Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1992, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1992, Page 60
F R ÉTTASKOTIÐ 62 * 25 ® 25 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Augiýstngar - Áskrift - Dreifing: Sími 632706 LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992. Símtöl innanlands: Varaðvið23 prósent hækkun Veriö getur aö gjöld á símtölum innanlands hækki bráðlega um 23 prósent. Þetta skrifar Howard Jonas, forstjóri International Discount Telecommunications, IDT, fyrirtæk- isins í bréfi til DV. Eitt af tilefnum mögulegrar hækk- unar segir Jonas vera aö Póstur og sími æth sér aö vera samkeppnisfært viö hans fyrirtæki um ódýr milli- landasímtöl. Hins vegar ætli Póstur og sími að bæta sér það upp meö hærri innanlandsgjöldum. IDT- úthlutar viöskiptavinum sín- um sérstöku númeri í Bandaríkjun- um sem borgað er gjald af. Viðskipta- vinurinn hringir í þetta ákveðna númer og gefur upp það númer sem hann óskar eftir sambandi við. Síðan er hringt til baka í viðskiptavininn. IDT bendir á það í bréfi sínu að það bjóði meira en helmingi lægra gjald enPósturogsími. -IBS Vísitalan eróbreytt Vísitala framfærslukostnaðar í apríl er óbreytt frá í mars. Verðbólg- an í mars mælist því ekki samkvæmt útreikningum Hagstofu íslands. Engu að síöur hækkuðu nokkrir framfærsluhðir en á móti vega hðir sem lækkuðu. Meðal þess sem hækkaði í síðasta mánuði var rekstrarkostnaður bif- reiða, tannviðgerðir og orlofsferðir. Á hinn bóginn lækkaði matvöruverð og fjármagnskostnaður þannig að í heildina séð mældist ekki breyting á framfærslukostnaði heimilanna. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi- tala framfærslukostnaðar hækkað um 6,4 prósent. Undanfama þrjá mánuði hefur hún hins vegar ein ungishækkaðum0,3prósent. -kaa LOKI Þá verður mikið smurt! ÞRÖSTIIR 68-50-60 VANIR MENN Það þarf ekki að fara til Ríó til að finna karnivalstemningu í loftinu því að nú eru lokaársnemendur framhaldsskóla um borg og bý að dimittera hver um annan þveran og búningarnir gerast skrautlegri með hverju árinu. Á þessari mynd eru það ungmeyjar úr Kvennaskólanum sem taka lagið fyrir vegfarendur. DV-mynd GVA Húðáburður ci 500 manns - vegna kláðamaurssmitsins Eftir helgina munu ahir vist- menn og starfsfólk á elhheimihnu Grund gangast undir læknismeð- höndlun vegna kláðamaurstilfeha sem hafa komið upp á stofnuninni. Hér er um að ræða hátt i 300 vist- menn og um 200 starfsmenn. Auk þess verður óskað eför þvi að fiöl- skyldur starfsmanna og einhverjir vinir og vandamenn vistmanna gangist undir íyrirbyggjandi með- ferð. Hér er um að ræða tiltölulega einfalda meðferð. Að sögn lækna er höfuðatriði að allir hlutaðeig- andi séu meðhöndlaðir samtimis. Guðjón Lárusson, yfirlæknir á Grund, sagði við DV í gær að þeir einstakhngar á stofnuninni sem greindust með einkenni kláða- maursmits, þaö er með útbrot og kláöa, hafi jþegar verið meðhöndl- aðir. Hins vegar hefði verið ákveðið að grípa til fyrirbyggjandí aðgerða hjá öhum á stofnuninni eftir helg- ina. Læknismeðhöndlunin er gerð í samráði við húðsjúkdómasér- fræðinginn Bárð Sigurgeirsson. „í dag veit ég ekki af neinum vist- manni sem er sýktur. Ég veit held- ur ekki um neinn sýktan starfs- mann. Nú er búið að fara yfir þá deild sem þetta kom upp á. Við höfum útvegað lyf þannig að það sem gert verður nú eftir helgina er að hver einasta manneskja í húsinu og aht starfsfólk mun und- irgangast meðferð,“ sagði Guðjón. Guðjón sagði jaíhframt að Ijóst væri að fiölskyldur starfsmanna og einstaklingar tengdir vistmönn- um yrðu einnig að undirgangast meðhöndlun til að aðgerðimar bæru fuhnægjandi árangur. Eins og að framar greinir er læknismeðhöndlun gagnvart kláðamaur tiltölulega einfóld. Áburður er borinn á líkamann og látinnveraáum!2stundir. -ÓTT Meiri niðurskurð skóla næsta ár „Ég boða enn frekari niðurskurð í skólakerfinu á næsta ári. Ég boða, að við séum ekki búnir að ná settu marki en séum með stærra vanda- mál fyrir framan okkur heldur en við reiknuðum með í fyrra þegar við settum okkar markmið um tveggja ára prógramm til að ná tökum á þessu," sagði Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra. Aðspurður hversu mikið þyrfti að skera niður í skólakerfinu á næsta ári, til viðbótar við það sem þegar hefði verið skorið, kvað Ólafur það ekki ljóst. „Við vitum bara að við erum að glíma við sex milljarða heildardæmi," sagði hann. Ólafur var beðinn um skýringu á þeirri stefnubreytingu að skera einn- ig niður í skólakerfinu á næsta ári. Yfirlýst stefna hefði verið sú að skera einungis niður í ár og sú skerðing fengist til baka á næsta ári. „Eg hef sagt að ég hef tímabundnar heimildir th að skerða vikulegan kennslutíma sem er samkvæmt lög- um. En ég hef jafnframt sagt að það gæti orðið að leita heimilda í haust til áframhaldandi skerðingar á kennslutíma ef ekki er hægt að ná þessu niður annars staðar. Það er engin þversögn í því.“ Stjórn Kennarasambandsins segir að með þessu sé ljóst að Ólafur G. Einarsson æth sér ekki að standa við fyrri orð sín um að nemendur fái á næsta ári þann skólatíma sem grunnskólalög kveða á um. „Stjórn Kennarasambandsins minnir á að allt frá því hugmyndir ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir í ríkisfiármálum komu fyrst fram hef- ur menntamálaráðherra margsinnis lýst því yfir, í fjölmiðlum, á opnum fundum, og á fundum meö stjórn Kennarasambandsins aö hér væri eingöngu um tímabundnar ráðstaf- anir aö ræða,“ segir í ályktun kenn- ara. -kaa/JSS Veðrið á sunnudag og mánudag: Frost fyrir norðan og hlýrra fyrir sunnan Á sunnudag verður austlæg átt á landinu. Skýjað verður og dálítil snjókoma eða rigning með köflum víða um land. Vægí frost verður norðanlands en 1 til 5 stiga hiti syðra. Á mánudag veröur noröaustlæg átt. Dálítil él verða norðanlands en þurrt og bjart verður um sunnanvert landið. Hiti verður 2 th 4 stig sunnanlands að deginum en annars vægt frost.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.