Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992.
Fréttir
Saltfiskútflutningur gefinn frjáls:
Nær 60 ára gamalt bréf
Ólafs Thors afturkallað
„Eg sel það ekki dýrara en ég keypti
það, en mér er sagt af lærðum mönn-
um að sérleyfi Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda eigi rætur
sínar að rekja aftur á fjórða áratug-
inn. Upphaflega hafi átt að lögbinda
það með bráðabirgðalögum en þau
bráðabirgðalög hafi aldrei verið stað-
fest. Þess í stað hafi Ólafur Thors
skrifað bréf og veitt sérleyfið. Mér
finnst að SÍF ætti aö vera með það
rammað uppá vegg. Ég hef hins veg-
ar aldrei nálgast þessa sögulegu
heimild svo að ég fengi að sjá bréfið.
Þessi gjömingur nú er því í raun í
því fólginn að afturkalla þetta lett-
ersbréf," sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, ráðherra utanríkisvið-
skipta, í gær þegar hann tiikynnti
um að saltfiskútflutningur yrði gef-
inn frjáls um næstu áramót.
í þeirri reglugerð, sem Jón Baldvin
hefur gefið út, er allur útflutningur
gefinn frjáls með þremur undantekn-
ingum. Afram þarf leyfi fyrir útflutn-
ingi á ísfiski, grásleppuhrognum og
síld. Það er að segja staða Síldarút-
vegsnefndar er óbreytt en hún þarf
að samþykkja leyfi manna til síldar-
Pósturogsími:
Á að skera nið-
urum175
milljónir 1993
„Okkur er gert að draga saman
seghn og skera niður um 175 milljón-
ir króna á næsta ári. Rekstrarútgjöld
hjá okkur eru 5-6 milljarðar á ári,“
sagði Þorgeir Þorgeirsson, yfirmaður
framkvæmdasviðs Pósts og síma.
Stofnuninni er gert að skila 940 millj-
ónum króna í ríkissjóð á þessu ári,
svo og hinu næsta. Til að mæta því
hafa póstburðargjöld verið stór-
hækkuð og er hækkunin mest 218%.
Þorgeir sagði að nú væri verið að
athuga hvar hægt væri að skera nið-
ur. Hann byggist við því að niður-
skurðurinn lenti a.m.k. að einhverju
leyti á viðhaldi húsa.
„En það liggur ekki fyrir fyrr en
eftir nokkrar vikur hvar þetta kemur
niður,“ sagði Þorgeir. „Við erum að
hugaaðþessummálumnúna." -JSS
Atvinnuleysis-
tryggingasjóður
fjármagnarstörf
í Keflavík
Keflavikurbær fær greitt úr At-
vinnuleysistryggingasjóði til að bæta
atvinnuástandið í bæjarfélaginu.
Talið er að fjármunirnir nægi til að
útvega allt að 70 manns vinnu út
árið. Peningana á aö nota til að skapa
ný störf og koma á fót starfsemi sem
ekkierþegartilstaðar. -kaa
Venesuela
-töfrandiland
Fegurö Venesuela er grunntónn
ljósmyndasýningar sem verður opn-
uð f Perlunni á sunnudag klukkan
16. Sýning þessi hefur farið milli
margra borga í heiminum og var síð-
ast á Ítalíu, Spáni og í Bandaríkjun-
um. Sýningin er tengd opnun ræðis-
mannsskrifstofu Venesuela á íslandi
og stendur fram til laugardagsins 21.
nóvember.
útflutnings.
Jón Baldvin sagði að ástæða þess
að útflutningur grásleppuhrogna
væri enn háður leyfum væri sú að
sjávarútvegsráðuneytið hefði óskað
eftir þvi. Varðandi Síldarútvegs-
nefnd væri það að segja að hún er
til samkvæmt lögum og heyrir undir
sjávarútvegsráðuneytið. Ástæða
þess að ísfiskur, eða heill fiskur, er
háður útflutningsleyfum er að skapa
atvinnuílandinu. -S.dór
(jZasuii/
Heimilistæki til innbyggingar
Itölsk framleiðsla sem sameinar óskir nútímafólks
um útlit, gæði og óreiÖanleika.
TRÍÓ
Helluborð,
bökunarofn og
uppþvottavél,
allt í einu tæki.
Veggofn
Meö ytri kælinau,
stillanlegri klukku
til aö kveikja eöa
slökkva á ofninum.
Ofnar
Undir borÖ meö
stjórnborö fyrir hellur.
Fleiri geröir.
'■i a sy &
3
Uppþvottavél
Falleg lausn jsegar
byggja á vél inn í
innréttingu.
6 þvottakerfi
18 mínútna hraðþvottur.
Rofaborð
Fyrir venjulegar hellur
eða keramik-hellur.
60 cm breitt,
Ijóst eða dökkt.
B
Kseli- og
frystiskápar
Margar stærðir
/°g gerðir
l
Helluborð
2 venjulegar hraðhellur
eöa gashellur með
elektrónískri neistakveikju.
Hægt að fá hvíft lok.
Helluborð
4 venjulegar hellur,
innbyggt rofaborð.
Kseli- og
frystiskápar
Margar stærðir
og gerðir.
PFAFF
Verslunin PFAFF hf.
Borgartúni 20
105 Reykjavík
Sími 62 67 88
ÍSLENSKUR BÆKLINGUR OG VERÐLISTI