Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 8
8
LAUGARDAiiUR 26. NÓVEMBER 1994
Vísnaþáttur
Vinnumaður
á Fjöllmn
Kristján Jónsson Fjallaskáld var
fæddur áriö 1842 í Krossdal í Keldu-
hverfi í Norður-Þingeyjarþingi.
Kristján óx upp til tólf ára aídurs
á bæjum í Kelduhverfí en fluttist
þá til Öxarfjarðar. Var Kristján síð-
an vinnumaður á Hólsfjöllum
1859-63 og er viðurnefnið Fjalla-
skáld dregið af vist hans þar í sveit.
Kristján settist í Latínuskólann í
Reykjavík 1864 en sagði sig úr skóla
vorið 1868 að 3. bekk loknum og
réðst sem barnakennari til Vopna-
fjarðar og átti þar heima síðan.
Ljóðmæh komu fyrst út 1872 en
hann lést þrem árum fyrir útkomu
þeirra. Kristján varð snemma
nafnkenndur af kvæðum sínum
sem birtust í blöðunum Norðra og
íslendingi síðla árs 1861 þá hann
var nítján ára vinnumaður á Hóls-
fjöllum.
Á leið ofan af Fjöllum á hesti sem
Stormur hét kvað Kristján skáld:
Háum byggöum hélt ég frá,
hló í brjósti von og fró,
fráum Stormi fluttur á
fló ég yfir hæð og mó.
Margar eru syndir vorar og yfir-
sjónir og óvíst hvernig himnafaðir-
inn bregst við þeim þegar kvittanir
eru yfirfarnar og úrskurður um
vistun er kveðinn upp. En Kristján
er bjartsýnn í þessu tilfelli þó að
bölmóður og armæða hafi jafna
fylgt sveini. Svo kveður hann:
Þótt séu brot til sekta nóg
og syndir margháttaðar,
í himnaríki held ég þó
þeir holi mér einhversstaðar.
Af einhverju hefur Krislján
vinnumaður af Fjöllum verið að
missa þegar hann kveöur þessa
vísu:
Sveinn á Búðum fái fjúk,
fékk hann hana Stínu,
öndin spriklar öfundsjúk
innan í brjósti mínu.
Oft höfum vér hinir ölkæru piltar
teygað mjöðinn okkur til hugar-
hægðar og sefað raunir vorar og
víl. En misjafn er ávöxturinn þar
af og fór Kristján vinnumaður ekki
varhluta af því. Svo hijóðar her-
hvöt hans:
Drekkum bræður iðu öls,
árnum mæðu bana,
þegar hræða hrannir böls
hjarta næðisvana.
Lengi hafa Húnvetningar goldið
fyrir syndir feðranna og vísar
Kristján til alkunnra mála í næstu
vísu:
TOLLSTJÓRINN
REYKJAVÍK
Greiðsluáskorun
Tollstjórinn í Reykjavík skorar hér með á gjaldendur,
sem ekki hafa staðið skil á gjaldföllnum og ógreiddum
álagningum og hækkunum er féllu í gjalddaga til og
með 24. nóvember sl. í virðisaukaskatti, trygginga-
gjaldi, launaskatti og söluskatti, að gera skil nú þegar
eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu þessar-
ar áskorunar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum
og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann
að leiða, á kostnað gjaldenda, að þeim tíma liðnum.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjár-
námsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr.
fyrir hverja fjámámsgerð. Þinglýsingargjald er 1.000
kr. og stimpilgjald er 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvatt-
ir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi
og kostnað.
Reykjavík 24. nóvember 1994
Tollstjórinn í Reykjavík
Á æfi minni er engin mynd,
hjá austanvérum slyngum
ég er eins og kláöakind
í klóm á Húnvetningum.
Vísu þessa kvað Kristján við
stúlku eina:
Lát sem fljótast lyndisgljúp
hfsins straum þig bera
ofan í það undirdjúp
eiginkona að vera.
Oft er eina flóttaleiðin frá dægur-
þrasi og amstri að gefa sig á vald
drauma í svefni og vöku. Svo kveð-
ur Kristján:
Geng ég dapur gegnum kífs
gremjusollna strauma,
en sælla nýt þó löngum lífs
á landi minna drauma.
Næstu vísu kveður Kristján um
mjólkurpelann sinn og finnur ein-
hverja samsvörum með gripnum:
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Löngum fullur lá á beð
líkt og dóni kenndur;
það er líka margur með
marki þessu brenndur.
Eitthvað hefur Kristján verið
orðinn mæddur á vegferð sinni
þegar hann kveður:
Enginn spornar ýta viö
örlaga þungum straumi.
Ó, að ég mætti finna frið
fjarri heimsins glaumi.
Hver hefur ekki kveðið með til-
þrifum þjóðsöng okkar gleði-
manna:
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima,
nú er horfið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.
Matgæðingur vikunnar_dv
Humarveisla
„Mér finnst mjög gaman og af-
slappandi að búa til mat. Þegar
maður hefur verið í vinnunni allan
daginn er ágætt að fara í matar-
gerðina," segir Sesselja Guð-
mundsdóttir, matgæðingur vik-
unnar. Sesselja, sem er háriðn-
meistari, ætlar að bjóða lesendum
upp á tvær humarúppskriftir og
góöa tertu í eftirrétt. Hún segist
hafa mest gaman af að elda fisk.
Sesselja á auðvelt með að nálgast
humar þar sem eiginmaður hennar
er með humarverkun. „Ég býð
gestum yfirleitt í humar enda er
hægt að matreiða hann á svo marg-
víslegan hátt. Ég á fjölmargar upp-
skriftir að humri en læt þessar
tvær nægja núna,“ segir Sesselja.
Grillaðir
humarhalar
1 Vi kíló humar í skel
100 g smjör
2 hvítlauksrif
brauðrasp
hvítlaukssalt
Humarinn er skorinn við aftasta
lið (bakið) og humarkjötinu lyft
upp á skelina, görnin fiarlægð,
smjörið brætt en má ekki hitna og
hvítlaukurinn pressaður út í. Þá
er humarinn settur á ofngrind,
penslaður með smjörinu, brauð-
raspi stráð yfir og kryddaður með
hvítlaukssalti. Humarinn er síöan
grillaður undir grillinu í bakara-
ofninum í 5-7 mínútur eða þangað
til humarkjötið er orðið stíft. Borð-
aður með ristuðu brauði, ísbergs-
eða lambhagasalati, steinselju- eða
agúrkusósu.
Steinseljusósa
1 dl sýröur rjómi
1 dl majónes
Sesselja Guðmundsdóttir háriðn-
meistari er matgæðingur vikunn-
ar. DV-mynd
sítrónusafi
2 pressuð hvílauksrif
Vi búnt fersk steinselja
Allt hrært saman og látið bíða í
4-6 tíma í kæli.
Agúrkusósa
1 dl sýrður rjómi
1 dl majónes
sítrónusafi
1 dl sýrðar agúrkur
Safinn sigtaður frá agúrkunum,
þær hakkaðar í matvinnsluvél og
hrærðar í sósuna. Mjög góöar sósur
með ölium fiskréttum.
Marineraður humar
500 g skelflettur humar
Vi dl olífuolía (Berio)
■Zi dl þurrt hvítvín
2 msk. koníak
2 msk. sítrónusafi
'A græn paprika
'A rauö paprika
Vi púrrulaukur
sítrónupipar
aromat-krydd frá Gevalia
Humarinn er þerraður og lagður í
marineringarlöginn í sex tíma. Síð-
an er allt sett í pott, jafnt lögurinn
og humarinn, og suðan látin koma
upp. Kryddað með sítrónupipar og
aromati. Þykkt með sósujafnara.
Borið fram með laussoönum hrís-
grjónum og ristuðu brauði. Þetta
er mjög upplagður réttur t.d. á
gamlárskvöld. Maður getur átt
þetta tilbúið í ískápnum og sett í
pott um miðnætti þegar allir eru
orðnir svangir. Þetta er mjög góður
réttur.
Fljótleg terta
1 svampbotn
250 g fersk jarðarber
4 stk. kiwi
lítill pakki After Eight
2 Vi-3 Vi dl rjómi
1-2 tsk. strásykur.
Svampbotninn er klofinn í tvennt
með hnífi. Rjóminn er þeyttur,
jarðarberin skoluð og hreinsuð,
skorin í tvennt og sykrinum stráð
yfir. Rjómi er settur á báða köku-
helmingana, eitt kiwi er skorið nið-
ur og sett á annan helminginn
ásamt hluta af jarðarberjunum og
sex plötur af After Eight sem hafa
verið smátt skornar og þá er hinn
helmingurinn af botninum settur
yfir og skreytt með jarðarberiun-
um, kiwi (skorið í sneiðar) og Áfter
Eight. Þegar kakan hefur verið
geymd í ísskáp í nokkra tíma hefur
rjóminn tekið í sig bragð af súkkul-
aðinu og það er mjög gott. Þetta er
einfóld terta sem fljótlegt er að
gera.
Sesselja ætlar að skora á mág-
konu sína, Sigrúnu Inger Helga-
dóttur, bónda í Borgarfiröi, að
verða næsti matgæöingur. „Hún er
góöur kokkur og fljót að búa til eitt-
hvað gott.“
Hinhliðin_______________________________
Langar að lesa Ólaf Jóhann
- segir Gunnlaugur Helgason útvarpsmaður
Gunniaugur Helgason er kominn
til landsins eftir að hafa stundaö
leiklistamám í Los Angeles. Gulli,
eins og hann er alltaf kallaður,
hefur verið einn öflugasti útvarps-
maður Bylgjunnar undanfarin
sumur en hefur nú söðlaö um og
hafið störf hjá FM 957. Þar er Gulli
Helga nú með morgunþátt og segist
hafa gaman af að prófa FM þar sem
nýir eigendur séu við völd og út-
varpsstööin á uppleið. Þaö er Gulh
Helga sem sýnir hina hliðina að
þessu sinni:
Fullt nafn: Gunnlaugur Helgason.
Fæðingardagur og ár: 26. ágúst
1963.
Maki: íris Erlingsdóttir.
Börn: Helgi Steinar sem er fimm
og hálfs árs.
Bifreið: Nissan Sunny, árgerð 1991.
Starf: Dagskrárgerðarmaöur og
leikari.
Laun: Þau fara eiginlega eftir árs-
tíðum.
Áhugamál: Kvikmyndir og vinnan
mín.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Ég hef fengið fjóra rétta í
lottóinu hér heima og líka í Banda-
ríkjunum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Liggja á ströndinni í Kali-
forníu með fjölskyldunni og slaka
á.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að sitja fastur í fjörutíu stiga
hita í trafííkinni í Los Angeles með
bilaöa loftkæhngu.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur, maður
Gunnlaugur Helgason útvarps-
maður.
fær þær bara einu sinni á ári.
Uppáhaldsdrykkur: Undanrenna
og íslenskt vatn.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Eiður Smári
Guðjohnsen.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf og
Hollywood Reporter.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Marisa
Tomei.
Ertu hlynnntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Anthony Hopkins og aðeins
lengur en þegar ég hitti hann síð-
ast.
Uppáhaldsleikari: Tommy Lee
Jones og Pálmi Gestsson.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep.
Uppáhaldssöngvari: Björgvin Hall-
dórsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Breskir
fræðsluþættir.
Uppáhaldsveitingahús: Ég elska
Kínahúsiö í Lækjargötu.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Sniglaveisluna eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson. •
Hver útvarpsásanna fmnst þér
best? Ætli það fari ekki svolítið eft-
ir því hvar ég starfa hverju sinni.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Hinn
heimsfrægi Howard Stern.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
cða Stöð 2? Nokkuð jafnt en annars
horfi ég ekki mikið á sjónvarp.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: David
Letterman.
Uppáhaldsskemmtistaður: Kaffi
París.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Víking-
ur.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Já, að komast aftur th
Bandaríkjanna og taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfið í leiklist-
inni.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Eftir
að hafa unniö hér heima í aht sum-
ar fór ég aftur th Bandaríkjanna í
mánuð og kom síöan heim með
strákinn minn sem fór á íslensku-
námskeiö.