Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992.
Veiðivon
Það er leiðinlegt að vera vísað heim
af svæöi þar sem maður hefur skot-
ið í mörg ár. DV-mynd GJJ
Það geta allir lært að kasta flugu
hjá góðum kennurum eins og í
Laugardalshöll og íþróttahúsi
Kennaraháskólans.
DV-mynd G.Bender
Rjúpnaveiðimenn:
Spila sig út
afborðinu?
Þó rjúpnaveiðin gangi vel þessa dag-
ana eru ýmsar blikur á lofti í þeim
veiðiskap. Fleiri og fleiri svæði eru
lokuð skotveiðimönnum á hverju ári
og þetta er skotveiðimönnum mikið
áhyggjuefni.
„Jú, það er rétt að okkur fmnst
rjúpnaveiðin hafa glæðst töluvert
eftir lélega byrjun. Rjúpan hefur lát-
ið sjá sig í ríkari mæli,“ sagði Sverr-
ir Sch. Thorsteinsson, varaformaður
og skotveiðimaður.
„Það er kannski ekki aðalmáliö
heldur allir staðirnir þar sem bannað
Margt
hægt að
geraí
veiði-
skapnum
Þótt vetur sé genginn í garð þarf
veiðimönnum ekki að leiðast. Hægt
er að æfa köst í íþróttahúsi Kenn-
araháskólans og Laugardalshöll-
inni á sunnudagsmorgun. Opin hús
eru að byija hjá veiðifélögunum og
veiði stunduð á einu og einu vatni
ennþá. Síðan eru góðar veiðisögur
frá sumrinu aldrei langt undan.
-G.Bender
hefur verið að skjóta rjúpur, eins og
á Þingvallasvæðinu. Það er hrein
della,“ sagði Sverrir ennfremur.
Hin seinni árin hefur fleiri og fleiri
svæðum verið lokað fyrir rjúpna-
veiðimönnum en aldrei eins og þetta
árið. Þetta finnst mörgum skotveiði-
manninum mjög hart.
„Ég held að þetta endi með ósköp-
um ef fleiri svæðum verður lokað því
skotveiðimönnum fjölgar árlega,"
sagði skotveiðimaður í vikunni en
honum var fyrir fáum dögum vísað
af svæði sem hann ætlaði að skjóta á.
„Ætli þetta verði ekki eins og í lax-
veiðinni, veiðileyfi verða seld á ijúpu
í framtíðinni. Ég held að við séum
að spila okkur út af borðinu. Við
verðum að gera eitthvað róttækt áð-
ur en illa fer. Hverjir eiga landið?"
sagði skotveiðimaðurinn ennfremur.
-G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Einkennin
Maður nokkur kom eitt sinn
inn á lögreglustöðina i Hafnar-
firði og tilkj'nnti hvarf konu sinn-
ar. Er lögreglumaðurinn hafði
hlustað á sögu mannsins spurði
hann hvort konan hefði einhver
séreinkenni.
„Já, hún talar mikið," svaraði
maðurinn þá.
Niður-
gangur
„Og hvenær tókstu svo eftir
þvi, Sigurjón minn, að þú værir
með svona heiftarlegan niður-
gang?,“ spurði læknirinn
áhyggjufullur.
„Ja, það var nú ekki fyrr en ég
tók reiðhjólaklemmumar af
skálmunum," umlaði Sigurjón
vandræöalega.
Heim-
kynnin
Prestur nokkur á Suðurlandi
var eitt sinn að hugga ekkju og
sagði þá meðal annars að óþarfi
væri að syrgja hinn látna um of
enda væri hann nú korninn til
betri heimkynna.
Þá sagði ekkjan hvassyrt:
„Á þetta að vera sneið til mín?“
Aumingja
tengdó
Elli: „Haim Nonni er alveg í
rusli þessa dagana."
Halli: „Nú, af hverju?"
Elh: „Hann gaf tengdamóður
sinni svo fallegan stól i afmælis-
gjöf en hún þvemeitar að leyfa
honum að stinga stólnum í sam-
band.“
Þeim fjölgar skotveiöimönnunum sem stunda rjúpnaveiði en svæðunum,
sem þeir mega skjóta á, fækkar. Þessu vilja skotveiðimenn snúa við.
DV-mynd GJJ
Finnur þú fimm breytingai? 179
Nafn:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: TENSAI ferðaút-
varpstæki með kassettu, að
verðmæti 5.220 krónur, frá
Sjónvarpsmiðstöðinni, Síðu-
múla 2, Reykjavík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækurnar, sem eru í verð-
laun, heita: Falin markmið, 58 mín-
útur, Október 1994, Rauði drekinn
og Víghöíði. Bækumar eru gefnar
út af Fijálsri fjölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 179
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
sjötugustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. Anna Bergþórsdóttir,
Hringbraut 48,107 Reykjavík.
2. Ingólfur Finnbjörnsson
Melhaga 2,107 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir
heim.
Heimilisfang: