Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Page 29
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993
37
Fréttir
Starfsfólk Sjúkrahúss ísaflarðar stofnar pöntunarfélag:
Bónus hyggst bjóða
pantanir gegnum tölvu
og spara þannig landsbyggðarfólki og öðrum háar flárhæðir
Bónus hyggst bjóða upp á nýju
þjónustu á næstu mánuðum.
Jón Ásgeir Jóhannesson, sölu-
stjóri hjá Bónusi, segir að það sé í
athugun að senda út svokallaða
þurrvörulista sem gætu komið sér
vel fyrir pöntunarfélög á lands-
byggðinni, skip og mötuneyti, svo
að einhverjir aðilar séu nefndir.
Þetta yrði hugsað sem eins konar
sérþjónusta. Pöntunarfélögin
kæmu sér upp tölvu þar sem pant-
anir yrðu skráðar og sendar sím-
leiðis tii Bónuss sem svo ynni úr
þeim og sendi síðan vöruna.
Jón Ásgeir vonast til að innan
skamms tíma sé hægt að koma
þessari þjónustu á laggimar.
Þá hyggst starfsfólk Sjúkrahúss
ísafjarðar setja á fót pöntunarfélag
sem ætlar að skipta við Bónus.
„Við erum að þessu vegna þess
að matvaran er svo dýr hérna.
Maður leitar náttúrlega allra leiða
til að fá meira fyrir peningana,"
segir Einar Axelsson, yfirheOsu-
gæslulæknir Sjúkrahússins á
Isafirði, en hann er í forsvari fyrir
pöntunarfélag sem verið er að
koma á fót þar.
Einar segir að það fólk sem hann
sé í forsvari fyrir sé óánægt með
að þurfa að greiða tug prósenta
hærra verð í sumum tílvikum fyrir
vörur á Isafirði en í Reykjavík.
Þegar hafi verið haft samband við
menn hjá Bónusi og þeir lýst yfir
áhuga á þessu máli og rætt hafi
veriö um að senda pöntunarlista
vestur. Einn starfsmaður sjúkra-
hússins, sem blaðamaður ræddi
við, sagði að með þessu tækist stór-
um fjölskyldum að spara tugþús-
undir króna. Sá munur sem væri á
vöruverði á ísafirði og í Reykjavík
lægi ekki í flutningskostnaðinum.
í pöntunarfélaginu er einungis
um að ræða starfsfólk sjúkrahúss-
ins en þar starfa rúmlega 100
manns. Ef gengið er út frá því að
2,2 séu í vísitölufjölskyldunni þá
er hér um að ræða vel á þriðja
hundrað manns í 3.500 manna bæj-
arfélagi eða á áttunda prósent bæj-
arbúa. Við þennan fjölda bætast
vinir og kunningjar starfsmanna
sjúkrahússins sem EincU’ segir að
vel geti hugsast að fái óbeina aðOd
að pöntunarfélaginu.
Einar segir að aðaOega sé rætt
um að panta inn þurrvöru í gegn-
um pöntunarhstana. „Eitthvað
sem fólk getur geymt; klósettpapp-
ír, morgunkorn, sykur, hveiti og
kaffi, svo að fátt eitt sé nefnt,“ seg-
ir Einar.
-PP
Jójapé gjajirnm f
Sjónvarpsskápur m/snúningi svartir, beyki, mahóní, hvítir Áður 10.500,- NÚ 7.900,-
Eitt vinsselasta
fiölskyldusPiUð {heiml
P Spilið er þroskandi, skerpir athyglisgáfu,
þjálfar hugareikning og gengur út á klókindi, útsjónarsemi
og heppni leikmanns. Spilið er vandað og með íslenskum leiðarvísi.
HEILDSÖLUDREIFING: ísLENSKA VERSLUNARMIÐSTÖÐIN HF.
GRENSÁSVEGI 16 BAKHÚS, SÍMI 687355, FAX 687185
Kommóður m/stálbraut
hvítar, beyki, svartar
3ja skúffna - áður 9.500
NLJ 6.900,-
5 skúffna - áður 13.500
NÚ 9.900,-
TM - HÚSGÖGN
Siðumúla 30 -
sími 68-68-22
Opið mánud.-föstud. 9-18
i Laugardaga kl. 10-17
Sunnudaga kl. 14-17
Skrifborð m/4ra hurða skáp
beyki, svart, askur,
ljós askur
Áður 29.400,-
NÚ 19.400,-
Hi-tech unglingastólar
4 litir - Áður 6.900
NÚ 3.900,-
Bella hillur, svartar og hvítar
Áður 8.900,- NÚ 5.900,-
PLAZA hiUur - svartar
og hvítar
Áður 13.500,- NÚ 8.500,-
BELLA hjólaborð, svart
og hvítt
Áður 5.800,- NÚ 3.900,-
Þessi tilboð gilda til 31/12 ’93