Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Side 9
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993
9
Utlönd
Malavf-Banda
oglandarkátir
meðaðstoðina
Kamuzu
Banda, forseti
Malaví, og
kaupsýslu-
menn í landinu
gota nú andað
léttar eftir að
fróttir bárust
að vestrænar
þjóðir ætla að rétta landinu hjálp-
arhönd og veita því flárhagsað-
stoð. Er það gert vegna umbóta
sem gerðar hafa verið í stjóm-
málalífi landsins.
Malavimenn fá rúmlega tutt-
ugu milljarða króna, aðeins
minna en þeir fóru fram á.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir
iðnaðinn því við höfúm haltrað
áfram undir hámarksafkasta-
getu,“ sagði Peter Kalilombe,
formaður verslunarráðs Malaví.
Sjónlinsurgerð-
arúrnorskri
rækjuskel
Norskir rækjuframleiðendur
gera sér vonir um að útflutningur
verði hafinn á efninu chitosan,
sem unnið er úr rækjuskel, til
iðnfyrirtækja i Þýskalandi og
Japan. Efni þetta býr yfir eigin-
leikum sem gera það kiörið til
framleiðslu á snertilinsum.
„Chitosan gert úr norskri
rækjuskel er mun betra en allt
annað efni,“ segir Even Stenberg
sem stjómar miðstöð íyrir sjáv-
ariíftæknistofnun við hafrann-
sóknarstofnunina í Trorosö.
Reuter, NTB
Dóttir Castros fær pólitískt hæli í Bandaríkjimum:
Kallaði pabba
sinn harðstjóra
Alina Femandez Revuelta, 37 ára gömul
óskilgetin dóttir Fidels Castros Kúbuleiðtoga,
hefur fengið pólitískt hæli í Bandaríkjunum
og dvelur nú í Atlanta í Georgíu.
Fernandez, sem er fyrrum tískusýningar-
stúlka, hefur oftsinnis gagnrýnt stefnu föður
síns harðlega, kallað hann „harðstjóra" og
kvartað undan skorti á frelsi í landinu.
Flótti dóttur Castros þykir skýr vísbending
um að ástandið á eyjunni fari versnandi.
„Skilaboðin til umheimsins eru skýr þegar
hans eigin ættingjar em farnir að flýja,“ sagði
Juanita Castro, systir Kúbuleiðtogans og eig-
andi lyfjabúðar í Kúbverjahverfinu í Miami
á Flórída. „Unga fólkinu, kynslóð hennar,
finnst það hafa verið svikið.“
Juanita staðfesti að Alina heföi skilið dóttur
sína á táningaaldri eftir á Kúbu.
„Það er það sorglegasta við þetta allt,“ sagði
Juanita og bætti við að erfitt væri að spá
hvað Fidel myndi gera en hún efaðist þó um
að hann leyfði dótturdóttur sinni að fara.
Castro átti Alinu með leikkonunni Nati
Revuelta og sagði hún að landflótti dóttur
sinnar hefði komið sér algjörlega í opna
skjöldu. Hún sagðist hafa séð dóttur sína fyr-
ir nokkrum dögum og hún heföi ekki minnst
á þetta einu orði. Hún hefði þó oft áður beðið
um að fá að fara.
Roberto Robaina, utanríkisráðherrá Kúbu,
vildi ekkert tjá sig um fréttirnar af flótta dótt-
ur leiðtogans. „Ég var að heyra þetta eins og
þið,“sagðihannviðfréttamenn. Reuter
Alina Fernandez Revuelta, dóttir Castros Kúbuleiðtoga, flúði stjórn-
arhætti qamla mannsins. Símamynd Reuter
aðfátæklingar
megistela
Prestur einn á Nýja-Sjálandi,
Brian Tumer aö nafiii, segir það
siðferðilega réttlætanlegt aö fólk
steli hafi það ekki önnur ráð til
að koraast af. Hann likti landi
sínu viö England á tímum léns-
veldisins þegar fátæklingar sáu
síg knúna til aö stunda þjófnað.
„Ég er á því aö ef fólk er svipt
rétti sínum til góðs húsnæðis,
heilsugæslu og hæfilegs matar og
ef það hefur reynt allt annað til
að mæta þessum þörfum og
þjófnaður er eina útgönguleiðin
er það að sumu leyti siðferðilega
réttlætanlegt," sagði Turner.
Neyð fólks hefur aukist frá því
skorið var niður í velferðarkerf-
inu árið 1991.
Japanski for-
sæfisráðherrann
biðst afsökunar
, Morihiro Ho-
sokawa, for-
sætisráðherra
Japans, ætlar
að biðja þjóð
sina afsökunar
á þvi að hafa
ekki gert um-
bætur i stjórn-
málalifi landsins á þeim tíma sem
hann hafði lofað.
Ráðherrann leggur afsökunar-
beiðni sína fram á fundi með
fréttamönnum á aðfangadag.
Hann haföi lofaö að leggja fram
frumvörp um aö hreinsa til í
spilltum stjórnmálum Japans
fyriráramót. Reuter
MISSIÐ EKKI AF
skattafslættinum!!
Hjón sem auka
hlutabréfaeign sína um
200 þúsund á árinu geta
lækkað tekjuskattinn
um rúmar 82 þúsund kr.
BÚNAÐARBANKI
WíSLANDS
SPARISJOÐIRNIR
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9:00-16:00
OPIÐ Á AÐFANGADAG KL. 9:00-12:00
OPIÐ Á GAMLÁRSDAG KL. 9:00-12:00
Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér skattafslátt fýrir árið 1993. Hlutabréfa-
sjóðurinn Auðlind er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja sér skattafslátt.
Harm fjárfestir í ýmsum hlutabréfum og skuldabréfum og er því um góða
áhættudreifingu að ræða. Auðlindarbréf eru skráð á Verðbréfaþingi íslands og
eru auðveld í endursölu. Þau fást í sþarisjóðum, Búnaðarbanka íslands, Kauþþingi
Norðurlands hf., Akureyri og Kauþþingi hf., Kringlunni 5.
KAUPÞING HF
Löggi/t verdbréfafyrirtœki
Kringlutmi 5, sfmi 689080
í eigu Rúnabarbanka ístands
og sparisjóbanna