Dagur - 29.08.1962, Blaðsíða 46
Lysti-
garáurinn
50 ára
í ÞESSU ÁRI er Lystigarður Akureyrar hálfrar
aldar gamall. Stofnaður 1912 að frumkvæði
danskrar konu Önnu Katharine Schiöth, og síðan
stjórnað af tengdadóttur hennar, Margréti Schiöth,
um 30 ára skeið af rniklum dugnaði og fórnfýsi eins
og alkunnugt er. Á þessu tímabili hafa að sjálfsögðu
allmargir menn og konur unnið við garðinn, um
lengri eða skemmri tíma, en Þuríður Árnadóttir
eða Þura í Garði eins og hún er jafnan kölluð,
mun hafa starfað þar lengst. Vann hún við garðinn
í mörg ár af einstakri trúmennsku og gladdi nrarg-
an gest og gangandi með sínum smellnu gamanvís-
um. Þá ber að minnast þess, að um fjölda mörg ár
var Vilhelmina Sigurðardóttir Þór, gjaldkeri garðs-
ins, og tók aldrei eyri fyrir sína fyrirhöfn.
Lystigarður Akureyrar er annars fyrsti almenn-
ings- eða skemmtigarðurinn, sem komið er upp hér
á landi, enda liafði Akureyri lengi verið í farar-
broddi með ræktun og gróður. Er þar um að ræða
að öðrum þræði áhrif frá áhugasömu dönsku fólki,
sem hér hafði setzt að og sumt ílengst í landinu,
svo og hinum landskunnu áhuga- og hugsjónamönn-
um þeim Sigurði Sigurðssyni búnaðarmálastjóra og
Stefáni Stefánssyni skólameistara, en báðir þessir
menn höfðu átt heima á Akureyri í nokkur ár er
Lystigarðinum var komið upp, og efalaust stutt að
stofnun hans.
Tvisvar sinnum síðan 1912 hefur garðurinn verið
stækkaður, og er liann nú um 3 ha, en það er líka
komið svo, að frekari stækkun virðist útilokuð, í
framtíðinni, og er slíkt illa farið.
Það hafði alllengi verið draumur nokkurra mætra
manna, að komið yrði upp grasgarði (botaniskum
garði) hér á landi. Mun dr. Helgi Jónsson grasafræð-
ingur fyrstur manna hafa komið fram með hug-
myndina á prenti í Búnaðarritinu 1906.
Stuttu síðar kemur Sigurður Sigurðsson með að-
stoð Helga Jónassonar upp nokkru safni íslenzkra
jurta í Gróðrarstöðinni á Akureyri. Eftir að Sigurð-
ur flutti burtu frá Akureyri hnignaði þessu safni
fljótt, enda aldrei mjög stórt, og eyðilagðist smám
saman alveg. Þá mun Stefán skólameistari líka hafa
safnað nokkrum tegundum plantna í garð skólans.
Þá er vitað að þeir Einar Helgason og dr. Helgi
Jónsson söfnuðu nokkru af plöntum í Gróðrarstöð-
inni í Reykjavík, en fljótt mun sú viðleitni hafa lið-
ið undir lok.
Það verður þá fyrst að nokkur skriður kemst á
þetta mál, er Fegrunarfélag Akureyrar undir for-
mennsku Sigurðar L. Pálssonar, menntaskólakenn-
ara, beitir sér fyrir því að koma upp grasadeild í
sambandi við Lystigarðinn og hófust þær fram-
kvæmdir 1957 eða fyrir 5 árum. Síðan hefur Lysti-