Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1992, Page 18
18
Veiðivon
Verðlaunahafarnir á árshátíð Strauma með bikarana sína: Hans Kristjánsson, Jón Pétursson, Magnea Hjálmarsdóttir, Helgi Eyjólfsson, Garðar Örn
Dagsson og Jón Arnar Jónsson. DV-mynd G.Bender
Veiðifélagió Straumar
veitti sjö glæsilega bikara
Veiðifélagiö Straumar, sem leigir
Reykjaéalsá í Borgarfirði og Lang-
holt í Hvítá í Árnessýslu, hélt árshá-
tíö sína fyrir skömmu. Þar voru veitt
verðlaun fyrir stærstu fiskana á
vatnasvæöi þeirra.
Þeir sem fengu verðlaun að þessu
sinni voru Hans Kristjánsson og Jón
Pétursson en þeir veiddu sinn 20
punda laxinn hvor í Reykjadalsá þar
sem allir verðlaunafiskcunir komu á
land þetta árið. Laxana veiddu þeir
félagar á maðk. Stærsta flugulaxinn,
17 punda, veiddi Helgi Eyjólfsson.
Stærsta silunginn, 3 punda urriða,
veiddi Jón Arnar Jónsson á flugu.
Stærsta barnalaxana, 5,5 pund,
veiddu Garðar Öm Dagsson á maðk
og Jón Arnar Jónsson, 5,5 pund, á
maðk líka. Stærsta laxinn, sem frú í
veiðifélaginu Straumum veiddi, fékk
Magnea Hjálmarsdóttir, 10,5 punda
fisk á maðk. Kolbeinn Ingólfsson
veitti verðlaunin fyrir hönd
Strauma.
Yfir hundrað veiðimenn og konur
mættu í hófið þar sem einn af land-
eigendum við Reykjadalsána, Flosi
Ólafsson leikari, flutti snilldarræðu
og kitlaði svo sannarlega hláturtaug-
ar veislugesta.
-G.Bender
Hvammsvík í Kjós:
Opið alla páskana
Veiðimenn á öllum aldri hafa komið
í Hvammsvík í Kjós á undanförnum
árum. DV-mynd G.Bender
Það styttist í að veiðisvæðið í
Hvammsvík í Kjós verði opnað aftur
en eins og veiðimenn rekur minni til
sluppu allir fiskamir út úr vatninu
fyrr í vetur.
„Við vorum að setja regnbogasil-
ung í vatnið og þar eru á milli 5 og
10 þúsund fiskar núna,“ sagði Óskar
Bjartmarz í vikunni í samtah við DV.
„Við ætlum að opna á skírdag og
hafa opið alla páskana fyrir veiði-
menn á ölium aldri. Flestir eru fisk-
amir eins og tveggja punda. Það
kostar 2000 krónur og fyrir þær má
veiða 4 fiska. Við höfum dýpkað
vatnið og hækkað garðinn við sjóinn
svo að fiskarnir ættu ekki að sleppa
oftar frá okkur. Við eigum von á
mörgum veiðimönnum til okkar um
páskana því aö mikið hefur verið
spurt hvenær við ætluðum að opna
aftur,“ sagði Óskar ennfremur.
-G.Bender
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992.
Þjoðar-
ManaKandada
Hópur íslenskra stúdentsefna
hélt einhveiju sinni í skemmti-
ferð til Nýju-Delhi á Indlandi.
Fyrsta kvöldið í hinni ind-
versku borg héldu þeir inn á veit-
ingahús sem þeir hugðu að byði
upp á ódýran mat Ekki vom þeii*
fyrr sestir til borðs en þjónn kom
þar aðvifandi með matseðilinn
sem, því miður fyrir íslending-
ana, var ritaður á indversku. Er
þeir höfðu vht matseðilinn „vel"
fyrir sér, ákváðu þeir að panta
það sem stóð letrað stórum og
feitum stöfurn neðst á matseölin-
um. Kölluðu þeir því í þjóninn
og bentu honum kurteislega á
réttinn sem þeir vildu fá.
Þjónninn benti þeim þá á að
Mana Kandada væri því miður
bara nafhið á yfirmatsveini veit-
ingahússins og stæði engum gest-
um til boða að snæða hann.
Með hattinn
Farandsali kom eitt sinn að
bóndabæ í Ámessýslu og spuröi
bóndakonuna, sem stóð í hlað-
varpanum, hvort bóndinn væri
heima.
„Jú, hann er hinum megin viö
{jósið að laga fulgahræðuna,"
svaraði bóndakonan. „Þú kemur
strax auga á hann ef þú ferð fram.
hjá fjósinu. Það er hann sem er
með græna hattinn.
Kaldar syndir
og heitar
Prestur nokkur flutti eitt sinn
erindi i útvarpi og talaði af eld-
móði um kaldar og heitar syndir.
Kunningi séra Bjarna, þáver-
andi .dómkirkjuprests, spurði
hann hvað presturinn hefði eigin-
lega átt við með því aö sumar
syndir væru kaldar en aðrar heit-
ar.
„Við verðum vist að geta okkur
til um það,“ svaraði Bjami á sinn
hógværa hátt „En ætli hann hafi
ekki átt við að það séu kaldar
syndir sem drýgöar eru fyrir utan
giugga en heitar þær sem drýgðar
eru fyrir innan glugga."
Finnur þú fimm breytingai? 150
Geturðu ekki sagt eitthvað skemmtilegt við lækninn, hann er svo skelfi- Nafn:......
lega áhyggjufullur vegna þín.
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriöum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: SHARP stereo
ferðaútvarpstæki með kas-
settu að verðmæti kr. 6.380 frá
Hljómbæ, Hverfisg. 103.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr
3.941.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Á elleftu stundu, Falin
markmið, Flugan á vgggnum, Leik-
reglur, Sporlaust. Bækumar eru
gefnar út af Frjálsri íjölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 150L
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavik
Vinningshafar fyrir hundrað
fertugustu og áttundu getraun
reyndust vera:
1. Emma Dröfn Friðriksdóttir
Mávabraut 15a, 230 Keflavík
2. Stefanía Árnadóttir
Hátúni 7, 735 Eskifirði
Vinningarnir verða sendir
heim.