Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Blaðsíða 40
52
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992.
Karlakórinn Hekla frumsýnd í desember:
Frábært að vinna
með grínlandsliðinu
- segja hressir áhugaleikarar úr Mosfellsbæ sem fengu hlutverk í bíómyndinni
„Ætli ástæðan fyrir því að við
vorum valin í þessi hlutverk sé
ekki sú að Guðný Halldórsdóttir,
leikstjóri myndarinnar, er héðan.
Hún er einnig félagi í leikfélaginu
og sumir hafa verið áður í myndum
hjá henni,“ sögðu þeir Jón Sævar
Baldvinsson, Lárus Jónsson og
Grétar Snær Hjartarson í samtali
við helgarblaðið. Þeir félagar eru
allir meðlimir Leikfélags Mosfells-
bæjar og eyddu hluta sumarsins í
leik í nýrri íslenskri bíómynd,
Karlakómum Heklu. Alls tóku
flórir leikarar frá leikfélagi Mos-
fellsbæjar þátt í ævintýrinu en sá
fjórði var Birgir Sigurðsson.
„Þetta er ákaflega gamansöm
mynd um ferð karlakórs til Sví-
þjóðar og Þýskalands. Það er mikið
sungið í myndinni og meðal ann-
arra koma fram söngkonumar
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Ragn-
hildur Gísladóttir. Kristján Jó-
hannsson átti að koma fram í
myndinni en ekki varð úr því svo
að Garðar Cortes kom í hans stað,“
sagði Grétar Snær.
Kvikmyndin byggist á skemmti-
ferð kórsins. „Stjórnandinn, sem
leikinn er af Agli Ólafssyni, týnist
í upphafi ferðar sem heftir þó ekki
fór kórsins," segir Jón Sævar og
hlær. „Kórinn heldur tónleika sem
ganga upp og ofan en það gerir
þetta allt saman skemmtílegra."
„Löng" sigling
Karlakórinn Hekla sigldi frá
íslandi með skemmtiferðaskipinu
Baltiku. „Leyndarmálið er að við
sigldum einungis upp á Akranes,"
segja þeir félagar og skemmta sér
konunglega yfir endurminningum
ferðarinnar. „Við félagamir úr
leikfélaginu höfðum ekki síst gam-
an af þessu öllu vegna þeirra frá-
bæra grínista sem vora með í fór-
inni. Vegna þess að kvikmyndataka
er venjulega 90 prósent bið og 10
prósent upptaka upplifðum við
daginn þannig að fara í morgun-
verð og byija að hlæja og við sofn-
uðum hlæjandi á kvöldin," segir
Grétar. „Þrátt fyrir skemmtileg-
heitin var þetta auðvitað stíf vinna.
Við máttum aldrei fara frá,“ heldur
hann áfram.
Þeir grínistar sem vora með í
ferðinni vora meðal annarra Laddi,
Magnús Ólafsson, Öm Ámason og
Sigurður Sigurjónsson. Upptökur
fóra fyrst fram hér á landi í þijár
vikur en síðan fiórar vikur í Sví-
þjóð og Þýskalandi. „Við vorum
fyrst í Simrishamn í Suður-Svíþjóð.
Þaðan fórum við til Þýskalands og
meðal annars var bænum Blanken-
burg lokað meðan á upptökum
stóð. Þar var t.d. kjötbúð breytt í
blómabúð," segir Jón Sævar. Þeir
félagar telja að myndin hafi kostað
í vinnslu um 120 milijónir króna
en hún verður frumsýnd 19. des-
ember.
Ánægjulegt samstarf
Þeir tefia það mikla upphefð fyrir
leikara hjá litlu áhugamannaleik-
húsi að fá að spreyta sig í gerð
kvikmyndar. „Þetta víkkar óneit-
anlega sjóndeildarhringinn. Það er
líka mjög ánægjulegt að fá að kynn-
ast og vinna með atvinnuleikur-
um,“ segir Grétar.
Leikfélagið í Mosfellsbæ hefur á
undanfómum árum sett upp hin
ýmsu verk. Um þessar mundir er
Þeir skemmtu sér konunglega, áhugaleikararnir úr Mosfellsbæ, Grétar Snær, Jón Sævar og Lárus, þegar þeir rifjuðu upp ferðalagið i sumar
með Karlakórnum Heklu. Á myndina vantar fjórða leikarann, Birgi Sigurðsson. Kvikmyndin verður frumsýnd eftir tæpan mánuð.
DV-mynd Brynjar Gauti
Stund milli stríða. Garðar Cortes, Sigurður Sigurjónsson, Gestur Einar Ragnhildur Gisiadóttir söngkona stumrar yfir Garðari Cortes.
Jónasson og Laddi.
leikfélagið að sýna Innansveitar-
króniku Halldórs Laxness. „Það er
þónokkur leiklistaráhugi í bænum
en við vildum auðvitað að fleiri
kæmu á leiksýningar hjá okkur.
Ætli það sé ekki einn fiórði af bæj-
arbúum sem koma á sýningar. Það
er nokkur munur frá því sem var
áður þegar íbúafiöldi bæjarins skil-
aði sér tvöfalt á leiksýningar,“ seg-
ir Jón Sævar. „Þá var auðvitað
minna um að vera í bænum."
„Það er harður kjami fólks sem
hefur unnið hörðum höndum við
leikfélagið hér en það hefur sjálffc
haft ipjög gaman af starfinu. Núna
era um þrjátíu manns sem starfa
við leikhúsið.“
Grétar Snær hefur verið í leikfé-
lagi Mosfellsbæjar frá því hann
flutti í bæinn árið 1978. Hann hafði
áður búið á ísafirði og starfað í leik-
félaginu þar. Jón Sævar segist hafa
slysast í leikfélagið þegar hann tók
aö sér að endurskoða reikninga.
Síöan hefur hann verið formaður
félagsins.
Margtskondið
Jón Sævar segir að margt skond-
ið hafi komið upp í ferðinni. Leikar-
ar urðu til dæmis aö vera í grænum
sloppum nær alla daga þar sem
ekki mátti óhreinka búninga sem
vora stuttbuxur, skyrtur og bindi.
„Fólk varð oft undrandi þegar það
sá alla þessa karlmenn klædda
stuttbuxum og í grænum sloppum.
Við vorum eins og vitleysingar sem
vora nýsloppnir út,“ segja þeir. í
þessari múnderingu ferðuðumst
við marga daga.
„Það var óskaplega gaman að fá
að kynnast öllu því sem fylgir þeg-
ar kvikmynd er tekin,“ segir Lár-
us. „Við vorum alltaf að læra eitt-
hvað nýtt. Svo var auðvitaö mikil
upplifun að starfa með uppáhalds-
leikurum sínum eins og Amari
Jónssyni og grínlandsliðinu. Ann-
ars blandaðist hópurinn mjög vel,
áhugaleikarar og atvinnumenn,“
segir Láras.
Þeir félagar era sammála um að
þeir viidu gjarnan taka þátt í slíku
ævintýri aftur. „Sérstaklega vildi
maður vinna aftur með þessu sama
fólki,“ segir Grétar Snær. Hann
hefur áður tekið þátt í kvikmynda-
leik er hann kom fram í bíómynd-
inni Stella í orlofi þar sem hann
var í Lionsklúbbnum Kidda.
Að sögn Jóns Sævars kemur það
ekki ósjaldan fyrir að leikfélagið
er fengið í hóptökur og svo var
reyndar einnig í þessari mynd.
Ekki er fyrirhugað nein slík vinna
á næstunni en þeir félagar efast
ekkert um að eftir frumsýningu á
kvikmyndinni Karlakórinn Hekla
munu tilboðin streyma í Mos-
fellsbæinn.
-ELA
Egill Ólafsson þurfti aö vera skitugur um hendur en hann starfar í tívólíi
í myndinni.
Magnús Olafsson, ábúðarmikill, enda
frá Hveragerði.
leikur hann listamann sem kemur