Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
Sviðsljós
Vaxtarræktardrottningin Zoe Warwick varar fólk nú við:
Sterar eyðilögðu
líkama hennar
Ólyginn
. að leikkonan Zoe Wanama-
Vaxtarræktardrottningin Zoe
Warwick, 34 ára, tók stera í nokkur
ár til að halda sér í toppformi og
meðal þeirra bestu í heiminum. í dag
verður hún aö greiða hátt verð vegna
þess. Zoe er nefnilega með líkama 60
ára gamallar konu vegna skaðans
sem sterarnir hafa valdið líffærum
hennar. Lifrin er í ólagi, briskirtill-
inn er farinn að bila og hún hefur
blæðingar í maga. Bólga í beinmerg
hefur orsakað að Zoe hefur misst
tennur og hár. Handleggir og fætur
eru bólgnir auk hjartatruflana. Hún
meltir ekki fæðuna eðlilega og þjáist
af minnistapi sem getur staðið í allt
að þrjá daga og er þá ekki allt upptal-
ið. Allt þetta má rekja beint til notk-
unar hennar á sterum.
Aðvarar ungt fólk
Nú vill Zoe vara aðra íþróttamenn
og konur við að nota stera. Zoe vill
meina að óhemju margt íþróttafólk
um allan heim noti stera reglulega
og þó fáir hafi verið teknir á lyfja-
prófum, eins og Ben Johnson og
Katrin Krabbe, segi það enga sögu.
„íþróttafólki finnst jafn sjálfsagt að
nota stera eins og að kaupa nýja
íþróttaskó. Sterarnir gefa ekki ör-
uggan sigur en þeir hafa gefið fólki
jafnari möguleika miðað við alla hina
sem taka stera. Fyrir mig er orðið
of seint að iðrast en ég vil geta kom-
ið í veg fyrir að ungt íþróttafólk noti
stera og vil að það geri sér ljóst að
Zoe Warwick þegar hún var Bret-
landsmeistari í vaxtarrækt.
þeir eru lífshættulegir.
Það eru tif margar gerðir af eftirlík-
ingum af sterum og þær eru jafnvel
hættulegri en original sterarnir. Og
ég er viss um að það eru margir sem
þjást eins og ég og mörg tilfelli eiga
enn eftir að koma upp.“
Það var fyrir tilviljun að Zoe byrj-
Vaxtarræktarmeistarinn hefur í dag
líkama sextugrar konu vegna ofnotk-
unar á sterum.
aði að taka stera. Hún var mikil
áhugamanneskja um hvers kyns
íþróttir sem táningur og tók þátt í
mörgum keppnisgreinum á Englandi
þar sem hún býr. Það var árið 1981
sem henni var sagt frá sterum sem
gætu aukið hæfni hennar á íþrótta-
sviðinu. Hún hafði þegar náð sér í
viðurkenningar á héraðsmótum þeg-
ar henni buðust sterar en sá sem
bauð hafði marga fræga viðskipta-
vini.
Meistari í vaxtarrækt
Zoe fékk góð tilboð um kaup á ster-
um í stórum umbúðum og eyddi um
50 þúsund krónum á viku í lyf sem
áttu að grenna hana og láta hana líta
glæsilegar út. Fljótlega fóru sterarnir
að hafa áhrif og Zoe varð bæði Bret-
lands- og Evrópumeistari í vaxtar-
rækt kvenna og framtíðin virtist
björt og fín. En skaðinn var skeður
og Zoe var ein þeirra sem eyðilagði
sjálfa sig á steranotkun.
í dag er hún fótluð og býr ásamt
japönskum sambýlismanni sínum í
Devon. Hún hefur ættleitt dóttur
hans, Ronjaina, og leggur áherslu á
að fræða hana um skaðsemi stera.
„Ég hef átt mjög erfitt líf eftir að ég
hætti að taka sterana. Þó það séu
meira en átta ár síðan ég hætti að
taka stera hef ég ekki fengið blæðing-
ar aftur. Ég, sem hafði fallega sópr-
anrödd, hef nú svo djúpa rödd að
fólk sem talar við mig í síma telur
að ég sé karlmaður. Það sem ég er
þó hissa á er hversu sterkir vöðvar
mínir eru enn þá þrátt fyrir öll veik-
indin.“
Zoe heldur nú fyrirlestra í skólum
og vonast til að hún geti á einhvern
hátt komið í veg fyrir að ungt íþrótta-
fólk geri sömu mistökin og hún.
Bill Wyman úr Rolling Stones:
Gjörbreyttur nýbakaður faðir
Poppgoðið Bill Wyman úr Rolling
Stones er orðinn nýr maður með
breyttum lífsstíl. Það eru meira en
þrjátíu ár frá því elsti sonur hans
fæddist enda er Bill orðinn 57 ára
gamall og nú heldur hann upp á að
vera nýbakaður faðir. Bill lætur sig
ekki muna um að fara út að labba
með nýfæddu dótturina og hann hik-
ar ekki við að baða barnið og skipta
um bleiur. Litla dóttirin, Katharine
Noelle, unir sér vel hjá föður sínum
en móöirin, Suzanne, fær þá tæki-
færi til að hvíla sig á meðan.
Bill Wyman skildi við félaga sína í
Rolhng Stones fyrir ári eftir að hafa
verið bassaleikari hljómsveitarinnar
í þijátíu ár. Hann segist ekki sjá eftir
þeirri ákvörðun sinni þar sem hann
getur nú snúið sér að fjölskyldunni
og veitingahúsarekstrinum og sinnt
áhugamálum sínum sem eru saga og
fomleifafræði.
Veitingahús Bills í London, Stikcky
Fingers, gengur mjög vel og hefur
hann nú ákveðið að opna útibú í
fleiri evrópskum borgum. Þau Bill
og Suzanne búa í Chelsea. Eiginkon-
an segir að Bih hafi breyst mjög mik-
iö og taki nú foreldrahlutverkiö al-
varlega. Hann var í fyrsta skipti við-
staddur fæðingu þegar Noehe Utla
fæddist og segist hafa hrifist mjög af
þeirri stundu þegar Utla bamið opn-
aði augun og leit veröldina augum í
fyrsta sinn. „Mig langaði ekki að fara
frá þeim og bjó því líka á sjúkrahús-
inu í fimm daga og naut hvers augna-
bUks,“ segir poppstjarnan. „Við höf-
um ákveðið að eignast annað barn
fljótlega," bætir hann við.
Sonur BiUs, Stephen, er 32ja ára.
BiU segir að þetta hafi verið allt öðru-
visi í þá daga því hann hafi verið að
vinna þegar barnið fæddist. „Þegar
Stephen var lítill var RoUing Stones
alltaf í fyrsta sæti hjá mér og ég var
á endalausum ferðalögum. Ég var sá
eini í hljómsveitinni sem átti barn
og það var ekki vinsælt að sleppa
upptökum eða öðru vegna barnsins.
BUl kynntist Suzanne árið 1979.
Rolling Stones var með tónleika í
París en þar starfaði Suzanne sem
fyrirsæta. Þau kynntust í kokkteU-
boði en hún vissi þá ekkert hvaða
maður þetta væri. BiU var að skilja
um þetta leyti og hún á framabraut
í starfi. Þau héldu þó aUtaf sambandi
þó þau hæfu ekki sambúð fyrr en
fyrir tveimur árum þegar hann haö
hennar. Suzanne bjó þá í Los Angeles
og hafði hugsað sér að gerast leik-
kona.
BUl Wyman segist hafa verið búinn
að fá nóg af tónUstarlífinu þegar
hann ákvað að hætta með RolUng
Stones. „Viö vorum búnir að fara í
tónleikaferðalag um Bandaríkin,
Evrópu og Japan áriö 1989 þar sem
við lékum fyrir 7,5 milljónir manna
og héldum 102 tónleika og það var
eiginlega meira en nóg. Mér fannst í
famhaldi af því kominn tími til að
huga að því að Ijúka þessum ferh
meðan maður var enn á toppnum,"
segir hann.
Bill Wyman viU meina að fjölmiðl-
ar hafi aldrei verið neitt sérstaklega
góðir við sig. „Það er fyrst núna eftir
að ég kvæntist Suzanne sem ég fæ
jákvæða umfjöfiun um mig,“ segir
þessi fyrrum RolUngur.
Bill Wyman ásamt eiginkonu sinni, Suzanne, og litlu dótturinni.
ker, sem áhorfendur Stöðvar 2,
þekkja ur þáttunum Love Hurts,
hefði gift sig fyrir stuttu leikaran-
um Gawn Grainger. Parið kynnt-
ist um síðustu jól og var brúð-
kaupsveislan aðeins fyrir fáa úl-
valda. Leikkonan, sem er 45 ára,
mun hafa átt svo annrikt að hún
dreif sig í vinnuna strax eftir
brúðkaupið.
... að skautadrottningin Nancy
Kerrigan gengi nú undir nafninu
hin konan í umtöluðu skilnaðar-
máli sem upp er komið í Banda-
ríkjunum. Eiginkona umboðs-
manns Nancyar sakar hana um
að hafa komist upp á milli þeirra
hjónanna. „Allír halda að Nancy
sé einhver hetja en hún hefur
eyðilagt fjölskyldu mina,“ segir
eiginkonan sorgmædda, Kathy
Soiomon. „Nancy stal eigin-
manni mínum. Hún hefur gert líf
mitt að helvíti," segir Kathy sem
réð einkaspæjara til að njósna
um eiginmanninn, Jerry, sem er
40 ára, og hina 25 ára skauta-
drottningu. ____________________
... að foreldrar James litla Bulg-
ers, sem myrtur var á hrottaleg-
an hátt af litlum drengjum i fyrra,
væru að skilja. Þau hafa búið
hvort í sínu lagi um hríð eftir að
hafa gert árangurslausar tilraun-
ir til að halda hjónabandinu eftir
hið mikla áfall fyrir ári. Margir
héldu að þau myndu ná saman
á ný þegar þau eignuðust annan
son, Michael, í desember sl. en
svo var ekki. Sumir hafa haldið
þvi fram að faðirinn, Ralph Bul-
ger, sé komlnn með nýja konu.
... að súperstjarnan Michael J.
Fox og kona hans, leikkonan
Tracy Pollan, hefðu tilkynnt að
þau ættu von á öðru barni sínu
næsta vor. Michael, sem er 33ja
ára, og Tracy eiga fyrir fimm ára
gamlan son, Sam.