Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Síða 27
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993 27 momm b\r9ð,r enoas' .í.í"*8”" /> /> 4 Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir Vöku og Loga, saga sem endar vel, en inn í hana fléttast leikur aö orð- um og leikur myndlistarmannsins (Rögnu) meö form og liti. Það er uullkúnst Gullsmiðja Helgu LAUGAVEGI 40 • SlMI 616 660 / jólapakkann Perlufestar frá kr. 2.000 Silfurnœlur Gull- og silfurhringar Gull- og silfurkeðjur Verið velkomin DV Merming Fjarlægð frá öllu Ragna Sigurðardóttir hefur gefið fyrstu skáldsögu sinni það látlausa nafn Borg. En sú borg sem lýst er 1 sögunni er allt annað en látlaus, fuU af krókum, kimum og rangöl- um sem erfitt er að rata um. Þetta er nútímaborg sem hefur ýmis ein- kenni Reykjavíkur, en hún er stærri, heitari, eldri, grimmari og háværari; síbreytileg alheimsborg meö ótal andlit. í þessari horg, sem er umlukt rauðum múr á alla vegu, kynnumst við þeim Úllu, Vöku og Loga, einu persónum bókarinnar. Samskipti þeirra eru í forgrunni sögunnar en aö baki slær hjarta borgarinnar, þungt og hratt, borgin er landslagið sem þau eru meitluð inn í og renna sundur við eða saman. Borgin skiptir um ht um leið og tilfinning- ar persónanna, þaö er kalt þegar Vöku liður illa og stuttu áöur en hún hittir Loga í fyrsta sinn breyt- ist hljómfall tunginnálsins í kring- um hana og „hróp og köll sölu- manna breytast' í óskiljanlegan söng“ (38). Og auglýsingamar sem Logi býr tfi renna svo ljúflega inn í landslag borgarinnar að fyllibytta sem Logi hittir á brautarpalli held- ur því statt og stöðugt fram að kon- an sem blasir við þeim í auglýsing- unni beint á móti sé hans löngu glataða eiginkona. En í þessari senu birtist jafnframt andstæðusýn . textans, hinn algjöri samruni er ekki til, hann er aðeins hugarórar í höfði drykkjumanns. • Nálægðin og fjarlægðin kallast á bókina út í gegn. Vaka reynir að nálgast og skynja umhverfiö í gegnum orð líkt og Logi í gegnum mynd og það er hennar ástríða að reyna að fanga öll fyrirbrigði með nákvæmlega réttum orðum sem tekst náttúrlega ekki. Þau reyna að elta andartakið uppi og gera þaö að sínu með þeim afleiðingum aö það fjarlægist æ meira á meðan Úlla, náttúrubamið í hópnum, læt- ur sér á sama standa og veltir sér aldrei upp úr því sem hún kallar smámuni. Hún er þ.a.l. dálitið sér á parti í þessum þríhymingi og í raun er það aðeins hún sem nýtur lífsins í botn. Textinn er sífellt brotinn upp með ljóðrænum auglýsingum Loga (og annarra?) og sú auglýsing sem hvað oftast kemur fyrir augu les- anda og upp í huga persónanna sýnir ungt par að drekka svala- drykk og undir auglýsingunni standa eftirfarandi orð: Kalt og svalandi blindandi ljós svalt sumar fjarlægð frá öllu. Þetta er skrýtinn auglýsingatexti, eiginlega algjör della eins og Vaka segir (103) en hann sýnir einmitt brotna skynjun persónanna og samhengisleysið mitt í öllu skipulaginu. Borg er ljúf ástarsaga þeirra þessi samruni orða og myndverks sem gerir söguna áhugaverða, ekki ástarsagan sjálf sem er tiltölulega einföld og átakalaus. Það er ekki brennheitt ástarsam- band sem heldur lesandanum við efnið heldur aragrúi aðskiljanlegra hugmynda sem m.a. koma fram í auglýsingatextunum og orðræðu og skemmtilegum oröaleikjum per- sónanna. Og það sem gæðir persón- umar lífi eru ekki síst lýsingamar á klæðaburði og litimir í fatnaðin- um sem undirstrika líðan þeirra hverju sinni. Tilfinningarnar þarf ekki að skýra mörgum orðum, þær em einfaldlega dregnar upp með pensh og sýndar rétt eins og í mál- verki væm. Glæsilegu málverki. Ragna Sigurðardóttir Borg Mál og menning 1993. Ambra sprinta II, 486 SX, 25 MHz, 130 MB diskur, 4 MB minni, Local Bus, laust STAR LC-100, 9 nála litaprentari, 10 þumlunga vals, 180 sæti fyrir Pentium örgjörva, Vesa skjástýring, MS DOS 6.0 stýrikerfi, Windows 3.1, stafir/sek, er með einblaðamatara og pappírsdraga fyrir A m B' B A mw. Með því að kaupa vöru með staðgreiðslusamningi færð þú vöruna á staðgreiðsluverði og getur skipt greiðslum á allt að 24 mánuði. Uppgefið verð í þessari auglýsingu miðast við staðgreiðslusamning Glitnis og mánaðar- legar greiðslur í 24 mánuði. Heildarverð fyrir tölvuna og prentarann er kr. 124.800. Innifalið í afborgunar- verðinu eru vextir og allur kostnaður. inn' 14" SVGA/LR litaskjár, lyklaborð og mús. tölvupappír, arkamatari fyrir 50 laus blöö fáanlegur. Litaprentari fyrir heimilið, skólann og í vinnuna. Við minrtum á í verslun Nýherja Við minnum á 63 hörkugóð tilboð á fjölbreyttum búnaði í verslun okkar þar sem afsláttur nemur allt að tugum þúsunda á sumum hlutum. Líttu við í verslun Nýherja t Skaftahlíð 24 - það borgar sig SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 69 77 00 Alltaf skrefi á undan Þú mátt velja þér Allir viðskiptavinir Nýherja sem kaupa PC-tölvu fyrir jól mega velja _sér vænan jólapakka undan jólatrénu í verslun Nýherja - óvæntan glaðning frá Nýherja!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.