Þjóðviljinn - 22.12.1946, Síða 18
16
ÞJÓÐVILJINN
Jólin 1946
svefnpokana þetta kvöld. Allir hugsanlcgir farartálmar
voru yfirstignir, nema vélabilanir og bensínleysi. Pram-
undan voru greinilegar og auðfarnar bílaslóðir niður mcð
Jökulsá, allt norður á póstleiðina fornu milii Gríms-
staða og Reykjahiíðar.
Á HEIMLEIÐ NIÐUR MEÐ JÖKULSÁ
Fimmtudagsmorguninn 11. júlí. Hraun og gróðurlend-
ur, baðaðar i sól. Líldega er Hcrðubrcið hvcrgi fegurri að
sjá, cn úr Grafarlöndum. Fjarlægðin skapar mildara yfir-
bragð. I norðri eru hillingar: hraunhólarnir cvífa í lausu
lofti á fleygiferð, eitthvað út í buskann.
Klukkan tíu f. h. lcggjum við af stað. Förum fyrst yfir
Grafarlandaá, og framhjá Ferjufjalli og Fremstafelli. Við
göngum á Miðfell og virðum fyrir okkur útsýnið. I norðri,
handan árinnar, sjáum við LambafjöIIin. I hlíðum þeirrá
hanga gróðureyjar. Austar sjást Víðidalsfjöll. Norðan
Kjalfells, í suðaustri, sér á útihús frá Möðrudal. I norðri
rís Hrossaborg eins og eyja í úthafi.
Benzínið er nú að þrotum komið, og við náum með naum
indum niður að brúargerðinni hjá Langavatnslindum við
Jökulsá. Löng röð af mjallhvítum tjöldum á grasivaxinni
eýri, skáli, vinnuvélar, konur að hengja þvott til þerris,
karlar að grafa fyrir brúarstöplum. Hér er unnið að nauð-
synlegri samgöngubót, er stytta mun þjóðleiðina til Aust-
urlands að miklum mun.
Meðan samið er um benzínkaup, notum við tímann til að
skoða brúargerðina. Við erum tilbúin að fara, þegar
ráðskona brúarsmiðanna birtist allt í cinu og býður okkur
kaffi. Auðvitað stöndumst við ekki svo ágætt boð, en göng
um i borðsalinn og setjumst að kaffidrykkju. Það er eins
og við séum komin á gestrisið sveitaheimili, þar sem eng-
um má sleppa frá garði, án þess hann hafi þegið kaffisopa.
KLÁUSTRIÐ I BÚRFELLSHRAUNI
Frá Jökulsá niður að Reykjahlíð er yfir Búrfellshraun
að fara. Á þeirri leið er jarðfall mikið. Nefnast barmar
þess Austari - og Vestari - Brckkur. Austarlega í jarð-
fallinu er lítill kofi, nefndur Klaustrið. Þar hitturn við
vegagerðarmenn og var Pétur bóndi í Reynihlíð við Mý-
vatn foringi þeii’ra. Fylgdi Pétur okkur að Klaustrinu,
sem til að sjá gæti virst líkara mchrauk en klaustri!
Hlaðnir hafa verið upp veggir umhverfis hraungjótu.
Dyr eru á móti suðri. Niður á botn í gjótunni er meir
en mannhæð, og farið niður í stiga. Þegar ekkert okkar
virtist finna hjá sér köllun til að ganga í Klaustrið,var
ferðinni haldið áfram til Reykjahlíðar, um Námaskarð.
Hjá Námaskarði sýður í leirhverunum án afláts, en hvergi
sauð þó út úr „pottunum", enda mun þetta hálfgerð moð-
suða hjá því sem áður var.
HRINGNUM LOKAÐ
Degi var tekið að halla þegar við ókum frá Reykjahlíð.
Hjá Garði var lokað hringnum um Dyngjufjöll og Herðu-
breið. Voru þá liðnir 4 sólarhringar, 22 klukkustundir og
20 mínútur, frá því við komum hér síðast og bílarnir
höfðu keyrt 305,7 kílómetra.
Ferðin var í raun og veru á enda. Við stigum af bílunum.
Þorsteinn og Páll voru miskunnarlaust þrifnir á loft og
„tolleraðir". Það var eina viðurkenningin, sem okkur hug-
kvæmdist að veita þeim fyrir að hafa skilað okkur hingað
heilu og höldnu. Auðvitað áttu þeir bilstjórarnir, Hólm-
steinn og Sigurjón, að hljóta sömu meðferð, en við áttuð-
um okkur á því í tíma, að þeir myndu í þyngra lagi, og
þess vegna ráðlegast að láta þá kyrra, ef við ættum ekki
að verða okkur til minnkunar fyrir kraftaleysi!
Fögnuður okkar yfir unnum sigri náði hámarki, er hóp-
urinn söng fullum rómi:
„Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjarta bundin;
Sæll ég bý við brjóstin þín,
blessuð aldna fóstra mín;
Hér á andinn óðul sín
öll, sem verða á jörðu fundin.
Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjarta bundin“.
Ari Kárason.
Stúlkur, sagði forstjóri matsöluhússins, í dag verðið þið að
líta óvenjulega vel út, vera glaðlegar og brosa oft til gcstanna.
— Hvað er á soyði?
— Eklcert — en kjötið 'er óvenjulega seigt núna.
★
— Þjónn! Það er hálftími síðan ég pantaði sníglasúpuna.
— Já, en þér vitið hversu hægfara þeir eru.
★
— Eg sá í blöðunum í gær, að þið auglýstuð, að matstofan
væri nú undir nýrri stjórn. Hvernig stendur þá á því, að ég sé
enn sama forstöðumanninn hér?
— I-Iann kvæntist i fyrradag.
★
Sá sköllótti: Ég ætti eiginlega að fá klippinguna ódýrari, þar
sem hárið er svona lítið.
Rakarinn: Þér borgið ekki fyrir klippinguna, heldur fyrir
leitina að hárinti.
t
V