Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Page 17
 ‘^«»2 a£Í?i!&S ma MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993 Merming Ómissandi heimildarit Meöal þeirra rita í bókahillum mín- um sem ég gríp stöðugt til er bókin Hugtök og heiti í bókmenntafræði enda hefur mér þótt hún sérlega vel heppnuð og notadijúg. Það var því með mikiili tilhlökkun sem ég settist við bókina Hugtök og heiti í norr- ænni goðafræði og vissulega varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Eftir fyrstu kynni mín af því er ég sannfærður um að það á eftir að reynast mér jafn notadrjúgt og fyrmefnda ritið sem Jakob Benediktsson ritstýrði. Hér er hins vegar um útlent rit að ræða, sem hefur veriö stytt nokkuð og staðfært á þann veg að sleppt hef- ur verið ýmsum flettum sem aðeins snerta suðurgermanska goðafræði. Þar með hefur ritinu verið breytt í uppflettirit um norræna goðafræði og hlýtur sem slíkt að höfða mjög til íslenskra lesenda. í staðfærslu rits- ins felst einnig að ritaská þess hefur verið aukin með íslenskri heimilda- skrá sem Gísli Sigurðsson hefur tek- ið saman. Þá hefur Heimir Pálsson, ritstjóri verksins, farið yflr hverja flettu og hnikað henni til íslenskra aðstæðna þó fáar orðsgreinar hafi beinlínis verið endursamdar, eins og fram kemur í formála ritstjóra. Loks hefur við staðfærslu ritsins verið tekið mikið mið af íslenskri orðsifja- bók Ásgeirs Bl. Magnússonar. Lengsta grein eða fletta bókarinnar er um Þór, hinn norræna þrumuguð „sem var sterkastur ása“. Aörar ítar- legustu fletturnar eru um Óðin, „æðsta goð norrænnar goðafræði eins og hún birtist í Eddunum“, um Loka „margbrotnasta og jafnframt neikvæðasta germanska goðið“. Af styttri flettum má nefna nánast af handahófi „Ár og frið“. Þetta ger- Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson manska orðtak, sem enn er notað í íslensku máh (að óska e-m árs og friðar) fól í sér „óskir um samfellt góðæri og ríkulega uppskeru, næga fiskigengd, innra öryggi hvers og eins og frið fyrir glæpum og stríöi." Finnst mér lýsing þess óneitanlega minna mjög á þekktasta hugtak gamla-testamentisfræðanna, hebr- eska hugtakið „sjalom". Hér fáum við líka að vita að fijósemisgoðið Freyr var helsta goðiö sem blótað var til að ná fram þessu æskilega ástandi." Fletti lesandinn upp á „Is- lendingasögur" þá er þar raunar tals- vert styttra mál en búast hefði mátt við. Þar er varað við of miklu trausti til heimildagildis þeirra þó því sé ekki neitað að „minni úr heiðnum sið“ hafi varðveist þar og eru þau sögð „því áreiðanlegri sem þau hafa minna trúarlegt gildi í sögunum". Það ber að fagna framtaki þeirra sem stóðu að útgáfu þessa rits hér á landi. Úr því að íslenskir fræðimenn hafa ekki sjálfir ráðist í það stórvirki að seinja upp á eigin spýtur rit sem þetta þá var næstbesti kosturinn að þýða það útlent rit sem hefur að geyma eina viðamestu tilraun til að skrifa aðgengilegt ritverk um ger- manska heiðni. Þýðing Ingunnar Ásdísardóttur virðist mér vel heppn- uð, en ljóst er að það er ekkert áhlaupaverk aö þýða verk sem þetta þar sem hrá þýðing nægir sjaldnast heldur verður ætíð að huga mjög vandlega að heimfærslunni til ís- lenskra aðstæðna. í augum íslendinga er þetta fyrst og síðast íslenskt efni. Þó fomleifa- fimdir hafi reynst notadijúgar heim- ildir fyrir fræðimenn þá eru þeir ekkert í líkingu við ritheimildirnar og þá fyrst og fremst íslensku heim- ildimar, ekki síst rit Snorra Sturlu- sonar. Þessi bók hlýtur að vera ómissandi fyrir hvem þann sem læt- ur sig foma norræna menningu ein- hveiju skipta. Rudolf Simek Hugtök og heiti i norrænni goöafræöi Heimir Pálsson ritstýröi Ingunn Ásdísardóttir þýddi Heimskringla. Háskólaforlag Máls og menningar. 1993 (333 bls.) Norðmannsþinur, jólatré sem ber sitt barr Jólatrén okkar eru óvenju falleg í ár. Komið í jóla- skóginn og veljið jólatré við bestu aðstœður. Ódýrar skreytingar fyrir alla. Kertaskreytingar Verðfrá 895,- Hýasintuskreytingar Verðfrá 595,- Opið til kl. 22 öU kvöld tiljóla. IbfléiíMwal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.