Dagur - 29.08.1962, Blaðsíða 39
er við kirkjulegar athafnir. Einnig hefur hann hald-
ið nokkra hljómleika. Núverandi formaður er Fríða
Sæmundsdóttir. Kantötukór Björgvins Guðmunds-
sonar tónskálds var stofnaður 1931, og stjórnaði tón-
skáldið lionum um árabil. Kórinn starfar ekki
lens;ur.
Karlakórinn „Geysir“ var stofnaður 1922 og verð-
ur 40 ára í desember n. k. Ingimundur Arnason var
stjómandi kórsins frá upphafi og þar til nýlega, að
Árni sonur hans tók við söngstjórninni. Núverandi
formaður kórsins er Kári Johansen, sem tók við af
Hermanni Stefánssyni, sem verið hafði formaður
kórsins í mörg ár og er nú söngkennari við Mennta-
skólann á Akureyri. Kórinn hefur haldið fjölda
hljómleika hér á Akureyri og úti á landi, í Reykja-
vík og á Norðurlöndum.
Karlakór Akureyrar var stofnaður árið 1929. Ás-
kell Snorrason var lengi söngstjóri hans. Núverandi
söngstjóri er Áskell Jónsson. Kórinn hefur lialdið
marga hljómleika hér og annars staðar á landinu.
Síðastliðinn tvö ár hefur kórinn haft konur með í
söngnum. Innan kórsins er tvöfaldur kvartett, sem
Guðmundur Jóhannsson stjórnar, en hann er jafn-
framt undirleikari kórsins. Núverandi formaður
kórsins er Jónas Jónsson frá Brekknakoti.
Smárakvartettinn skipa þessir menn: Jóhann og
Jósteinn Konráðssynir, Magnús Sigurjónsson og
Gústaf Jónasson. Undirleik annast Jakob Tryggva-
son.
Þekktustu söngvarar og tónlistarmenn?
Þekktustu núverandi söngvarar á Akureyri eru
Jóhann Konráðsson og Ingibjörg Steingrímsdóttir,
en kórarnir eiga marga ágæta söngvara, sem eflaust
næðu frama á sviði söngsins, ef þeir hefðu tækifæri
til að sinna honum verulega. Allir kannast við Ak-
ureyringana Árna Kristjánsson og Guðrúnu Krist-
insdóttur, píanóleikara. Akureyringar þurfa ekki að
bera kinnroða fyrir sínum hlut í tónlistarlífi lands-
ins. Og nú eru starfandi í bænum góðir tónlistar-
menn eins og Kristinn Gestsson píanóleikari og Sig-
urður Örn Steingrímsson fiðluleikari.
Tónskáld okkar Akureyringa nú?
Áskell Snorrason og Jóhann Ó. Haraldsson eru
okkar fremstu tónsmiðir, síðan Björgvin Guð-
mundsson leið.
Hér hefur lengi starfað lúðrasveit?
Lúðrasveit hefur verið á Akureyri síðan fyrir
aldamót, þó að starfið hafi slitnað annað slagið.
Magnús Einarsson organisti mun hafa verið fyrsti
stjórnandinn og síðan líklega Hjalti Espólín. Þegar
Karl Runólfsson tónskáld kemur hingað 1929, end-
urvekur liann starfið og stjórnar til 1934. Þá verður
hlé til ársins 1941, að Jakob Tryggvason er beðinn
að vekja starf lúðrasveitarinnar, sem hét Lúðra-
sveitin Hekla, frá dögum Magnúsar Einarssonar.
Norðlenzka karlakórasambandið hafði þá tekið upp
Heklunafnið, svo að nafni lúðrasveitarinnar var
breytt í Lúðrasveit Akureyrar. Lúðrasveit Akureyr-
ar varð 20 ára í síðastl. janúar, því að ekki var fylli-
lega gengið frá stofnun félagsins fyrr en 1942. Jakob
Tryggvason hefur lengst af verið stjórnandi síðan.
Lúðrasveitin leikur við alls konar tækifæri á Akur-
eyri og víðar, og árlega heldur hún hljómleika í
kirkju bæjarins. Formaður Lúðrasveitarinnar er
Sigtryggur Helgason og hefur verið lengi.
Hversu er tónfræðslu í skólum varið?
Hún mun vera eins og til stendur. Fyrir nokkr-
um árutn fór söngflokkur barna í söngför til Noregs
undir stjórn Björgvins Jörgenssonar. Síðastliðin 4
ár hefur Barnaskóli Akureyrar haft kennslu í fiðlu-
leik og jafnlengi hefur Jakob Tryggvason æft þar
lúðrasveit drengja, sem vakið liefur athygli og orð-
ið bæjarbúum til ánægju. Hefur sveit þessi farið
ferðir um landið og suður til Reykjavíkur og leik-
ið við góðan orðstír. Birgir Helgason söngkennari
liefur haft blokkflautuflokk, sem komið hefur fram
á skemmtunum skólans.
Svo er það sjálfur Tónlistarskólinn?
Hann hefur starfað hér síðan um áramótin 1945—
1946. Jakob Tryggvason er skólastjóri og hefur ver-
ið það síðan 1950. Fastir kennarar eru tveir. Krist-
inn Gestsson í píanóleik og Sigurður Örn Stein-
grímsson í fiðluleik. Auk þess kenna við skólann:
Soffía Guðmundsdóttir, Þyri Eydal og Margrét Ei-
ríksdóttir á píanó, og á klarínett Sigurður Jóhann-
esson. Orgelleik kennir skólastjórinn, bæði á pípu-
orgelið og harmonium. Skyldufag er tónfræði, auk
aðalgreina. Undanfarin ár hafa að jafnaði verið um
60 nemendur í skólanum. í lok skólaárs eru haldnir
opinberir tónleikar, auk þess eru nemendatónleikar
oft á vetri innan skólans. Hefur verið fróðlegt að
fylgjast með starfsemi skólans, því að vel má greina,
að það er að myndast menningarræktun í leik nem-
enda, og má það þakka ágætum kennurum og stjórn
skólans. Er skólanum skipt í átta námsstig. Má geta
þess, að ung stúlka, sem verið hafði nemandi skól-
ans, og fór til framhaldsnáms í píanóleik í haust
til Edinborgar, reyndist mjög vel undirbúin. Gat
hún ekki aðeins gengið inn í námið í beinu fram-
haldi af því, sem hún hafði lært hér heima, heldur
lokið þremur námsstigum á einum vetri og það með
sérlega góðum vitnisburði. Má vænta þess, að starf-
semi skólans eigi eftir að bera ríkulegan ávöxt í
framtíðinni.
Hátíðablað Dags þakkar frú Margréti Eiríksdótt-
ur hin ágætu svör.
DAGUR 37