Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
Fyrsti sunnudagur í aðventu á morgun:
Jólaundirbún-
ingurinn hafinn
VAl EMTIMA
PO.Box 12176-132 Reykjavík
Sími 91-874337/861195 - Fax 91-873601
Strákarnir vilja bardagakarlana
Power Rangers úr vinsælum sjón-
varpsþætti.
Stelpurnar vilja dúkkur sem pissa og gráta og mjúk dýr.
eða á veitingahúsum. Þeir breiddust
mjög hægt út og urðu ekki umtals-
verð söluvara fyrr en milli 1960 og
'70. Samtímis því færðist í vöxt að
fólk byggi til sína eigin aðventukr-
ansa,“ segir í bókinni Saga daganna.
Mismunandi óskir
eftir kynjum
Sjálfsagt eru einhverjir byrjaðir að
kaupa jólagjafirnar, sérstaklega
ömmur og afar sem þurfa að gefa
mörgum. í dagblaðinu Jyllands-
Posten var fyrir stuttu grein þar sem
segir að svo virðist sem hin svo-
nefndu telpnaleikfong höíöi æ meir
til stúlkna og hin týpísku drengja-
leikfóng höfði sífellt meira til stráka.
Þannig er nú mikill munur á hvaða
leikföng stelpurnar velja eða strák-
arnir. Þrátt fyrir alia kvenréttinda-
baráttu og jafnrétti kynjanna vilja
stelpur barnslegar dúkkur sem þær
geta leikið sér með, skipt á, látið
gráta og pissa og þess háttar en strák-
arnir vilja bardagakarla. í Dan-
mörku eru það svokallaðir Power
Rangers karlar úr samnefndum sjón-
varpsþætti sem strákana dreymir
um. Þættir þessir voru reyndar
bannaðir í Noregi eftir morö á litlu
stúlkubarni en sýningar hefjast aftur
í desember.
Jólasalan er þegar hafin í Dan-
mörku og er áætlað að Danir munu
eyða um hálfum milljarði danskra
króna í leikfóng á næstu vikum svo
htlu börnin sjái óskir sínar rætast á
aðfangadagskvöld. Hjá stærsta leik-
fangasala Danmerkur fer 40% af árs-
sölunni fram á sex vikum fyrir jólin.
Meðalleikfangið kostar 33 krónur
danskar (363 kr. ísl.) svo allmörg leik-
fóng lenda undir jólatrjám lands-
manna. Því miður lenda þessi leik-
íong í barnaherbergjum sem þegar
eru yfirfull.
Tölvur og spil
Leikfangasalar í Danmörku segja
að vinsælustu leikfóngin til.jólagjafa
í ár séu Power Rangers karlar, Barbi-
e-dúkkur og nýtísku fylgihlutir í
þeirri seríu, mjúk dýr, dúkkuhús,
bílar og Lego-kubbar.
Leikfangasalar um alla Danmörku
voru sammála um að stelpur vilja
dúkkur í ár og strákar bíla og bar-
dagakarla. Hvort svo er einnig hér á
landi skal ósagt látið.
Dýr leikfóng eins og Nintendo og
Sega leikjatölvur munu seljast mikið
í Danmörku fyrir jólin en þær kosta
2000 krónur danskar (22 þúsund ísl.)
og ein verslunin hafði keypt inn fjar-
stýrðan bíl sem kostar 5000 krónur
danskar (55 þúsund íslenskar) og á
von á að hann seljist.
í Danmörku eins og á íslandi eru
fjölskylduspil alltaf vinsæl jólagjöf.
Trivial Pursuit hefur verið vinsælt í
nokkur ár og Danir bjóða nýtt spil
fyrir þessi jól sem þeir nefna Villtir
víkingar. Margir leikfangasalar
veðja svo á sölu þessa spils að þeir
hafa lækkað verðið úr 199 krónum
dönskum í 129 krónur. Og Jyllands
Posten bendir á mismunandi verðlag
hjá leikfangasölum og aö þaö borgi
sig að gera verðsamanburð. Það á
væntanlega við hér á landi líka.
KRAKKAR, KRAKKAR!
Leikur með konungi ijónanna!
Fljúgðu með Flugleiðum og konungi
Ijónanna í Tívolíið í Kaupmannahöfn
Þú getur líka unnið einhvern af aukavinningunum. í boði eru
200 Ijónabolir, 10 barnapítubox frá Pítunni og 5 leikfanga-
vinningar frá Hagkaupi.
Fyrsti sunnudagur í aðventu er á
morgun. Sjálfsagt eru margar hús-
mæður þegar farnar að huga að
hreingerningum og jólabakstri.
Margir munu sennilega leggja loka-
hönd á aðventukransana í dag enda
á að kveikja á fyrsta kertinu á morg-
un. Aðventuljósin verða þá líka sett
í gluggann. Þar sem jólin verða
„stutt“ í ár, aðeins einn aukafrídagur
hjá vinnandi fólki, er sjálfsagt að
gera umhverfiö jólalegt með skreyt-
ingum og kertaljósum.
I bókinni Saga daganna eftir Árna
Björnsson þjóöháttafræðing, sem oft
er vitnaö til, segir að aðventukransar
séu tiltölulega ungt fyrirbæri. „Suö-
ur í Evrópu er að vísu gamall siður
að skreyta híbýli sín með sígrænum
greinum við hátíðleg tækifæri. Það
var þó ekki fyrr en snemma á 19. öld
að sá heimilisiðnaður kom upp í
Norður-Þýskalandi að útbúa að-
ventukransa til að selja á jólamark-
aði. Á kransinum voru fjögur kerti,
eitt fyrir hvern sunnudag í jólafóstu.
Seinna hafa þróast ýmis afbrigði sem
meðal annars koma fram í sérstök-
um lit á skreytilindum fyrir hvern
sunnudag.
Um aldamótin hafði þessi skreyti-
siður borist til Suður-Jótlands og
breiddist þaðan hægt og sígandi
norður til annarra héraða. Það var
þó ekki fyrr en á hernámsárunum
eftir 1940 sem aðventukransar urðu
algengir um alla Danmörku. Þá var
fátt hægt eða leyft að gera til að prýða
heimili fyrir jólin en þýska hernáms-
liöið amaðist síst við aðventukröns-
um sem upprunnir voru í þeirra eig-
in landi.
Fáeinir heimildarmenn þjóðhátta-
deildar telja sig hafa séð aðventu-
krans fyrir 1940, helst í Reykjavík og
á Akureyri. Þetta gæti vissulega
staðist því margir íslendingar voru
á þeim tíma kunnugir þýskum sið-
um. Almennt fóru aðventukransar
þó ekki að sjást á íslandi fyrr en eft-
ir síðari heimsstyrjöld og þá fyrst
sem skraut í einstaka búðargluggum
Jólin eru „stutt“ þetta árið og aðeins einn aukafrídagur
hjá vinnandi fólki. Til að gera stemninguna skemmti-
legri í desember er sjálfsagt að skreyta heimilið og
nota kertaljós.
Fyrsti sunnudagur í aðventu er á morgun og þá á að
kveikja á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Margir
munu nota daginn í dag til að búa til kransinn en hann
er hægt að gera á margvislegan hátt og láta hugmynda-
flugið ráða.
Skilaðu inn fullri bók frá 20. janúar til 20. febrúar og þú get-
ur unnið! 10 fyrstu til að skila inn fullri Ijónabók á Pítuna,
Skipholti 50c, Reykjavík, fá barnapítubox og Ijónabol. 90
næstu til að skila inn fullri bók á Pítuna fá Ijónabol. 100 fyrstu
utan af landi, sem ekki komast á Pítuna en senda okkur fulla
bók á tímabilinu 20. janúar til 20. febrúar, fá Ijónabol frá
Valentínu hf. Allir sem skila á þessu tímabili og eftir 20.
febrúar eru með í pottinum þegar dregið verður um
aðalvinninginn.
Lokafrestur er til 1. júní.