Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 2
2 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 Fréfdr Sigurður Nordal. Norrænahúsið: verkiNordals í dag klukkan 14 gengst stofnun Siguröar Nordals fyrir dagskrá í Norræna húsinu i tilefni af út- komu þriggja nýrra binda í rít- safni hans um íslenskar fornbók- menntir. Þar flytja Jónas Kristjánsson, fv. forstöðumaöur Stofnunar Áma Magnússonar, dr. Gunnar Karlsson prófessor og dr. Gunnar Harðarson lektor erindi um Síg- urð, verk hans og áhrif, og Þor- leifúr Hauksson cand. mag. les úr áður óbirtum drögum aö 2. bindi íslenskrar menningar en þau kailaöi Siguröur Fragmenta ultima. Öllum er heimiU aðgangur meðan húsrúm leyfir. Þjófarstela frá listamönnum Brotist var inn í húsakynni Bandalags íslenskra listamanna aðfaranótt fimmtudags og stolið þaöan tölvu. Þjófarnir hafa ekki náðst. Hér er um talsvert tjón fyrir Bandalagiö að ræða þar sem mik- ið af gögnum var á haröa diskin- um og er skoraö á þjófinn eða þjófana að skila tölvunni þar sem hún er verðlítil en gögnin illmet- anleg. Einnig var brotist inn á skrif- stofu Kvikmyndasjóös sem er til húsa á sama stað og bandalagiö. Þaðan var stolið tveimur mynd- bandstækjum, af Panasonic gerð, og Macintosh tölvu. ___ 6»*« Mii - h*I lijl rinnri ti liihrljíti ?£:£££llílrwwkU Ifib Smtunj i) Sik* kji Buit Riii« 99«S 886 l-” '- '• 1'-: .S£SffiU:SABA-S Spntitil Killiiiijilm nti IjilJi {Itsilijn littítji I - Sji hkiiki Jólagjafahandbók Bónus Radíó fylg- ir DV í dag. í handbókinni er að finna upplýsingar um fjölmargar vörur verslunarinnar. Að auki er er boöið upp á þátttöku i jólaleik Bónus Rad- ió þar sem í vinning eru meðal ann- ars Samsung þráðlausir símar, 29" sjónvarpstæki, myndbandstæki og margt fleira. Kanadískt fyrirtæki með umdeild umsvif á íslandi: Þetta hafa verið svik á svik ef an - segir framkvæmdastjóri Hafnarsels hf. á Selfossi „Þaö er ekki hægt að eiga viðskipti viö þetta fyrirtæki. Þaö er ekki oröi treystandi af því sem þessi maöur segir og ástæöa til aö vara við hon- um. Þetta hafa verið svik á svik ofan og það er raunar óskiljanlegt hver ástæðan er fyrir þessum svikum þar sem hann græddi ekki einu sinni á þeim,“ segir Baldur Sigurðsson, ann- ar eigenda fiskvinnslunnar Hafnar- sels hf. á Selfossi, vegna viðskipta hans viö fyrirtæki sem íslendingur rekur í Kanada. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins var aö sögn Baldurs á ferð í sumar hérlendis þar sem hann fór víða og leitaði viöskipta varöandi m.a. útflutning á saltfiski og inn- flutning á timbri. Baldur segir að hann og Grétar Pétursson meöeigandi hans hafi tap- aö umtalsverðum fjárhæðum á viö- skiptum við fyrirtækið sem heitir Can-Ice. Þá segir hann að önnur fyr- irtæki hafi skaðast á viðskiptum við fyrirtækið bæði fjárhagslega og vegna þess að svik hins kanadíska fyrirtækis hafi oröið til þess að við- komandi hafi lent í slæmum málum gagnvart öðrum viðskiptaaðilum. „Við teljum okkur hafa tapað þremur mfiljónum á þessum við- skiptum. Hann setti rekstur okkar í verulega hættu og ef við heföum ekki áttað okkur í tíma heföi þetta getað komið okkur í koll. Við erum í fullri starfsemi í dag í samvinnu við mjög góða útflytjendur," segir Baldur Rekið af íslendingi Can-Ice fyrirtækið er rekið af ís- lendingi sem fór til Kanada fyrir um aldarfjórðungi. Hann kom hingaö til lands í vor og fór þá víða um land Eigendur Hafnarsels. þeir Baidur Sigurðsson og Grétar Pétursson, sem átt hafa í viðskiptum við Can-lce og segja fyrirtækið hafa svikið sig um allt aö þremur milljónum króna. Á myndinni eru þeir með saltfisk sem þeir vinna. og falaöist eftir viðskiptum. Slóðina má rekja um Suðurland, á Reykja- víkursvæðinu og á Norðurlandi. DV hefur rætt við forsvarsmenn tiu fyr- irtækja sem átt hafa í viðskiptum við Can-Ice og ber þeim saman um að viðskipti við fyrirtækið hafi ails ekki verið með eölilegum hætti. Það hafi ekki getað staðið viö tryggingar vegna vöru og krafist verðlækkana þegar viðskipti hafi veriö komin á og varan komin í hendur kaupanda. Einn oröaöi það sem svo að öll þessi viðskipti hafi verið með stórundar- legum hætti. Af þeim fyrirtækjum sem rætt var við vildi enginn mæla DV-mynd Reynir Traustason með viðskiptum við Can-Ice og flestir höfðu slæma sögu að segja. Neitaði að greiða „Við vorum með litla starfsemi í Þorlákshöfn þegar þessi maður ósk- aði eftir sérunnum saltfiski. Þá lögð- um við út í að stækka við okkur og fluttum starfsemina á Selfoss. Við framleiddum fyrir hann upp í þessar pantanir eftir hans forskrift og send- um honum prufur sem honum leist vei á. Síðan hefur á ýmsu gengið. Fyrstu pöntunina tók hann aldrei, þaö voru fisklundir sem er viðkvæm vara og eyðilagðist á endanum. Síðar Halldór Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins: Stærsta skuldbreyting ís- landssögunnar óumf lýjanleg „Við getum ekki sætt okkur við að heimilin haldi áfram að safna skuld- um upp á einn milljarö á mánuði og íslendingar mega aldrei sætta sig við að þúsundir manna gangi um at- vinnulausir. Við vitum að þetta ástand heggur að rótum lýðræðisins. Við vitum líka að þetta var helsta ástæðan fyrir þeim trúnaðarbresti sem er milli stjórnmálamanna og kjósenda. Það er ekki nóg að setja upp samúðarsvip og segja að ástand- ið muni lagast í óljósri framtíð. Við verðum aö sýna aö við ætlum að lag- færa ástandiö og benda á raunhæfar leiðir til úrbóta. Stærsta skuldbreyting íslandssög- unnar er óumflýjanleg. Með sam- íXSi. fý FRAMÍ' r, ÁRMáHHA Þú getur svaraö þessarí spurningu meö því aö hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. Já jJ Nei ,r ö d d FOLKSINS 99-16-00 Er skylduáskrift að ríkisútvarpinu réttmæt? Aðelns iielf sem eru 1 stafræna kerflnu oe eru mei> tónvalssiina geta tekltt þýtt. Halldór Ásgrímsson flytur ræöu sina á flokksþinginu i gær. DV-mynd BG vinnu ríkis, peningastofnana, laun- þegahreyfingar og fleiri aðila, verður að gera fólki kleift að standa í skilum. Ríkisvaldinu hefur mistekist að við- halda þeim grundvell^ sem skuld- bindingar heimilanna býggðust á og ber því aö skap nýjan. Hjá þessu verður ekki komist. Tillögur þessa efnis liggja fyrir flokksþinginu." sendum við honum saltfiskbita sem við höfðum sérunnið og pakkað að hans forskrift. Þessi sending var að verðmæti 1250 þúsund krónur hann greiddi inn á hana 65 prósent af umsömdu verði eða rúm 800 þúsund. Hann neitaði aö borga afganginn og fer aö auki fram á það aö við endur- greiðum honum 200 þúsund krónur þannig að hann viil aðeins greiða um helming af umsömdu veröi. Athuga- semdir hans komu svo ekki fyrr en tveimur mánuöum eftir að hann fékk vöruna," segir Baldur. Segja sömu sögu Baldur segist vita það að fleiri fyr- irtæki séu í svipuöum sporum varð- aridi þetta sama fyrirtæki. Það virð- ist vera viðtekin venja hjá fyrirtæk- inu að fá senda vöru og verðfella hana síöan á grundvelli þess að um sé að ræða skemmda vöru. „Ég vil taka það skýrt fram að hann skoöaði þessa vöru hjá okkur og var sáttur viö hana en segir nú að h'in sé skemmd. Við eigum afgang .ú þessari vöru hér í húsi og þaö er á hreinu að þetta er góð vara. Við telj- um okkur skylt að vara aðra útflytj- endur og framleiðendur við þessu fyrirtæki," segir Baldur. „Þetta er loftkastalafyrirtæki sem þykist allt geta en ræður svo ekki við neitt. Mér er kunnugt um að fyr- irtæki hafa skaðast á viðskiptmu á við hann. Ég get ekki mælt með þessu fyrirtæki en þessi maður hefur ein- staka hæfileika til aö kjafta fólk upp úr skónum," segir forsvarsmaður fyrirtækis sem átt hefur umtalsverð viöskipti viö hið kanadíska fyrir- tæki. Stuttar fréttir Þetta sagöi Halldór Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, meðal annars í yfirhtsræðu sinni í upphafi flokksþings Framsóknar- flokksins í gær. Halldórs fór í ræðu sinni vítt og breitt yfir sviðið. Hins vegar má full- yrða að þessi tillaga framsóknar- manna að standa að mestu skuld- bi'eytingu íslandssögúnnar til bjarg- ar fjárhag heimilanna var sá kafli ræðu formannsins sem mesta at- hygli vakkti. HaUdór sagöi varðandi skattamál að ef Framsóknarflokkurinn fái að ráöa verði ekki um frekari skatta- hækkanir að ræða á næsta kjörtíma- bih. Hann sagðist heldur ekki ætla aö lofa skattalækkun nema um um- talsverðan hagvöxt veröi aö ræða. Hann sagðist telja að allt umfram 2 prósent hagvaxtaraukningu aö meö- altali á næsta kjörtímabili kæmi til góða í lægri sköttum. „Ég tel engar líkur á að við getum á þessari stundu fengið þær undan- þágur í samningurn við Evrópu- bandalagið sem hugsanlega gæti réttlætt aðild íslendinga aö því. Þess vegna hafna ég því að við sækjum um aðild,“ sagði Halldór Ásgrímsson í umfiöllun sinni um Evrópusam- bandiö. Þinginu lýkur á morgun, sunnu- dag. Kröfur kennara Samtök kennara settu fram launakröfur sinar hjá samninga- nefrid ríkisins í gær. Samkvæmt RÚV hljóöa kröfumar upp á allt að fiórðungshækkun iauna. Fækkun slysa Ríkisstjórnin samþykkti í gær að stefria að verulegri fækkun alvarlegra umferöarslysa fram til ársins 2000. Launþegasamtök og Samvinnu- ferðir-Landsýn hafa samið viö fiölmargaferðaþjónustuaðiia um að bjóða sérstakt stéttarfélags- verð á ferðum innanlands í vetur. Gjafiríþjóðaráfak Sendiráð Bandaríkjanna og Þýskaiands hafa gefið vegiegar bókagjafir í þjóðarátak stúdenta vegna nýju Þjóðarbókhiöðunnar, Hlutabréf Itfeyrissjóða Lífeyrissjóðimir keyptu hluta- bréf á síðasta ári fyrir 790 milfión- ir króna sem er 200 miRjónum minni kaup en árið 1992. Litilarðsemi Samkvæmt könnun VSÍ var arðsemi islensks atvinnulifs árin 1987-1992 nánast engin á meðan hagnaður af veitu fyrirtækja í OECD-ríkjum var um 5 prósent.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.