Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Side 56
FRÉTTASKOTIÐ
62 • 25 • 25
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 63 27 00
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIDSLU: 63 27 77
KL. &8 LAUGARDAGS- OG MÁNUDAGSMORGNA
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994.
Ami Sigfusson:
Siðleysi að
fá pólitískar
auglýsingar
„Þegar viö vorum í meirihluta þótti
siðleysi að biðja borgina um auglýs-
ingar í póbtískt blað. Við gáfum út
blað sem hét Höfuðborgin og við
stóðum undir því sjálfir. Borgin var
hvorki beðin um aö auglýsa í blaöinu
né birta styrktarlínur í því,“ segir
Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæðis-
manna í Reykjavík, í tilefni frétta um
auglýsingar á vegum Reykjavíkur-
borgar í blaði R-listans nýverið.
Samkvæmt heimildum DV gætir
mikillar óánægju meðal sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn Reykjavíkur
með þessar auglýsingar sem sagt er
að eigi sér ekki fordæmi þegar um
pólitíska blaðaútgáfu er að ræöa.
Þykir hér um misnotkun á borgar-
sjóði að ræða. Búist er við því að
sjálfstæðismenn taki málið upp á
borgarráðsfundi á þriðjudaginn.
„Meginreglan er að birta auglýs-
ingar í dagblöðum eftir auglýsinga-
gildi hveiju sinni. Á miöju kjörtíma-
bili höfum við ekki agnúast út í að
setja auglýsingar í pólitísk blöð en
við höfum ekki sett auglýsingar í
blöð stjórnmálaflokka kringum
kosningar. Þetta eru sömu reglur og
giltu á síðasta kjörtimabili. Ég hef
ekki fehgið fyrirskipun um að aug-
lýsa í blöðum Reykjavíkurlistans,"
segir Ólafur Jónsson upplýsingafull-
trúi í ráðhúsinu.
Mál Lindu Pétursdóttur:
Sent til sak-
sóknara
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
sent mál Lindfl Pétursdóttur til sak-
sóknara ríkisins sem ákveður fram-
hald málsins. Málið er tvíþætt, ann-
ars vegar er þaö kæra Lindu á hend-
ur lögreglunni vegna meints harð-
ræðis og hins vegar kæra lögregl-
unnar á hendur Lindu.
Vöruflutn-
ingabíll valt
Vöruflutningabíll valt í Staðardal í
botni Steingrímsfjarðar í fyrrakvöld.
Haft var samband viö lögregluna á
Hólmavík í gærmorgun og var gær-
dagurinn notaður til að koma bílnum
á réttan kjöl. Ökumann sakaði ekki
þegar óhappið varð og er bíllinn lítið
skemmdur þar sem ökumaðurinn
náði að draga mikið úr ferðinni áður
en bíllinn valt á hliðina.
LOKI
Hvaðeru nokkrarauglýsingar
á milli vina?
Lögreglan má ekki
taka stora hnrfa
- vísað í götótta reglugerð sem á sér ekki lagastoð - „butterflyhnífar“ þó ólöglegir
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað
í gær upp óvæntan dóm þar sem
því var algjörlega hafnað að stöð
væri i lögum fyrir því að heimilt
væri aö gera upptæka hnífa meö
lengra blaöi en 12 sentímetrar.
Vegna þessa sýknaði dómurinn
mann af ákæru um að hafa flutt til
landsins og síöan átt 20 hættulega
hnífa með blöðum allt upp í 22
sentímetra að lengd. Dómurinn
taldi að reglugerð i þessum efnum,
sem lögregla og önnur yfirvöld
hafa fram að þessu unnið sam-
kvæmt, hafi ekki lagastoö. Lögregl-
an um allt land hefur á síðustu
árum lagt hald á raikinn fjölda af
hnífum samkvæmt reglugerðinni.
Dómurinn sakfelldi framan-
greindan mann hins vegar af
ákæru um að hafa átt 27 „butt-
erfly-“ og fjaðrahnífa - heimilt sé
að leggja hald á þá vegna réttarör-
yggis enda „veröi ekki annað séö
áð þeir geti veriö til nokkurra nytja
né til annars gerðir en að stinga
með“. Dómurinn taldi að þessir
hnífar gætu verið mjög hættuleg
vopn í höndum óvita og illvirkja
og heimilt væri að banna þá eins
og gert er meö reglugerð um skot-
vopn og skotfæri frá 1988.
Um hina hnífana, sem maðurinn
var ákæröur fyrir, leiigri en 12
sentímetrar, og algengt er að lagt
sé hald á enda eru þeir taldir
hættulegir, segir dómurinn hins
vegar:
„Alkunna er að margar gerðir
nytjahnífa í almannaeigu, s.s. búr-
hnifar, fisk- og kjötvinnsluhnífar
og veiðihnífar eru oft blaðlengri en
12 sentímetrar enda hafa slíkir
hnífar til þessa yfirleitt verið taldir
meðfæri landsmanna. Verður 3.
greín skotvopnalaganna heldur
ekki skilin svo að ætlunin hafi ver-
iö aö heimila ráðherra að banna
slíka hnífa með reglugerö. Veröur
að telja að reglugerðina skorti laga-
stoð að þessu leyti. Ber samkvæmt
framangsögöu að sýkna
ákærða . . .
Umræddur maður, sem er 75 ára,
var árið 1990 sektaður og látinn
þola upptöku á 26 hnífum. Hann
varjafnframt uppvís að sölu á hníf-
um. Fyrir dómi nú kvaðst hann
ekki hafa gert slíkt síðan. Dómur-
inn féllst eins og áður sagði á aö
gera upptæka minni hnífana og
dæmdi manninn til að greiða 10
þúsund króna sekt i ríkissjóð.
Keppnin Sterkasti maður jarðarinnar fer fram i Laugardalshöll á morgun kl. 15. Einn íslendingur er á meðal kepp-
enda, Andrés Guðmundsson, aflraunameistari íslands 1991 og 1993 og Evrópu Herkúles 1994. Auk Andrésar keppa
fimm erlendir kraftajötnar á mótinu sem allir eiga glæstan feril að baki í aflraunum. Á myndinni taka jötnarnir á
fyrir framan pitsustaðinn Pizza 67 sem er styrktaraðili keppninnar. DV-mynd Brynjar Gauti
Ásakanir um svindl:
Munstefnaþess-
um mönnum
- segir eigandi Can-Ice
„Ég mun svara þessum mönnum
með því að stefna þeim fyrir róg og
fyrir þann skaða sem þeir hafa vald-
iö mér með því að selja mér skemmd-
an fisk,“ segir Þór Nikulásson, eig-
andi fyrirtækisins Can-Ice í Kanada,
vegna ásakana um að hann hafi
stundað óheiðarleg viðskipti. For-
svarsmenn íslensks fiskvinnslufyr-
irtækis lýsa því í DV í dag að Þór
•hafi svikið þá í viðskiptum með salt-
fisk sem hann flutti út til Kanada.
Þór segir þetta alrangt og að þessu
sé öfugt farið.
- sjá bls. 2
Austflrðir:
Ólöglegarveiðar
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
á Austurlandi hafa nokkur brögð
verið að því að ijúpnaskyttur hafi
verið á veiðum á vélsleðum. Slíkt er
með öllu óheimilt samkvæmt gild-
andi lögum. Fengust þær upplýs-
ingar á Seyðisfirði að mjög hart veröi
tekið á brotum sem þessum ef upp
kemst og meðal annars lagt hald á
skotvopn og sektarákvæðum beitt.
Veðrið á sunnudag og
mánudag:
Éljagangur
um vestan-
vert landið
Á sunnudag og mánudag verða
suðvestlægar áttir, víða hvasst á
sunnudag, en mun hægari á mánu-
dag. Éljagangur um sunnan- og
vestanvert landið en úrkomulaust
að mestu á Norðaustur- og Austur-
landi. Hiti víðast hvar rétt ofan við
frostmark.
Veðrið í dag er á bls. 61
X í baksturinn
Á morgunmatinn
I heita og kalda drykki
X Brjóstsykur
Skemmir ekki tennur
bragðtegundir og
é náttúruleg efni