Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBRR 199.2.
Svipmyndin
Af hverri er svipmyndin?
Hún var lagleg, vel vaxin og með
silkimjúka húö.
Það var því ekki furða þótt hún
drægi að sér athygli ungra manna.
Þeir voru sífeUt á sveimi umhverfis
hana eins og flugur um sykurmola.
Þar að auki var hún vel gefin og
starfsöm. Með stuðningi fóður síns
hafði henni tekist að ljúka mennta-
skólanámi en síðan hóf hún nám í
félagsfræði og þótti standa sig best
allra nemendanna.
Það var vel af sér vikið.
Sú sem svipmyndin er af leit allt-
af björtum augum á tilveruna. Hún
hafði þegar hafnað tveimur ungum
mönnum þegar hún hitti væntan-
legan éiginmann sinn. Fundum
þeirra bar saman fyrir framan
matvöruverslun.
Maðurinn, sem hún hitti, var þeg-
ar orðinn kunnur í landi sínu. Þess
vegna átti sú sem hér er lýst erfitt
með að koma fyrir sig orði er hún
stóð augliti til auglitis við hann í
fyrsta sinn. Það kom þó sjaldan
fyrir að henni yrði orða vant.
Hann hreifst
afhenni
Hún hlýtur hins vegar að hafa
haft sterk áhrif á manninn fræga.
Næsta dag hringdi hann til hennar
og bauð henni til hádegisverðar.
Þau fóru á indverskt veitingahús
og báðu um karrírétt. Hann reynd-
ist einum of bragðsterkur fyrir þá
sem hér er lýst því hún var ekki
vön mikið krydduðum mat.
Meðan rann úr nefi hennar og
hún táraðist yfir réttinum skýrði
maðurinn handan við borðið henni
frá því að hann væri af konungs-
ætt. Nú væri hann lögfræðingur á
lítilli stofu sem hann ræki með fé-
laga sínum. Sú sem svipmyndin er
af vissi um sumt af því sem hann
sagði henni því að hún hafði lesið
um hann í blöðunum.
En áttu þau samleið? Hún var
bara tuttugu ára en hann þrjátíu
og sex ára! Aidursmunurinn var
sextán ár. Þar að auki var hann
fráskilinn. Þegar hann var ungur
hafði hann kvænst hjúkrunar-
konu. Þau hjónin höfðu eignast
þrjú böm áður en þau skildu.
Nú var enn einn maðurinn að
gera hosur sínar grænar fyrir
þeirri konu sem hér er lýst. En
þótt hann væri af konungsætt gat
lögfræðingurinn hvorki boðið
henni gull né græna skóga.
Þvert á móti virtist framtíö hans
afar ótrygg. Hann hafði sætt ákæru
og beið þess að koma fyrir rétt. Þar
að auki var lögreglan alltaf á hæl-
unum á honum. Og giftist sú sem
svipmyndin er af honum mætti
hún einnig búast við því.
Þrátt fyrir þetta játaðist hún hon-
um. í fyrstu hafði henni fundist
mikið til þess koma að þekkja
svona kunnan mann. En síðar
hreifst hún af honum og draumum
hans um að hjálpa þjóð sinni.
En þótt hún heföi gefið honum
jáyröi var ekki víst að af brúökaupi
yrði. Faðir hennar yrði að sam-
þykkja ráðahaginn.
Hann ákvað að sýna andstöðu
þegar dóttir hans kom til að segja
frétirnar. Hann átti erfitt með að
skilja að dóttir hans vildi giftast
manni sem væri í þann veginn að
koma fyrir rétt og færi ef til vill í
fangelsi. Hvers vegna hafði hún
ekki heldur játast öðrum af ungu
mönnunum tveimur sem höfðu
áður sýnt henni svo mikinn áhuga?
Vikulöng
brúðkaupsveisla
Með aðstoð stjúpmóður sinnar
tókst dótturinni að telja fööur sinn
á að leyfa að hún gengi í hjóna-
band. Faðirinn vissi líka aö dóttirin
var gædd jámvilja og því yrði þýö-
ingarlaust að streitast á móti eftir
að hún var búin að taka sína
ákvörðun.
í mörgum löndum er það enn til
siðs að brúðurin komi með heiman-
mund. Með þjóð þeirrar sem svip-
myndin er af ríkir annar siður. Þar
á brúðguminn að færa verðandi
tengafóður gjöf. Venjulega er um
að ræða kýr.
Algengast er að kýrnar séu tíu.
En eigi brúðurin virta foreldra og
sé sérstökum eiginleikum gædd
getur verðið oröið allmiklu hærra.
Eftir prútt,. sem stóð í marga
daga, náðist samkomulag um það
hve mikils virði sú sem hér er lýst
væri. Hún heldur því hins vegar
fram enn'þann dag í dag að hún
hafi aldrei komist að því hve hátt
verð faðir hennar setti upp fyrir
hana.
14. júní 1958 var unga fólkið gefið
saman í meþódistakirkjunni í Biz-
ana. Brúðurin var klædd hvítum
kjól úr satíni og með hvítt slör.
Eftir athöfnina settust gestimir inn
í fólks- og langferðabíla og var ekið
til Mbongweni en þar skyldi hefð-
bundin brúðkaupsveisla fara fram.
Voru sumir gestanna þar í heila
viku, nutu veitinga og dönsuðu og
sungu.
Sú sem svipmyndin er af og mað-
ur hennar tóku þátt í hátíðahöld-
unum í fjóra daga. Síðan kvöddu
þau gestina og héldu heim í hús
sitt sem var númer 8115 við götu
sem hafði ekkert nafn.
Nú er sú sem svipmyndin er af
skiiin við mann sinn sem er heims-
frægur fyrir langa og erfiða baráttu
sína. Því miöur flæktist hún í
morðmál sem vakti mikla athygli
og varð til þess að þau hjón slitu
sambúðinni. Bendir margt til að
málareksturinn hafi gert stöðu
hennar aðra og verri en hún var.
Hver er hún?
Lausnin er á bls. 64
Matgæðingur vikuimar__pv
Ýsa í gráðostasósu
„Ég borða mikinn fisk og hef
prófað mig áfram með fiskrétti.
Komst upp á lagið þegar ég bjó ein
í Reykjavík. Það er nefnilega mjög
fljótlegt að laga svona fiskrétt,"
segir Guðrún Markúsdóttir á bæn-
um Langagerði í Hvolhreppi en
hún er matgæðingur vikunnar. Þó
Guðrún búi ekki í sjávarplássi
reynir hún að ná í nýjan fisk þegar
hann gefst. Hún sagði að mjög gott
væri að nota rauðsprettu í þennan
rétt en þar sem hún fæst ekld alltaf
í kaupfélaginu er ýsan notuð. „Fólk
getur auðvitað notað hvaöa fisk
sem það vill eða blandað saman
tegundum, það fer eftir smekk
hvers og eins,“ segir Guðrún og
bætir við að til hátíðabrigða megi
vel strá rækjum yfir réttinn í lokin.
Það sem þarf
500 g fiskur, rauðspretta eða ýsa
rúmlega hálfur dl mysa
2 '/% - 3 dl rjómi
50 g gráðostur
2 marin hvítlauksrif
3 gulrætur - sneiddar eftir endi-
löngu
salt eftir smekk
Aðferð
Fiskurinn er skorinn í hæfilega
bita. Gulræturnar eru gljáöar í
smjöri á pönnu þannig að þær hitni
í gegn. Mysunni heflt yfir og gráð-
ostabitar settir út í. Þá er tjóman-
um bætt í ásamt hvítiauknum og
sósan látin þykkna.
Fiskbitunum er síðan raðað á
pönnuna og látnir sjóða stutta
Guðrún Markúsdóttir, matgæðingur vikunnar.
DV-mynd Svavar Friðleifsson, Hvolsvelli
stund en þeim er snúið varlega við
áður en þeir verða alveg hvítir. Þá
er pannan tekin af hitanum, lokið
sett á hana og fiskurinn látinn
mafla þannig í tvær til þrjár mínút-
ur.
Þá er rétturinn borinn á borð
ásamt soðnum kartöflum, sítrónu-
bátum og fersku hrásalati.
Guðrún ætiar að skora á Guðna
Einarsson fjölmiðlafræðing að
verða næsti matgæðingur. „Hann
er mikill sælkeri og góöur kokk-
ur,“ segir hún.
-ELA
Hinhliðin
Sleppí millinafn-
inu þessa dagana
- segir Steinn Ármann Magnússon leikari
Steinn Armann Magnússon leik-
ari hefur getið sér gott orð fyrir
hlutverk Sveppa í kvikmyndinni
Veggfóður. Steinn Ármann hefur
þó fundið fyrir frægðinni á annan
hátt undanfarið. Það er nafn hans
sem hefur verið mjög í sviðsljósinu
eða öflu heldur nafni hans Stefáns-
son, svokaflaður kókaínmaður.
Steinn Armann segist einungis
kafla sig Stein Magnússon þessa
dagana til aö forðast frekari vand-
ræði. Annars er leikarinn önnum
kafinn við störf sín bæði í leiklist-
inni og með hljómsveitinni Kátum
piltum. Þá hefur hann verið að
reyna fyrir sér sem dagskrárgerð-
armaður á Aðalstöðinni. Það er
Steinn Magnússon sem sýnir hina
hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Steinn Ármann Magn-
ússon.
Fæðingardagur og ár: 28.10. 1964.
Maki: Jenný Berglind Rúnarsdótt-
ir.
Böm: Tumi Steinsson, 2ja mánaða.
Bifreið: Dodge Ramcharger, árgerð
1985.
Starf: Leikari og leikmyndasmið-
ur.
Laun: AUt of lítU.
Áhugamál: Tónlist, leikflst, fjail-
göngur og júdó.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Tvær tölur eru það
mesta sem ég hef fengið en ég spila
sárasjaldan.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að skemmta mér í góðra vina
hópi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
Steinn Ármann Magnússon leik-
ari.
gera? Umgangast leiðinlegt fólk.
Uppáhaldsmatur: Kjúklingaréttur
að hætti eiginkonunnar.
Uppáhaldsdrykkur: Egils gull.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Bjami Frið-
riksson.
Uppáhaldstímarit: Skýjum ofar -
blað sem er í innanlandsvélum
Flugleiða.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Naomi Campell.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Ég er á móti henni.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Marlon Brando.
Uppáhaldsleikari: Marlon Brando.
Uppáhaldsleikkona: Helga Braga
Jónsdóttir og Harpa Arnardóttir.
Uppáhaldssöngvari: Atli Geir Grét-
arson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Conan í Marwellblöðunum.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ráð undir
rifi hverju sem Sjónvarpiö sýnir á
mánudagskvöldum.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég er
andvígur því af pólitískum ástæö-
um.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Aðalstöðin.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Davið
Þór Jónsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég er ekki með af-
ruglara og horfi því meira á Sjón-
varpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Gunn-
ar Baldursson, leikmyndateiknari
Sjónvarpsins.
Uppáhaldsskemmtistaður: Borgar-
virki.
Uppáhaldsveitingahús: Kínahúsið í
Lækjargötu.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? FH.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefhi á að verða
betri leikari og betri í júdó.
Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég
tók mér ekkert sumarfrí í sumar
frekar en áður. Sumarið er há-
annatími hjá mér og það er frekar
á haustin sem maður getur tekið
sér frí.
-ELA