Dagur - 29.08.1962, Blaðsíða 50
HEIÐURSBORGARAR
KUREYRARKAUPSTAÐUR hefur átt sex
heiðursborgara: Matthías Jochumsson, Finn
Jónsson prófessor, Jón Sveinsson (Nonna), Odd
Björnsson, Margrete Schiöth og Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi, sem einn er á lífi af þeim, sem kaup-
staðurinn hefur heiðrað á þennan hátt.
BÆJARSTJÓRAR
ÍJÆJARSTJÓRAR hafa aðeins verið þrír á Akur-
eyri. Þeir eru þessir:
Jón Sveinsson 1919—1934.
Steinn Steinsen 1934—1958.
Magnús E. Guðjónsson frá 1958.
BLÖÐIN
T|AGUR, frá 1918. Ritstjórar ltans hafa verið 8 tals-
ins og í þessari röð: Ingimar Eydal, Jónas Þor-
bergsson, Þórólfur Sigurðsson, Friðrik A. Brekkan,
Sigfús Halldórsson frá Höfnum, Jóhann Frímann,
Haukur Snorrason og Erlingur Davíðsson frá 1956.
Verkamaðurinn hóf göngu sína 1918. Fyrsti rit-
stjóri hans var Halldór Friðjónsson, Þá Erlingur
Friðjónsson, Einar Olgeirsson, Steingrímur Aðal-
steinsson, Jakob Árnason, Rósberg G. Snædal, Þórir
Daníelsson, Ásgrímur Albertsson, Björn Jónsson,
Þorsteinn Jónatansson, Hjalti Kristgeirsson og
Kristján Einarsson frá Djúpalæk.
íslendingur var stofnaður 1915. Fyrsti ristjóri
var Sigurður E. Hlíðar, Þá Ingimar Eydal, Brynleif-
ur Tobíasson, Jónas Jónasson, Gunnlaugur Tr.
Jónsson, Brynjólfur Árnason, Alfreð Jónsson, Ein-
ar Ásmundsson, Konráð Vilhjálmsson, Jakob Ó.
Pétursson, Bárður Jakobsson, Magnús Jónsson,
Eggert Jónsson og Tómas Tómasson. Ritstjóri óslit-
ið síðan 1951 er Jakob Ó. Pétursson.
Alþýðumaðurinn er fjórða vikublaðið, sem nú er
gefið út á Akureyri, stofnaður 1931. Ritstjórar hans
hafa verið: Halldór Friðjónsson til 1947 og síðan
Bragi Sigurjónsson.
Blaðaútgáfa er orðin nokkuð gömul á Akureyri.
Norðri var gefinn út 1853—1855 undir ritstjórn
Björns Jónssonar (leldri), Jóns Jónssonar og Sveins
Skúlasonar. Norðanfari hóf göngiu sína 1862 og var
gefinn út til ársins 1885. Ritstjóri hans var einnig
Björn Jónss'on. Gangleri var gefinn út 1870—1871.
Ristjóri Friðbjörn Steinsson. Norðlingur kom út
árin 1875—1882 og var Skafti Jósepsson ritstjóri.
Fróði var gefinn út í 7 ár, frá 1880. Björn Jónsson
(yngri) og Þorsteinn Arnljótsson stýrðu honum.
Norðurljósið, undir ritstjórn Páls Árdals og Frið-
björns Steinssonar, kom út 1886—1892. Lýður, blað
þjóðskáldsins Matthíasar kom út árin 1888—1891.
Stefnir kom út 1893—1905. Fyrsti ritstjóri var Páll
Árdal. Norðurland, kom út nær tvo áratugi, frá
48 D A G U R