Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14; 105 RVÍK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Vandinn hófst í vor Hluta erfiðleikanna við samninga um kjör sjúkraliða á sjúkrastofnunum í Reykjavík er hægt að rekja aftur til síðasta vors. Þá var hafið flokkspólitískt ferh, sem á eftir að reynast þjóðinni dýrkeypt. Þar voru að verki fjár- málaráðherra og þáverandi borgarstjóri í Reykjavík. Mikil pólitísk örvænting einkenndi þennan tíma. Fjár- málaráðherra og þáverandi borgarstjóri voru reiðubúnir til að fórna hagsmunum þjóðarinnar til að kaupa kosn- ingasigur í Reykjavík. Þess vegna sömdu þeir við hjúkr- unarfræðinga daginn fyrir borgarstjómarkosningar. í rauninni fólst meiri spilhng í aðgerð tvímenninganna en í tilfahandi fyrirgreiðslum fyrrverandi bæjarstjóra í Hafnarfirði og fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Tví- menningamir notuðu aðgang sinn að almannafé th að reyna að koma í veg fyrir stjómarskipti í Reykjavík. Komið hefur í ljós, að samningur fjármálaráðherra og fyrrverandi borgarstjóra við hjúkrunarfræðinga í vor fól í sér meiri hækkanir og meiri kostnað en fuhyrt var á þeim tíma. Kostnaðaraukinn nemur sennhega um 15% og á eftir að enduróma lengi á vinnumarkaði. Kosningasamningurinn við hjúkrunarfræðinga hlýtur að hafa fordæmisghdi fyrir sjúkraliða að þeirra mah. Þeir vhja hafa hhðsjón af nýgerðum samningum. Auk þess era sjúkrahðar enn meiri láglaunastétt en hjúkrun- arfræðingar og geta því krafizt enn meiri hækkunar. Fjármálaráðherra fer með rangt mál á Alþingi, er hann segir sjúkrahða hafa hækkað í launum umfram aðrar stéttir á undanfömum árum. Fyrir því er enginn fótur. Hins vegar er löng reynsla af því, að þessi fjármála- ráðherra trúir því, sem honum hentar hverju sinni. Harkan í vinnudehu fjármálaráðherra og sjúkrahða stafar að verulegu leyh af forsendum, sem fjármálaráð- herra bjó sjálfur th í vor, þegar hann var að reyna að veija flokk sinn falh í borgarstjórnarkosningunum. Þá sáði hann th endurkomu séríslenzku verðbólgunnar. Ekki er nóg með, að sjúkrahðar miði við 15% hækkun hjúkranarfræðinga plús láglaunaprósentu handa sér. Láglaunahópar utan heilbrigðisgeirans æha líka að miða við kosningasamninginn, þegar þeir fara í gang um eða efhr áramóhn. Það verða líka erfiðir samningar. Ríkisstjómin horfist í augu við að missa verðbólguna af stað aftur rétt fyrir alþingiskosningar í aprh, af því að fj ármálaráðherra tók í vor þá skammsýnu ákvörðun að misnota almannafé th að reyna að kaupa kosningasig- ur handa fyrrverandi borgarstjóra í Reykjavík. Erfih verður að vinda ofan af því ferli, sem fór af stað í vor. Mikh átök mun kosta að reyna það. Reynslan sýn- ir, að ríkisstjómir era ekki harðar af sér, þegar kosning- ar og kjósendur era í aðsigi. Þá fyrst missa þær tökin á fjármálum ríkisins og fara að reyna að kaupa sér frið. Þegar ríkisstjórnin og stjórnarflokkamir fara að átta sig á, hvaða kaleikur hefur verið færður þeim fyrir th- sthh fjármálaráðherra og fyrrverandi borgarstjóra, án þess að atkvæðakaupin lánuðust, er hæh við, að þessir aðhar kunni ráðherranum hhar þakkir fyrir framtakið. Oft skáka íslenzkir valdhafar í því skjólinu, að það sé vandi síðari tíma og hugsanlega annarra aðha að hreinsa upp efhr óvandaða meðferð valdhafanna á fjármunum almennings fyrir kosningar. Það muni gleymast á nokkr- um árum. En nú koma skuldaskilin óvenjulega snemma. Ljóst virðist að minnsta kosh, að afleiðingar kosninga- samningsins í vor verði fyrirferðarmiklar á aðfaratíma alþingiskosninganna, sem verða efhr nokkra mánuði. Jónas Kristjánsson Bihac -bardagi getur boðað Króatíustríð Síðsumars hrakti fimmti her Bosníustjómar sveitir uppreisnar- foringjans Fikret Abdic af svæðinu umhverfis Bihac í norðvesturhorni Bosníu. Abdic er múslími, var á sínum tíma auðugasti kaupsýslu- maöur gömlu Júgóslavíu, en sagði Bosníustjórn upp trú og hollustu og tók upp arðvænleg viðskipti við Serba, bæði á yfirráðasvæðum þeirra í Króatíu og Bosníu. Hann fékk skjól ásamt leifunum af liði sínu hjá Krajina-Serbum innan landamæra Króatíu. Eftir þennan árangur sneri fimmti herinn sér að því að færa út yfirráðasvæði Bosniustjómar til austurs og suðurs frá Bihac, og tókst í haust að hrekja her Serba af 250 ferkílómetra svæði. En brátt kom á daginn að hann hafði teygt sig of langt. Serbum í Bosníu var mikið í mun að sýna að aðdrátta- bann af hálfu Serbíustjórnar hefði ekki dregið úr þeim mátt, og þrátt fyrir það tókst þeim að koma þungavopnum sínum til vígstöðv- anna austur af Bihac. Árangurinn er sá að Serbar hafa unnið aftur landið sem Bosníuher tók af þeim og meira til. Lið Abdics sækir auk þess að Bihac-svæðinu úr norðri. Síðast þegar fréttist voru framvarðasveitir Serba komnar inn í Bihac sjálfa. Borgin og svæði umhverfis hana hefur verið lýst griöasvæði af hálfu Sameinuðu þjóðanna, en samtökin hafa engin tök haft á að framfylgja orðum sínum. Serbar hafa meinað birgðalestum, bæði með matvæli og lyf, um aðgang að griðasvæðinu svokallaða mánuðum saman. Þeg- ar þeir loks leyföu 200 friöargæslu- mönnum úr her Bangladesh för til Bihac var flestum þeirra gert að skilja eftir rifíla sína. í vikunni bárust orð frá sveitinni að hún ætti aðeins mat til tveggja daga. En þegar loftárásir voru gerðar á Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson Bihac með flugvélum frá flugvelli Serba í Krajina i Króatíu, urðu al- þjóöasamtökin að bregðast við. Að beiðni Öryggisráðsins gerðu árás- arflugvélar NATO flugvöll Serba í Udbina ónothæfan og síðan réðust tvívegis á loftvarnavirki Serba inn- an Bosníu, þegar skotið var á eftir- litsflugvélar bandalagsins. En þessar aðgerðir léttu í engu af Bosníuher í vörn Bihac. Þegar þetta er ritað standa mál þannig að ráð NATO er á skyndifundi í. Brussel og ræðir um að lýst verði yfir bannsvæði umhverfis griða- svæðið, svo umboð fáist frá SÞ til loftárása á þungavopn Serba, virði þeir ekki bannið. Samtímis reynir sir Michael Rose, yfirmaður friðargæsluliðs SÞ, að koma á vopnahléi við Bihac og helst víðar í Bosníu, og hefur farið þeirra erinda til Pale, höfuð- stöðva Serba. Bosníustjórn hefur tekið sams konar málaleitun lík- lega. Hvort sem Serbar ganga lengra eða skemmra í sókninni við Bihac hefur þeim tekist að sýna fram á að þrátt fyrir aðdráttabann frá Serbíu eru þeir færir um að sýna Bosníustjórn, SÞ og NATO í tvo heimana. Hvenær sem þeim sýnist svo geta þeir tekið á ný að þjarma að Sarajevo og griðasvæðunum þrem í Austur-Bosníu, Gorazde, Sbrenica og Zepa. Gildir þá einu þótt vopnasölu- bann væri afnumið gagnvart Bos- níustjórn, eins og vilji er fyrir á Bandaríkjaþingi. Áhrif af slíkri ákvörðun kæmu aiit of seint til að vega upp á móti yfirburðum Serba í vopnabúnaði á líðandi stund. Léttvopnað friðargæslulið, aðal- lega frá Evrópulöndum, er alls ófært um að skakka leikinn, og var aldrei til þess ætlað. Málatilbúnað- ur Bandaríkjamanna er ómerkur, af því þeir hafa ekki viljað hætta einum einasta sinna manna í frið- argæsluhlutverk, hvað þá heldur til að kljást við Serba ásamt Bos- níuher. Bosníustríðið er því eins háska- legt og nokkru sinni fyrr, og við bætist að herhlaup Krajina-Serba frá Króatíu inn í Bosníu hefur auk- ið líkurnar á að upp úr sjóði á ný í nágrannaríki Bosníu í norðri og vestri. Serbar hafa haft á sínu valdi á þriðja ár þrjár sneiðar af Króatíu, sem í reynd búta landið í sundur. Króatíumenn gerast æ óþolin- móðari yfir að ekkert miðar þeim verkefnum friðargæsluliðs SÞ á yfirráöasvæðum Serba að afvopna þá, gæta landamæra og sjá um að brotthraktir Króatar fái snúið aftur til heimkynna sinna. í janúar greiðir þing Króátíu atkvæði um hvort endurnýja eigi umboð gæslu- liðsins, og þykja úrslit tvísýn. Króatíustríð gæti því bæst viö Bos- níustríðið innan skamms. Sveit úr friöargæsluliði SÞ í eftirlitsferð á brynvagni eftir götunni í Sarajevo sem fengið hefur heitið Leyni- skyttubraut. Símamynd Reuter Skoöanir aimarra Færeyska þögnin „í næstum því 50 ár ríkti alger þögn um Færeyjar í dönskum stjórnmálum. Enginn danskur stjórn- málamaður þorði að koma nærri málefnum eyjanna. Færeyingar höföu líka landstjóm og af þeim vindla- kassarekstri vildi ekki nokkur maður skipta sér þrátt fyrir að stór hluti peninganna kæmi frá danska rík- inu.“ Úr forystugrein Jyllands-Posten 23. nóv. Gro hótar „Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra lét í gær hart mæta hörðu. Ef flokkar á Stórþinginu ætla að koma í veg fyrir að hugsanleg já-niðurstaða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni komist í gegnum þingið er Gro opin fyrir því að slíta þingi og boða til kosn- inga. Með þeim hætti vonast hún til að geta þrýst hugsanlegri já-niðurstöðu í gegnum striösglatt þing- ið. A bak við þetta útspil forsætisráðherrans liggur að ákveðinn minnihiuti á Stórþinginu segist ekki ætla að beygja sig fyrir vilja fólksins ef aðild verður samþykkt með litlum mun í þjóöaratkvæðagreiðsl- unni. Við styðjum heilshugar kröfu forsætisráðherr- ans um að Stórþingið verði aö virða þá niðurstöðu ef meirihluti þjóðarinnar vill inn í ESB.“ Úr forystugrein Arbeiderbladet 24. nóv. Færeyjar amt í Danmörku? „Það væri í raun best ef Færeyjar væru gerðar að hluta af Norður-Jótlandsamti. En sú skoðun ætti sjálfsagt erfitt uppdráttar bæði í Færeyjum og á Norður-Jótlandi. Því verður að taka til hendinni við endurbætur á sveitarstjórnarmálum í Færeyjum. 50 sveitarfélög fyrir 45 þúsund manneskjur. Það hljóm- ar fáránlega í nútíma samfélagi. Úr forystugrein Politiken 19. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.