Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992. Ný ævintýri Warshawskis Vic Warshawski er kona, lög- fræöingur, einkaspæjari og sögu- hetjan í spennusögum banda- ríska rithöfundarins Söru Par- etsky. Guardian Angel er sjöunda bókin í röðinni. Eins og oft áður er upphaf þessa nýjasta viðfangsefnis Wars- hawskis á heimaslóðum. Til ná- granna hennar í húsinu, þar sem hún býr í Chicago, kemur mið- aldra fyllibytta til skemmri dval- ar. Hann lætur í það skína að hann viti eitthvað misjafnt um fyrirtæki sem nefnist Diamond Head og hann starfaöi hjá um hríð - eitthvað sem muni gera hann ríkan. Enginn tekur þetta raus alvar- lega fyrr en fyllibyttan finnst dauð í skurði. Warshawski telur andlát mannsins grunsamlegt og fer að rannsaka málið. Fljótlega kemur margt sérkennilegt í ljós. Þetta er vel skrifaður, skemmti- legur og spennandi reyfari eins og fyrri sögumar um Wars- hawski. GUARDIAN ANGEL. Höfundur: Sara Parelsky. Penguin Books, 1992. Eiturvopn gegn Vesturlöndum Abu Hassan er leiðtogi hóps hryðjuverkamanna. Markmið hans er að tryggja Palestínu- mönnum sigur í baráttunni fyrir sjálfstæðu ríki. Leiðin, sem hann velur, er hryðjuverk sem eiga að skapa ofsahræðslu á Vesturlönd- um og neyða ríkisstjórnir þar til að fallast á kröfur Palestínu- manna. Hassan skipuleggur samstarf ólíkra hryðjuverkahópa um að koma banvænu eitri fyrir í al- gengum matvælum í Bandaríkj- unum og víðar. Þegar óbreyttir borgarar vestra fara að deyja hroðalegum dauðdaga verður mikið umrót á Vesturlöndum og þrýstingur almennings á stjóm- völd að mæta kröfum hryðju- verkamannanna nær óbærilegur. Höfundur þessarar spennusögu er enskur blaðamaður sem hefur sérhæft sig í skrifum um hernað- armálefni. Sagan er spennandi og íjörleg. THE FINAL TERROR. Höfundur: James Adams. Penguln Books (Slgnet), 1992. Lífshætitulegt lögfræðiálit Tveir dómarar í Hæstarétti Bandaríkjanna eru myrtir. Þeir voru báðir á frjálslynda kantin- um. Fullvíst er talið að forseti landsins skipi harðsvíraða íhaldsmenn í þeirra stað og breyti þar með verulega stefnu Hæsta- réttar. Bandarísk lögregluyfirvöld leita árangurslaust að morðingj- unum en verður lítið ágengt, enda ljóst að um atvinnumenn var að ræða. En hver réð þá til starfans? Ungri stúlka, sem er snjall lög- fræðistúdent, dettur í hug að á bak við verkið standi einhver sem eigi mikið undir því að Hæstirétt- ur dæmi „rétt“ í framtíðinni. Eft- ir ítarlega athugun finnst henni auðkýfingur nokkur líklegur. Um þetta skrifar hún álitsgerð sem berst til lögreglunnar og Hvíta hússins í Washington og fljótlega er reynt að ráða hana af dögum. Þetta er spennandi og læsileg saga eftir nýjasta metsöluhöfund- inn vestra, lögfræðinginn John Grisham, sem sló í gegn með spennusögunni The Firm. THE PELICAN BRIEF. HÖFUNDUR: John Grisham. Island Books, 1992. Erlend bóksjá Leitinað samrunanum Þann 23. mars árið 1989 til- kynntu tveir vísindamenn, Stan- ley Pons og Martin Fleischmann, að á tilraunastofu sinni hefðu þeir framkallað svokallaðan samruna í vatni við venjulegan stofuhita. Fréttin vakti gífurlega athygh um allan heim, enda á samruni að leiða af sér nánast óendanlega ódýra orku. Það var mikið í húfi og vísinda- menn víða um heim fóru strax að kanna málið og reyna aö end- urtaka tilraunina. Brátt kom í ljós að það gekk ekki. Frank Close er í senn vísinda- maður og rithöfundur. Hann nýt- ir reynslu sína á báðum sviðum til að rekja sögu þessa máls á greinargóðan og áhugaverðan hátt. Hann segir frá tilrauninni, sem vísindamennirnir tveir héldu aö hefði leitt til samruna, og gífurlegri samkeppni milli vís- indamanna og stofnana um að verða fyrstir til að finna réttu aðferðina við samruna - og þar með gullnámu. Þetta er læsileg frásögn og spennandi eins og góður reyfari. TOO HOT TO HANDLE. Höfundur: Frank Close. Penguln Books, 1992. Á efsta tindinn eftir langa göngu Dulce Maria Loynaz, 89 ára að aidri, hlaut hin eftirsóttu Cervantesverðlaun í ár. „Nú er ég á tindinum,“ sagði hún við blaðamenn eftir að úrslitin lágu fyrir. Símamynd Reuter Betra er seint en aldrei. Það á við um Dulce Maria Loynaz. Þessi kúb- anska skáldkona er orðin áttatíu og níu ára gömul. Og á þessu nítugasta aldursári hlotnast henni loksins sá heiöur að fá eftirsóttustu bók- menntaverðlaun spænskuritandi höfunda, þau sem kennd eru við spænska þjóðskáldið Cervantes. „Hugsið ykkur hversu lengi ég hef beðið eftir þessum verðlaunum. Ég hefði getað dáið án þess að fá þau. En Guð vildi annað og hér er ég, til- búin að gefa ráð og leiðbeina þeim sem þess þurfa, ef ástæða þykir til,“ sagði Loynaz í viðtali við blaöamenn eftir að úrslitin voru tilkynnt. Hún sagöi að sér liði eins og hún væri loksins komin á hæsta tind fjalls eftir langa og erfiða göngu. „En nú er ég hérna á tindinum og get farið að hvíla mig,“ bætti hún við. Loynaz varð kunn fyrir skáldverk sín á fjórða og fimmta áratugnum. Sjálf segist hún ánægðust með „Sum- ar á Tenerife" sem lýsir dvöl hennar á Kanaríeyjum þar sem eiginmaður hennar sálugi var fæddur. Hún hefur alla tíð búið á Kúbu og ekki farið út fyrir landsteinana síðan árið 1958 þegar Kastró komst til valda í byltingu. Á yngri árum heim- sótti hún Spán og það var ofarlega í minningunni núna þegar Spánverjar höfðu veitt henni Cervantesverð- launin. „Mér finnst ég vera ung aftur eins og þegar ég fór til Spánar," seg- ir hún. Hún kynntist ýmsum spænskum skáldum á fyrri árum, svo sem Fred- erico Garcia Lorca, Juan Ramon Jimenez og Gabrielu Mistral. Hún sagði þó að Garcia Lorca, sem heim- sótti Kúbu árið 1929, heföi frekar vilj- að hafa samneyti við bræður sína. „Hann gerði grín að ljóðum mín- um,“ segir hún. Hvaða ráð gefur hún ungum skáld- um? „Fyrst og fremst að læra þolin- mæði,“ svarar hún að bragði, „vegna þess að ritstörf eru mikið þolinmæð- isverk." Goncourt-verðlaunin Önnur eftirsótt bókmenntaverð- laun voru tilkynnt í vikunni, Prix Goncourt í Frakklandi. Þau hlaut að þessu sinni Patrick Chamoiseau sem er frá eyjunni Martinique í Karíbahafinu. Höfund- ar frá þeim heimshluta virðast því í miklu uppáhaldi sem stendur hjá þeim sem veita bókmenntaverðlaun, en þess er skemmst að minnast að Derek Walcott frá eyjunni St. Lucia fékk Nóbehnn í ár. Goncourt-verðlaunin eru veitt fyrir skáldsöguna Texaco. Þetta raunsæis- verk er nefnt eftir risavöxnu banda- rísku olíufyrirtæki með sama nafni. Sagan gerist í lítilli byggð á Mart- inique og lýsir baráttu innfæddra gegn yfirgangi erlenda auðhringsins. Söguhetjan er skipulagsfræðingur, Christ að nafni, sem Texaco sendir til héraðsins til að skipuleggja þar nýtt stóriðnaðarsvæði. Honum snýst hins vegar hugur á staðnum og hefur baráttu gegn fyrirhugaðri stóriöju til varnar hefðbundnum lífsháttum fólksins. Tíu menn sitja í dómnefnd Gon- court-verðlaunanna. Sjö þeirra greiddu Texaco atkvæði. Einn þeirra sagði skáldsöguna að vísu langa og oft erfiða yfirferðar en málið væri auöugt og litríkt. Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Stephen King: NEEDFUL THINGS. 2. Slephen Fry: THE LIAR. 3. Calherine Cookeon: THE RAG NYMPH. 4. Frederic* Forsylh THE OECEIVER. 5. Joanna Trollope: THE RECTOR'S WIFE. 6. Dirtt Ðogarde: JERICHO. 7. Ellzebeth Jane Howord MARKING TIMÉ. S. Marhn Amls: TIME'S ARROW. 9. Ruth Rendell: KISSING THE GUNNER'S DAUGHTER. 10. Sara Paretsky: GUARDIAN ANGEL. Rit aimenns eðlis: 1. Peter Mayle: TOUJOURS PROVENCE. 2. Robert M. Plrslg: LfLA: AN INQUIRY tNTO MORALS- 3. THE SECRET DIARY OF JOHN MAJOR AQED 47%. 4. Peter Mayle: A YEAR IN PROVENCE. 5. John Pilger: DISTANT VOICES. 6. Ranulph Flcnnes: THE FEATHER MEN. 7. Míchael Palin: AROUND THE WORLD IN 30 DAYS. 3, Mark Tully: NO FULL STOPS IN INDIA. 9, Slmon Mayo: FURTHER CONFESSIONS. 10. Bill BryBOn: NEITHER HERE NOR THEHE. (Byggt á The Sunday Times) Bandartkin Skáldsögur: 1. V.C. Andrews: MIDNIGHT WHISPERS. 2. John Grlshanv: THE RRM. 3. Jonathan Kellerman: PRIVATE EYES. 4. Barbara Taylor Bradlord: REMEMBER. 5. Alexandra Rlpley: SCARLETT. 6. Norman Maclean: A RIVER RUNS THROUGH IT. 7. Catheríne Coulter: THE HELLION BRIDE. 8. Oanielle Steel: NO QREATER LOVE. 9. John Griaham: A TIME TO KILL. 10. Dean Koontz: HIDEAWAY. 11. Jane Smíley; A THOUSAND ACRES. 12. Norman Maclean: A RIVER RUNS THROUGH IT. 13. Anne Tyler: SAINT MAYBE. 14. Jameá Fenimore Cooper: THE LAST OF THE MOHICANS. 15. L. A. Grat: DEATH COUNT. Rit almenns eðlis: 1. Ro»8 Perol: UNITED WE STAND. 2. Malcolm X & Ale* Haley: THE AUTOBIOGRAPHY OF MALCOLM X. 3. B. Cllnlon S A. Gore: PUTTING PEOPLE RRST. 4. Suean Faludi: BACKLASH. 5. D.L. Barlatt & j.b. steele: AMERICA: WHAT WENT WHONG? 6. Erma Bombeck: WHEN YOU LOOK LIKE YOUR PASS- PORT PHOTO, IT'S TIMETO GO HOME. 7. Molly Ivlns: MOLLY IVINS CAN'T SAY THAT, CAN SHE? B. Martin L. Gross: THE GOVERNMENT RACKET. 9. Oeborah Tannen: YOU JUST DON'T UNDERSTAND. 10. M. Scott Peck: THE ROAD LESS TRAVELLED. (Byggt á New York Times Book Reviow) Danmörk Skáldsögur: 1 Bétty Mahmoody: FOR MIT BARNS SKYLO. 2. Froncesco Alberonl: FORELSKELSE OG KÆRLIGHED. 3. Mary Westcy: ET FORNUFUGT LIV. 4. Herb|org Waasmo: DINAS BOG. 5. Betty Mahmoody: IKKE UDEN MIN DATTER. 6. Erlk Fosnes Hansen: SALME VED REJSENS AFSLUTNING. 7. Laura ESqulvet: HJERTER I CHILI. 8. Jean M. Auel: REJSEN OVER STEPPERNE. 9. Pat Canroy: SAVANNAH. 10. Jorn Jonke Nlelsen: MIT ANDET LIV. (Byggt á Politiken Sondag) Umsjón: Elías Snæland Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.