði ekki konuna sjálfa. Hún umhverföist og sendi mér demb- una. Ég gleymdi bandaríska upp- eldisfræðingnum augnablik og kom að nokkmm vel völdum fúk- yrðum. Erfingjarnir kunnu vel að meta. Heimilislífið var aftur að verða normalt. Snautið þið inn í herbergin ykk- ar, hrópaði ég á börnin. Eigið þiö ekki að læra heima, letihaugamir ykkaf. Takið þið svo til í þessum grenjum ykkar. Þau brostu og gáfu móður sinni merki. Þetta hafði tek- ist. Pahbi var aftur orðinn eðlileg- ur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.