Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1993, Side 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrif t - Dreifing: Simi 632700
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993.
Ófæröin í morgun:
Ruðnings-
tækin í
biðstöðu
Ruðningsmenn Vegagerðarinnar
verða í biðstöðu meðan veðrið lægir
ekki og enn skefur. Um leið og veðr-
inu slotar eitthvað á vestanverðu
landinu, sem vonir standa til að verði
seinna í dag, verða ruðningstækin
ræst og helstu íjall- og heiðarvegir
þar ruddir. í nágrenni höfuðborgar-
innar skefur á stöku stað og þar má
búast við að ruðningstækjum verði
rennt í gegn eftir þörfum.
í morgun var fært upp í Borgar-
flörð, vestur á Snæfellsnes og yfir
íjallvegi þar. En Holtavörðuheiði var
kolófær og eins margir fjall- og heið-
arvegir á Norðurlandi og á Vestfjörð-
um. Hins vegar var vel fært austur
úrmeðsuðurströndinni. -hlh
- sjá einnig bls. 48,76 og 77
Tíuásjóumjólin
Búist er við að einungis 10 skip
verði á sjó um jólin. Á áttunda tíman-
um í morgun fengust þær upplýs-
ingar hjá Tiikynningaskyldu að um
60 skip væru á sjó og „rigndi inn“
tilkynningum um að skip væru á leið
til hafnar. Flest þeirra skipa sem
veröa á sjó eru togarar sem hyggjast
siglameðaflann. -pp
Smáauglýsingadeild og blaðaaf-
greiðsla DV verða lokaðar á aðfanga-
dag, jóladag og annan í jólum.
Smáauglýsingadeild er opin mánu-
daginn 27. desember frá kl. 9-22.
DV kemur næst út mánudaginn 27.
desember.
Gleðileg jól!
ISIOIKðKðBvl
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru fýrir fjársvik á hendur konu
og manni um sextugt vegna tæp-
lega 700 þúsund króna greiðslna frá
Tryggingastofnun ríkisins.
Fólkinu er gefið að sök að hafa
þegið greiðslurnar í nafni konunn-
ar fyrir tekjutryggingu og heimihs-
uppbót á tæplega tveggja ára tima-
bili - án þess að eiga rétt á þeim
þar sem þau hafi veriö í sambúð,
Fólkið hafði fengið lögskiinað en
Tryggingastofnun taldi aö fólkið
byggi ennþá saman þegar konunni
bárust framangreindar greiðslur.
Rannsóknarlögreglu ríkisins var
sent málið til rannsóknar en það
snerist að mestu leyti um hvort
fólkið hefði búið saman eftir að það
fékk lögskilnaö. Að rannsókn lok-
inní taldi ríkissaskóknari að næg
rök væru til að gefa út ákæru á
hendur fólkinu. Máliö var þingfest
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Tekjutrygging er uppbót á ör-
orkulifeyrisgreiðslur og nema þær
um 23 þúsund krónum á mánuði.
Tryggingin er greidd út nái bóta-
þegiim ekki ákveönum lágmarks-
launum. Hcimilisuppbót nemur
rúmum 7 þúsund krónum á mán-
uöi og er hún greidd örorkulí feyrís-
þegum sem búa einir. -Ótt
Hvita steinbitshrygnan i Nátturugripasafnmu i Vestmannaeyjum hrygndi nylega i fjórða sinn og heppnaðist hrygn-
ingin vel, - I annað sinn sem það tekst hjá henni í 4 tilraunum. Og ástin hefur blómstrað í búrinu því hængur,
sem verið hefur i búrinu hjá hrygnunni i tvö ár, er nú orðinn til fyrirmyndar. Hefur sýnt hrygnunni mikla umhyggju
og hringar sig utan um hrognaklasann þegar hann leysir hana af. í fyrra át hann hrognin og vildi ekkert með
hrygnuna hafa. DV-mynd Ómar Garðarsson, Vestmannaeyjum
Astin
lómstrar
- sjá bls. 7
Jólaverslimin:
Bókasalan
síst minni
enífyrra
„Ég held að jólaverslunin hafi kom-
ið betur út en allir hafa gert ráð fyr-
ir. Þetta er það sem ég hef heyrt í
samtölum við menn. Það er vitað
mál að greiðslukortin eru mikið not-
uð og þau eru stórt hlutfall af heild-
arveltunni," segir Magnús Finnsson,
framkvæmdastjóri Kaupmannasam-
takanna.
„Bókasalan hefur verið mjög góð
og greinilegt að sú aðgerð útgefenda
að halda bókaverði óbreyttu frá síð-
asta ári hefur haft veruleg áhrif. Fólk
er mjög ánægt með bókaverðið og
úrval bóka og salan er jafnari á fleiri
titlum nú en áður. Upplýsingar úr
bókaverslunum benda til þess að
bókasalan sé síst minni en í fyrra,“
segir Ólafur Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vöku.
Opnunartími versiana er frjáls í
dag og á morgun, aðfangadag. Höfuð-
reglan er þó sú að verslanir séu opn-
ar til klukkan ellefu í kvöld og til
hádegis á morgun. -GHS
Skíðasvæöin:
Opnað milli
jóla og nýárs?
„Það vantar enn snjó í efri hlutann.
Vonandi festir eitthvað af því sem
kemur ofan núna. Við erum að gæla
við aö geta opnað í Bláíjöllum og
Skálafelli milh jóla og nýárs,“ segir
Þorsteinn Hjaltason, forstöðumaður
skíðasvæðisins í Bláfjöllum.
Enn er frekar lítill snjór í Hlíðar-
fjalli við Akureyri en stefnt er að því
að opna lyfturnar í Hólabraut og
Hjallabrautáþriðjaíjólum. -IBS
Irmanlandsflugið:
Áannaðþúsund
farþegar í dag
Fremur illa horfði fyrir innan-
landsflug í morgun vegna veðurs en
á annað þúsund manns hugðust ferð-
ast með 24 áætluðum ferðum Flug-
leiða og 12 ferðum íslandsflugs á
Þorláksmessu.
Ein Flugleiðavél beið eftir að veður
lægði á Húsavík í morgun og önnur
var farin til Færeyja. Beðið var með
ákvarðanir um flug til Vestmanna-
eyja og Vestfjarða. Samkvæmt upp-
lýsingum íslandsflugs var ekki útlit
fyrir flugveður til Eyja en þar töldu
menn hins vegar að flogið yrði til
Egilsstaðaídag. -Ótt
i ,.mmWM
LOKI
Kannski er bara best að fresta
jólunum-vegna veðurs!
Jólaveðrið:
Hlýnar á
sunnudag
Á morgun, aðfangadag, verður
vestankaldi og él vestast á land-
inu en annars hægviðri og létt-
skýjað. Víða 5-10 stiga frost (sjá
kort).
Á jóladag verður suðlæg átt,
gola eða kaldi og þykknar upp
um sunnanvert landið en létt-
skýjað nyrðra. 2-12 stiga frost.
Á annan í jólum verður ah-
hvöss suðaustanátt og fremur
hlýtt. Rigning eða slydda víða um
land. Hiti 0-5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 76
lll
ALÞJÓÐA
LI'FTRYGGINGARFÉLAGIÐ
Lágmúla 5, s. 681644
Þegar til lengdar lcetur