Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Síða 25
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993 Merming Handbók hófdrykkju- manns Einar Thoroddsen, augnlæknir og borövínsfræðingur, hefur skrifað „Vínin í ríkinu", gagnlega handbók fyrir áhugamenn um borðvín. Helmingur hennar er almenn víri- • fræði, einkum landafræði vínrækt- ar. Hinn helmingurinn er úttekt á víni, sem er eða hefur til skamms tíma verið á boðstólum í Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins. Þessi síðari helmingur er merk- asti hluti bókarinnar, enda miðað- ur' við íslenzkar aðstæður. Einar hefur farið gaumgæfilega í sau- mana á framboði ÁTVR og birtir niðurstöðu bhndrar smökkunar sinnar og félaga á því víni. Birtir hann annars vegar sínar einkunnir og hins vegar einkunnir félaganna. Ná þær yfir rúmlega 200 tegundir borðvíns og töluvert af öðru áfengi, þar á meðal bjór. Er þetta aht traustvekjandi og kemur að nærri öhu leyti heim og Bókmenntir Jónas Kristjánsson saman við reynslu mína, sem fram hefur komið í blaðagreinum frá fyrri árum um hhðstætt efni. Ein- kunnagjöf Einars er frá 0 til 10. Sýnist mér, að gott sé það vín, sem fær 6,5 í einkunn eða hærra. Er það tæplega helmingur borðvíns í Rík- inu. Einar ber líka saman verð og gæði og tekur sérstaklega fram, hvar sé' um góð kaup aö ræða. Það eru gullvægar upplýsingar. Hvergi eru til á einum stað eins góöar og haldbærau- leiðbeiningar um val borðvíns á íslandi og í þess- ari vönduðu handbók Einars. Fyrri hlutinn er einnig góður, þótt hann sé um margt líkur hhðstæðu efni í miklum fjölda erlendra bóka um þetta hugstæða efni, enda er aðeins stiklað á því mikilvægasta í knöppu formi bókarinnar. Það hæfir samt ekki þessu knappa handbókarformi að skeyta tilgangslausu og tilvhjanakenndu þrugh inn í textann, einkum í of- notuðum svigum. Þar er stundum á ferðinni óskylt efni, eins og brandari um einkennisklæði hippa, sem höfundur endumotaöi nýlega í sjónvarpsræðu, svo og málalengingar á borð við:....án þeirra [peninga] ertu iha settur, karl minn (eða sett, kerh mín)“. Nokkuð er gælt við ýkjur: „Vín úr merlot ... minnir á mýrar- rauða..„Sá sem drekkur þess háttar vín gæti alveg eins lamið sjálfan sig í hausinn með eikar- planka".....sauvignon blanc ... minnir á púðurreyk og oft katta- hland í skemmthegri einingu“. „Mikh hunangsfylling og skóáburður í mátulegum skammti“. Síðast er Einar að lýsa því hvítvini, sem fær hæsta einkunn hans, 9,5! Stundum notar hann eins konar bamamál eða fimmaurabrandara: „Ógeðslega gamalt getur það [nafn- ið klaret] þó ekki verið“. „Senni- lega má heyra söng vínsins, ef reynt er að spha diskinn [dropa- vamadiskinn] á geislasphara". „Louis Sipp (ekkert skyldur systr- unum Sipp, Sipp-sippanipp og Sipp-sippanipp-sippa-súrum-sipp)“. Mjög góð bók hefði orðið enn betri, ef sleppt hefði verið thvitnuð- um texta og öðmm slíkum utan dagskrár. Eg er ekki hrifinn af vatnshta- máluðum og handskrifuðum landakortum bókarinnar og enn síður af blýantsteikningum henn- ar, en viðurkenni, að þar er um smekksatriði að ræða. Allur frá- gangur bókarinnar, þar með talin hönnun og handritalestur, er að- standendum th sóma. Ekki geri ég neinn ágreining við ágætan smekk Einars á víni, að öðru leyti en því, að aldurhniginn Calvados tel ég vera miklu merki- legri en Einar vhl vera láta. Vinin í Rikinu Einar Thoroddsen Mál & menning 288 blaðsiður Einar Thoroddsen. btorglæsilegt og emkar troöiegt nt ettir mann sem man bæinn frá því skömmu eftir aldamót Hver gata, hvert sögufrægt hús og hvert örnefni er uppsláttarorð. Segja má að Steindór gangi nánast hús úr húsi og dragi fram sérkenni í markvissum og efnisríkum texta.I bókinni sem er hátt í 300 bls. í stóru broti, eru hundruðir gamalla og nýrra mynda, málverka, teikninga, korta og uppdrátta. Einnig eru þar örnefnakort alls bæjarlandsins, staðar- nafna-, mannanafna-, og heimildarskrár. Veglegt verk sem lýsir litskrúðugu mannlífi frá upphafi byggðar ORN OG ORLYGUR mmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.