Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 17
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 17 pv___________________________Menning Lína drauma- dís Þegar Astrid Lindgren sendi frá sér handritið að fyrstu bókinni um Línu langsokk, barnabyltingarforingjann fræga, skrifaði hún með í bréfi: „í von um að þið gerið ekki barnaverndarnefnd viðvart"! Sá útgefandi hafnaöi handritinu raunar og nagar sig sjálfsagt enn þá í handarbökin yflr þvi. Skömmu seinna kom sagan út sem verðlaunabók hjá öðru for- lagi og lagði af stað í sigurför um heiminn eins og skot. Og nú er Lína langsokkur ætlar til sjós komin út enn á ný á íslensku í nýrri þýðingu Sigrúnar Árnadóttur. Þrátt fyrir fáránlegt útht er Lína dagdraumadís allra barna. Hún er í fyrsta lagi fllsterk, tekur hestinn sinn í fangið eins og fis. í öðru lagi er hún forrík. Ekki í seðlum, nei: gullpeningum! í krafti auðs og lík- amsstyrks getur hún svo leyft sér að gera það sem hún vill, jafnvel að vera utangarðsmaður í samfé- laginu. Hún býr ein, laus undan foreldravaldi, borðar og sefur þeg- ar henni sýnist, neitar að vera í skóla, lýgur þegar nauðsyn krefur og segir það sem henni dettur í hug við fullorðna fólkið. Sögurnar af henni ganga margar út á að hafa betur í viðskiptum við fullorðna rudda og yrðu einhæfar til' lengdar ef ekki kæmi til stílsnilld höfundar sem lætur Línu vera afar hug- myndaríka og orðheppna. En fyrst og fremst er Lína frjáls; ofurkvendi sem setur sér reglur handan góðs og ills og lesandinn fellst á það með ánægju. En þessi óvenjulega hegðun hefur ekki bein áhrif á lesandann, hann reynir ekki að haga sér eins og Lína vegna þess að hann setur sig ekki í hennar spor. (Hvernig gæti hann það?) Lesendur eiga sína fulltrúa í Tomma og Önnu, prúðu börnunum sem eru svo heppin að búa í næsta húsi við Línu. Þó að þau séu hænd að henni brjóta þau engar reglur: þau fara að hátta klukkan sjö, borða reglulegar máltíðir heima hjá sér og stunda skólann vel. Inni á milli fær Lína að leysa þau úr álögum hvers- dagsins en þau hverfa alltaf til hans aftur. Þau vita sem er að Lína er bara dagdraumur. Nýja þýðingin er hpur og skemmtileg og til mikilla bóta. Þýðingar úreld- ast fyrr en frumsaminn texti og gamli textinn er orðinn stirður í upp- lestri og gamaldags. Það er til dæmis eðlilegra að tala um píanó en slag- hörpu, og blóðbúöingur heitir slátur á íslensku. Víða var líka rangþýtt eða sleppt úr. Einstaka atriða sakna ég þó, til dæmis eftirminnilegra orða ungfrú Pálu slöngutemjara sem oft voru notuð á mínu heimili: „Hér hafa þú skærur, hugrakki stúlka.“ Það gæti verið tímanna tákn að í nýju þýð- ingunni talar hún alveg óbjagað. Astrid Lindgren: Lína langsokkur ætlar til sjós 126 bls. Mál og menning Bókmenntir Silja Aðalsteinsdóttir / 3 Guffníffcmim) '**>»—s Laugavegi 178 Kvöldverðartilboð 25/11 - 1/12 'k Ofnbakaður sjávarréttasnúður með gljáð- um paprikustrimlum og humarrjómasósu k Rósasteiktur lambavöðvi í gráðaostahjúpi með rauðbeðu, eplasalati og hvítlauks- ristuðu succhi * Bláberjafrauð með ferskum jarðarberjum og sykurslöri Kr. 1.950 Opið í hádeginu mánud.-föstud. Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud. Nýr spennandi a la carte matseðill Borðapantanir í síma 88 99 67 m m m MUN MEIRI SAFI EN AÐUR. ENCINN HVITUR SYKUR DACSKAMMTUR AF C-VITAMINI í HVERJU CLASI. HVERtUM KASSA AF 1/4 LITRA FERNUM FYLCIR FALLECT JOLADACATAL FYRIR BORNIN SEM SKREYTT ER SKEMMTILECUM MYNDUM AF SVALA BRÆÐRUNUM FJORUM FYRIR BORN 06 FULLORÐNA V A H ru W AU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.