Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Side 56
Hulda Sassoon heldur hér á gler- augunum sem brotnuðu i átökun- Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993. LOKI Þetta er auðvitað einfaldari aðferð en að reyna aðspila á kassana Gjald af áfengissjúklingum: Óvíst hvað verður - segir íjármálaráðherra „Það var ósk stjórnarandstöðunn- ar að fallið yrði frá gjaldtöku af áfengissjúkiingum. Það kom til um- ræðu að fallast á þetta ef það mætti verða til að greiða fyrir þingstörfum. Framsóknarmenn féllust ekki á þetta og þeir belgdu sig út hver á fætur öðrum fram eftir nóttu. Það er því óvíst hvað veróur," segir Friðrik Sophusson fiármálaráöherra. Forystumenn stjórnarflokkanna á Alþingi féllust á að falla frá inn- heimtu innritunargjalda af áfengis- sjúklingum á laugardaginn ef það mætti verða til þess að þingstörfum lyki þá um nóttina. Á þetta féllust •' j)ingmenn Alþýðubandalags og Kvennahsta. Vegna andstöðu fram- sóknarmanna við að ljúka þingstörf- um á laugardag er hins vegar óvíst hvort horfið verður frá gjaldtökunni. Ríkisstjómin ákvað einnig að falla frá innheimtu viröisaukaskatts af fólksflutningum og ferðaskrifstofum til að blíðka stjórnarandstöðuna og flýta þingstörfum. Að sögn Friöriks var um yfirlýsingu að ræða af hálfu ríkisstjómarinnar og því stendur þessi ákvörðun þrátt fyrir að seinkun ___jiafiorðiðástörfumþingsins. -kaa Rændu aleigunni M ■■*/ ■■ ■ ■ 71 |W/ AniUlfl^l at 75/ooryrKja - „á ekki krónu“ segir Hulda Sassoon í viðtali við DV „Ég var á gangi fyrir framan Regnhogann þegar ýtt var við mér og ég datt. í götuna. Ég lá á grúfu, sá lítið, en gerði mér grein fyrir að tveir ungir menn vora að verki. Höndunum var haldið aftur fyrir bak og annar mannaruia steig með fætinum ofan á höfuðið á mér. Þeg- ; ar ég leit við hentu þeir handtösk- unni í mig en hirtu seölaveskið með aleigu minni. Ég á ekki krónu til að lifa af yfir jólin,“ sagði Hulda Sassoon, fimmtugur Réykvíkingur, í samtali við DV. Hulda, sem er 75% öryrki, var rænd af tveimur grímu- klæddum mönnum fyrir framan Regnhogann á Hverfisgötu síðdegis i gær. Ránsmennirair höfðu á brott með sér 15 þúsund krónur í pcningum, nokkur skilríkí og gjafakort frá Mæðrastyrksnefhd upp á 5 þúsund krónur sem Hulda fékk sl.: lostu- ; dag. i átökunum við mennina brotnuðu gleraugu Huldu í mél en þau eru að verðmæti um 40 þúsund krónur. Hulda sagði að mennimir helðu verið í kringum tvítugt, ef marka mætti raddir þeirra og afl. Annar var klæddur í kuldagalla með hettu alveg >1ir höfðinu. Hinn var með ■; nælonsokk yfir höfðinu, klæddur í svartan leðurjakka og með leðurg- riftlur með göddum á höndunum. „Ég heyi-ði að sá sem hélt mér ekki sagði: „Fljótur, fljótur, við er- um búnir að ná seðlaveskinu og viö skulum drífa okkur af stað.“ Sparkaði í annan með gaddaskóm Hún taldi aö ræningjarnir hefðu greinilega kunnað til verka. „Reyndar var ég á gaddaskóm og náði að sparka í annan þeirra. Það getur vel verið að hann hafi meitt sig og vonandi þá að hann leiti á slysavarðstofu.“ „Þetta er hrikaleg lífreynsla og er ég þó búin að upplifa ýmislegt um ævina. Ég ætla bara að vona aö fólk sé á verði gagnvart svona löguðu," sagði Hulda Sassoon við DV. í gærkvöld hafði ekki tekist aö hafa hendur í hári ræningjanna. Hinsvegar hefur DV upplýsingar um að starfsmenn öryggisgæsl- unnar Vöktunar hafi haft afskipti af tveimur mönnum sem svöruöur til lýsingar konunnar við Kringl- una skömmu áður. Þar höfðu þeir unníð sltemmdh' á eignum en var sleppt eftir að hafa lagað þær sjálf- ir. -bjb/-pp yeðriðámorgun: Norðvest- an-og vestanátt Á morgun verður norðvestan- og vestanátt á landinu, ennþá all- hvasst norðaustan- og austan- lands en mun hægari annars staðar. Él verða vestan-, norðan- og austanlands en bjartviðri um sunnanvert landið. Veðrið í dag er á bls. 60 Útifundur við Breska sendiráðið Útifundur verður haldinn klukkan 17 í dag við Breska sendiráðið í Reykjavík til. að mótmæla þeirri ákvörðun breskra stjómvalda að veita Thorp endurvinnslustöðinm í Sellafield starfsleyfi. Á fundinum flytur Þráinn Bertelsson, formaður Rithöfundasambands íslands, ávarp og breska sendiherranum verða af- hent mótmæli fundarmanna. Að fundinum standa friðarsamtök, verkalýðsfélög, umhverfissamtök og einstaklingar. -GHS Brautspilakassa Brotist var inn í söluturn við Drafnarfell í nótt og brotinn þar upp Rauða kross-kassi. Þjófurinn eða þjófamir komust undan í skjóli nætur með peningana úr kassanum og voru ófundmr í morgun. Mikið hefur verið um það undanfarið að spilakassar Rauða krossins væm brotnir upp og sagði , ± rannsóknarlögreglumaður í samtali við DV að peningamir væru oft not- aðir til að kosta spilafíkn þjófanna. -pp Neyðar- ástandum borðí flugvél Flugmaður, sem var einn um borð í htifli tveggja hreyfla flugvél skammt austur af landinu í gær- kvöld, lýsti yfir neyðarástandi. Flug- maðurinn tilkynnti að hann ætti í vandræðum, olíuhiti væri mjög lág- ur, véfln væri farin að hiksta, trúlega vegna ísingar í eldsneyti og nístings- kuldi væri um borð þar sem miðstöð flugvélarinnar væri biluð. Flugvél Flugmálastiórnar fór á móti honum og mættust vélarnar yfir Vestmannaeyjum, -sömuleiðis voru Landhelgisgæslan og Vamar- liðið látin vita og voru aðilar þar í viðbragðsstöðu. Þegar flugmannin- um var ráðlagt að lenda í Vest- mannaeyjum aflýsti hann neyðará- standi og ákvað að lenda í Reykjavík. Þegar til þess kom snerist véfln í hring á brautinni enda veður vont og ísing þar. Flugmanninn sakaði þó ekki. -pp Jólaundirbúningurinn er á fullu síðustu dagana fyrir jólin og ekki seinna vænna fyrir þá sem fella jólatréð sjálfir að fara á stúfana að velja tré. Mosfellingarnir Gunnar Þór og tíkin Tóta fóru i Úlfarsfell um helgina að velja tré og saga og létu þá Ijósmyndara DV smella af sér einni mynd í tilefni jólanna. DV-mynd HMR F R É T X /V IIBll s K O ; • X 1 Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rrtstjóm - Auglýsingar - Áskri h - Dréifinq- Sími 632700 lll ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ Lágmúla 5, s. 681644 Þegar lil lengdar lœtur t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.