Dagur - 29.08.1962, Blaðsíða 45
Gjöld ........................... kr. 235.924.93
Mismunur ........................ — 37.580.95
Samtals kr. 273.505.88
Fjárhagsafkoman í heild var því mun betri síðast-
liðið ár en venjulega hefur verið.
Eignir félaganna eru samkvæmt ársskýrslum sam-
tals kr. 170.363.90.
Innanhússæfingar yfir vetrartímann fara að mestu
fram í íþróttahúsi Akureyrar, sem tekið var í notk-
un sama ár og Í.B.A. var stofnað, og svo í Sundlaug
bæjarins. íþróttaleikvangur Akureyrar austan við
Brekkugötu er svo aðalmiðstöð fyrir æfingar úti-
íþrótta bæði sumar og vetur. Síðustu árin hafa ís-
landsmót í ýmsum greinum farið fram á þessum
leikvangi og nokkur úrvalslið frá öðrum þjóðum
hafa komið og keppt við Akureyringa þar. Í.B.A. og
sérráð þess hafa nú fengið til umráða eitt herbergi
í hinni nýju byggingu við leikvanginn og verður
Jrar skrifstofa bandalagsins. í íþróttahúsinu hefur
bandalagið fundarsal og stærstu félögin, K.A. og Þór,
hafa þar sitt herbergið hvort til sinna afnota. Skíða-
skálinn í Hlíðarfjalli er senn að verða fullbúinn til
afnota fyrir skíðamenn bæjarins. Eru miklar vonir
bundnar við hann varðandi eflingu skíðaíþróttar-
innar.
Ekki verður annað sagt en að vel sé búið að æsku-
fólki bæjarins með skilyrði til íþróttaiðkana. Þó er
töluvert enn á óskalista þess, sem býður úrlausnar,
svo sem stór íþróttasalur til sýninga og keppni, vél-
fryst skautasvell og æfingavellir fyrir knattleiki í
innbænum, útbænum og uppi á brekkum.
Það var mikill framfarahugur í æskumönnum Ak-
ureyrar í byrjun þessarar aldar. Þeir, sem stofnuðu
„Glímufélagið Gretti“ og U.M.F.A. urðu þjóðkunn-
ir, og út frá þeirra starfsemi vaknaði íþrótta-áhugi
um allt landið. Æskumenn Akureyrar nú hafa að
sjálfsögðu breytt viðhorf vegna breyttra tíma, en
Jreir eru engu síður fullir áhuga fyrir því að vinna
íþróttaafrek fyrir bæinn sinn, vinna að því að hann
geti orðið miðstöð fyrir vetraríþróttir, sem hann
hefur skilyrði til og vinna að eflingu alls þess, sem
Akureyri horfir til heilla.
Armann Dalmannsson.
Knaltspyrnuflokkur íþróttabandalags Akureyrar árið 1962.
D AGU R 43