Dagur - 29.08.1962, Blaðsíða 54
Zophonias Arna-
son yfirtollvörður.
TOLLGÆZLAN
F'YRSTI tollgæzlumaður á Akureyri var Hannes
Gamalíelsson, þá Gísli Indriðason, Jón Matthí-
asson, Alfreð Jónasson og Zophonías Arnason frá
1935 til þessa dags. Árið 1938 var tollgæzlan aukin
og aðstoðarmenn ráðnir.
Núverandi þollþjónar eru, auk Zophoníasar, Her-
bert Jónsson og Haraldur M. Sigurðsson, sá síðast-
nefndi yfir sumarmánuðina 5 síðustu ár.
Zophonías Árnason var skipaður yfirtollvörður
1942 á svæðinu frá Akureyri til Þórshafnar.
Verksvið tollgæzlunnar er eftirlit með skipum og
vöruflutningi og á síðari árum tollflokkun og skoð-
un á innfluttum vörum.
SLÖKKVISTÖÐIN
ÁRIÐ 1901 var stórbruni á Akureyri. Brann þá
■r*' Hótel Akureyri, 6 hús önnur og 5 skemmdust.
Þrem árum síðar samþykkti bæjarstjórn að kaupa
dönsk slökkvitæki, handdælur og slöngur, og að
sernja reglugerð um brunavarnir í bænum.
Fyrsti slökkviliðsstjóri var Ragnar Ólafsson, kaup-
maður. Aðrir, sem því starfi hafa gegnt eru: Axel
Schiöth, Eggert Melstað, Ásgeir Valdimarsson og
Sveinn Tómasson, frá 1961.
Fyrsta slökkviliðsæfing var haldin 28. maí 1906.
Tækin voru mjög ófullkomin.
Brunahanar voru settir upp og skipulagning
vatnsveitu var gerð 1914. En árið 1916 var byggð
slökkvistöð í Brekkugötu 12. En vaktavinna á
slökkvistöð hófst ekki fyrr en 1953.
Nú er Slökkvistöð Akureyrar til húsa í Geisla-
götu. Þar eru 4 menn á vöktum allan sólarhringinn
og samtals eru slökkviliðsmenn 42 talsins, sem kall-
aðir eru út þegar bruna ber að höndum.
Auk smærri tækja hefur slökkviliðið 2 brunabíla,
2 hjólastiga, 2 háþrýstidælur og 3 lágþrýstidælur.
Auk þess er þarna staðsettur slökkvibíll, sem 6
hreppar sýslunnar eiga. Hann er búinn 2 dælum.
PENINGASTOFNANIR
AÐALBANKAR landsins hafa útibú á Akureyri.
Útibúi Landsbankans stjómar Jón G. Sólnes,
útibúi Búnaðarbankans Steingrímur Bernharðsson
og útibúi Ú tvegsbankans Júlíus Jónsson.
Sparisjóði Akureyrar stjórnar Sverrir Ragnars og
Jón M. Benediktsson veitir Sparisjóði Glæsibæjar-
hrepps, sem hefur afgreiðslu á Akureyri, forstöðu.
IÐNAÐARMANNAFÉLAGIÐ
jþETTA FÉLAG var stofnað á Akureyri árið 1904,
hinn 4. nóvember. Iðnaðarmannafélagið var þá
og í mörg ár nær eina félagið á Akureyri, er veru-
lega kvað að. Það beitti sér fyrir mjög mörgum
framfaramálum og var iðnskólinn eitt aðaláhuga-
mál þess frá fyrstu tíð.
Fyrsti formaður var Oddur Björnsson, prent-
meistari, en núverandi formaður er Sveinn Tómas-
son, slökkviliðsstjóri, frá 1955.
Aðalverkefni nú eru ýmiss konar fræðslumál,
innan félagsins. Meðlimir eru 82.
Vel sé þeim, sem vinna að hreinlœti.
52 DAGUR
wmm