Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Page 25
LAÚGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1992. 25 Skriðdýrin í Sjónvarpinu: Nýr myndaflokkur eftir höfunda Barts Simpson Skriðdýrin er nafnið á teiknimyndaflokki sem Sjónvarpið hefur sýningar á næstkomandi mánudags- kvöld. í myndaflokknum, sem er eftir sömu teiknara og gerðu þættina um Simp- sonfjölskylduna, er heimur- inn séður með augum bleyjubamsins Tommy og félaga hans. Við sögu koma einnig for- eldrar bleyjubarnanna, frænkur, frændur, afar og ömmur. Fullorðna fólkið hefur útvegað sér flestallt sem á boðstólum er um bamauppeldi og reynir að ala börnin upp samkvæmt leiðbeiningum í bókum og á myndböndum. Móðir Tom- mys vill vera fullkomin móðir og hefur áhyggjur af öllu sem sonur hennar gerir og gerir ekki. Henni er alls ekki ljóst hversu mikið hann skilur og hvað hann hugsar. Hún er oft svo upp- tekin af því að vera hin full- komna móðir að hún tekur ekki eftir því þegar Tommy heldur á vit ævintýranna með félögum sínum. Tommy og félagar bregðast nefnilega ekki alltaf við eins og gera má ráð fyrir sam- kvæmt því sem í bókunum stendur. Á fyrsta afmælisdegi Tommys hafa foreldrar hans skipulagt heljarmikla veislu fyrir hann og vini hans. Tommy er hins vegar með aðrar hugmyndir. Hann er sannfærður um að ef hann og vinirnir borða hundamat verði þeir hund- ar og það telja þeir ekki svo slæman kost. Tommy tekst að fá vini sína til að læðast inn í eldhús til að tæma matarskál hundsins. Aðaláhugamál hundsins á heimili Tommys er matur en hann hefur einnig sama áhuga og Tommy á um- heiminum. Hann tekur því stundum strákinn með sér í leiðangra sem foreldrarnir hafa enga hugmynd um. Faðir Tommys er indæll maður en fremur viðutan. Hann framleiðir leikföng og er tiltölulega ánægður með líf sitt. Honum hættir þó til að bera sig saman við bróð- ur sinn og stundum þarf af- inn á heimilinu að skerast í leikinn til að róa bræðurna niður eins og hann þurfti að gera þegar þeir voru á barnsaldri. Afinn notar hvert tæki- færi til að minna foreldra Tommys á að hann hafi ver- ið ahnn upp samkvæmt gamla móðnum. Hann haíi þurft að ganga marga kíló- metra í snjó í skólann. Afinn er sá eini af fullorðna fólk- inu sem hefur einhveija hugmynd um hvað Tommy getur. Og hann er sá eini sem kemur fram við Tommy og hin skriðdýrin sem jafningja. Teiknimyndaflokkurinn um skriðdýrin, eftir sömu teiknara og gerðu Simpson-þættina, var frumsýndur fyrir ári í Bandaríkjunum og varð strax gífurlega vinsæll. VELKOMIN Á TOLVUSÝNINCUNA AÐ HÓTEL SÖGU KL.10-18 í DAG OG KYNNIST FJÖLDA AFAR ÁHUGAVERÐRA NÝJUNGA Meban á sýningunni stendur veröa sérkynningar og fyrirlestrar í hliöarsölum ► ►► Frumsýning á Windows for Workgroups, hugbúnaöur frá Microsoft og WordPerfect, vélbúnaður frá AST, Victor, Sun, NCR afgreiðslu- kerfi, samskiptabúnaður frá 3Com, DCA, talgervillinn og m. fl. ■ . Fyrirlestrar: Windows NT Sun Sparcstation 10 3Com, nýjungar í netbúnaði ■ Kynningar: Windows for Workgroups WordPerfect fyrir Windows á íslensku Excel og Word PowerPoint Lykill ab árangri EINAR J. SKÚLASON HF Grensásvegi 10, Sími 633000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.