Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Page 56
FRÉTTASKOTIÐ 62 • 25 • 25 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 63 27 00 BLAÐAAFGREIÐSLA OG ÁSKRIFT ER 0PIN: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokaö Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIDSLU: 63 27 77 KL. &8 LAUGARDAGS- OG MÁNUDAGSMORGNA LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994. Ami Sigfusson: Siðleysi að fá pólitískar auglýsingar „Þegar viö vorum í meirihluta þótti siðleysi að biðja borgina um auglýs- ingar í póbtískt blað. Við gáfum út blað sem hét Höfuðborgin og við stóðum undir því sjálfir. Borgin var hvorki beðin um aö auglýsa í blaöinu né birta styrktarlínur í því,“ segir Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæðis- manna í Reykjavík, í tilefni frétta um auglýsingar á vegum Reykjavíkur- borgar í blaði R-listans nýverið. Samkvæmt heimildum DV gætir mikillar óánægju meðal sjálfstæðis- manna í borgarstjórn Reykjavíkur með þessar auglýsingar sem sagt er að eigi sér ekki fordæmi þegar um pólitíska blaðaútgáfu er að ræöa. Þykir hér um misnotkun á borgar- sjóði að ræða. Búist er við því að sjálfstæðismenn taki málið upp á borgarráðsfundi á þriðjudaginn. „Meginreglan er að birta auglýs- ingar í dagblöðum eftir auglýsinga- gildi hveiju sinni. Á miöju kjörtíma- bili höfum við ekki agnúast út í að setja auglýsingar í pólitísk blöð en við höfum ekki sett auglýsingar í blöð stjórnmálaflokka kringum kosningar. Þetta eru sömu reglur og giltu á síðasta kjörtimabili. Ég hef ekki fehgið fyrirskipun um að aug- lýsa í blöðum Reykjavíkurlistans," segir Ólafur Jónsson upplýsingafull- trúi í ráðhúsinu. Mál Lindu Pétursdóttur: Sent til sak- sóknara Rannsóknarlögregla ríkisins hefur sent mál Lindfl Pétursdóttur til sak- sóknara ríkisins sem ákveður fram- hald málsins. Málið er tvíþætt, ann- ars vegar er þaö kæra Lindu á hend- ur lögreglunni vegna meints harð- ræðis og hins vegar kæra lögregl- unnar á hendur Lindu. Vöruflutn- ingabíll valt Vöruflutningabíll valt í Staðardal í botni Steingrímsfjarðar í fyrrakvöld. Haft var samband viö lögregluna á Hólmavík í gærmorgun og var gær- dagurinn notaður til að koma bílnum á réttan kjöl. Ökumann sakaði ekki þegar óhappið varð og er bíllinn lítið skemmdur þar sem ökumaðurinn náði að draga mikið úr ferðinni áður en bíllinn valt á hliðina. LOKI Hvaðeru nokkrarauglýsingar á milli vina? Lögreglan má ekki taka stora hnrfa - vísað í götótta reglugerð sem á sér ekki lagastoð - „butterflyhnífar“ þó ólöglegir Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp óvæntan dóm þar sem því var algjörlega hafnað að stöð væri i lögum fyrir því að heimilt væri aö gera upptæka hnífa meö lengra blaöi en 12 sentímetrar. Vegna þessa sýknaði dómurinn mann af ákæru um að hafa flutt til landsins og síöan átt 20 hættulega hnífa með blöðum allt upp í 22 sentímetra að lengd. Dómurinn taldi að reglugerð i þessum efnum, sem lögregla og önnur yfirvöld hafa fram að þessu unnið sam- kvæmt, hafi ekki lagastoö. Lögregl- an um allt land hefur á síðustu árum lagt hald á raikinn fjölda af hnífum samkvæmt reglugerðinni. Dómurinn sakfelldi framan- greindan mann hins vegar af ákæru um að hafa átt 27 „butt- erfly-“ og fjaðrahnífa - heimilt sé að leggja hald á þá vegna réttarör- yggis enda „veröi ekki annað séö áð þeir geti veriö til nokkurra nytja né til annars gerðir en að stinga með“. Dómurinn taldi að þessir hnífar gætu verið mjög hættuleg vopn í höndum óvita og illvirkja og heimilt væri að banna þá eins og gert er meö reglugerð um skot- vopn og skotfæri frá 1988. Um hina hnífana, sem maðurinn var ákæröur fyrir, leiigri en 12 sentímetrar, og algengt er að lagt sé hald á enda eru þeir taldir hættulegir, segir dómurinn hins vegar: „Alkunna er að margar gerðir nytjahnífa í almannaeigu, s.s. búr- hnifar, fisk- og kjötvinnsluhnífar og veiðihnífar eru oft blaðlengri en 12 sentímetrar enda hafa slíkir hnífar til þessa yfirleitt verið taldir meðfæri landsmanna. Verður 3. greín skotvopnalaganna heldur ekki skilin svo að ætlunin hafi ver- iö aö heimila ráðherra að banna slíka hnífa með reglugerö. Veröur að telja að reglugerðina skorti laga- stoð að þessu leyti. Ber samkvæmt framangsögöu að sýkna ákærða . . . Umræddur maður, sem er 75 ára, var árið 1990 sektaður og látinn þola upptöku á 26 hnífum. Hann varjafnframt uppvís að sölu á hníf- um. Fyrir dómi nú kvaðst hann ekki hafa gert slíkt síðan. Dómur- inn féllst eins og áður sagði á aö gera upptæka minni hnífana og dæmdi manninn til að greiða 10 þúsund króna sekt i ríkissjóð. Keppnin Sterkasti maður jarðarinnar fer fram i Laugardalshöll á morgun kl. 15. Einn íslendingur er á meðal kepp- enda, Andrés Guðmundsson, aflraunameistari íslands 1991 og 1993 og Evrópu Herkúles 1994. Auk Andrésar keppa fimm erlendir kraftajötnar á mótinu sem allir eiga glæstan feril að baki í aflraunum. Á myndinni taka jötnarnir á fyrir framan pitsustaðinn Pizza 67 sem er styrktaraðili keppninnar. DV-mynd Brynjar Gauti Ásakanir um svindl: Munstefnaþess- um mönnum - segir eigandi Can-Ice „Ég mun svara þessum mönnum með því að stefna þeim fyrir róg og fyrir þann skaða sem þeir hafa vald- iö mér með því að selja mér skemmd- an fisk,“ segir Þór Nikulásson, eig- andi fyrirtækisins Can-Ice í Kanada, vegna ásakana um að hann hafi stundað óheiðarleg viðskipti. For- svarsmenn íslensks fiskvinnslufyr- irtækis lýsa því í DV í dag að Þór •hafi svikið þá í viðskiptum með salt- fisk sem hann flutti út til Kanada. Þór segir þetta alrangt og að þessu sé öfugt farið. - sjá bls. 2 Austflrðir: Ólöglegarveiðar Samkvæmt upplýsingum lögreglu á Austurlandi hafa nokkur brögð verið að því að ijúpnaskyttur hafi verið á veiðum á vélsleðum. Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt gild- andi lögum. Fengust þær upplýs- ingar á Seyðisfirði að mjög hart veröi tekið á brotum sem þessum ef upp kemst og meðal annars lagt hald á skotvopn og sektarákvæðum beitt. Veðrið á sunnudag og mánudag: Éljagangur um vestan- vert landið Á sunnudag og mánudag verða suðvestlægar áttir, víða hvasst á sunnudag, en mun hægari á mánu- dag. Éljagangur um sunnan- og vestanvert landið en úrkomulaust að mestu á Norðaustur- og Austur- landi. Hiti víðast hvar rétt ofan við frostmark. Veðrið í dag er á bls. 61 X í baksturinn Á morgunmatinn I heita og kalda drykki X Brjóstsykur Skemmir ekki tennur bragðtegundir og é náttúruleg efni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.