Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 fréttir_ Loftur Árnason hjá ístaki hf. um vinnu við Hvalíj arðargöngin: Menn ekkert hræddir viö að vinna í göngunum - minni vatnsþrýstingur í Hvalfirði en viogerð Vesty arðaganganna „Ég hef ekkert orðið var við að menn væru hræddir við að vinna við gerð Hvalfjarðarganganna, hvorki þeir sem sóst hafa eftir vinnu hjá okkur né strákamir sem unnu hjá okkur fyrir vestan. Menn horfa að vísu á hafið yflr sér í Hval- fjarðargöngunum. En ég get upplýst að við gerð Vestfjarðaganganna vor- um við miklu dýpra í jörðinni og með miklu meiri vatnsþrýsting yfir okkur,“ sagði Loftur Árnason, hjá ístaki hf., í samtali við DV. Því hefur verið haldið fram að menn séu hræddir við að vinna í Hvalfjarðargöngunum, einkum þeg- ar þau verða komin nokkuð á veg. En samkvæmt því sem Loftur segir er svo ekki. „Við gerð Hvalfjarðarganganna förum við ekki nema 160 metra und- ir vatnsyfirborðið en fyrir vestan fórum við allt að 500 metra undir hæsta yfirborð. Þar að auki var vatnsþrýstingurinn þar sem svarar 300 metra vatnssúlu vegna þess hve langt niður i grunnvatninu var unn- ið. Þess vegna er mun minni vatns- þrýstingur í Hvalfirði en var fyrir vestan eða um það bil helmingi minni en við mældum þar,“ segir Loftur. Hann segir að við gerð ganganna bori menn könnunarholur fram fyr- ir sig þannig að menn vita alltaf út í hvað þeir eru að fara. „Ef það eru einhver vandamnál með leka eða annað slíkt þá dælum við sementi í bergið til þéttingar. Við höldum aldrei áfram fyrr en við erum öruggir um að bergið sé orðið þétt. Sums staðar lekur ekki og þar þarf ekki að dæla sementi," sagði Loftur Árnason. Hann benti á í lokin að Hvalfjarö- argöng ættu sér andstæðinga sem ef til vill vildu að menn væru hræddir við að vinna í göngunum. -S.dór Handalögmál viö Skaftárbrú - tveir handteknir Tveir menn um þrítugt voru handteknir við Skaftárbrú í fyrrakvöld, grunaðir um ölvun- arakstur. Lögreglan í Vík segir að mennirnir hafi keyrt út af við brúna og fest bíl sinn þar. Þeir reyndu að komast burt á hlaup- um en þrír lögreglumenn og bóndi stöðvuðu þá. Mennimir veittu þá viðnám og voru hand- teknir í kjölfarið. Tekin voru blóðsýni og málið er í rannsókn. Mennimir era báðir úr Reykja- vík. -RR Tónleikar á Norðurlandi Smuguveiðar aö hefjast - nálægt fimmtíu skip fara trúlega ef eitthvaö veiöist Togarinn Hegranes frá Sauðárkróki er einn þeirra togara sem er að undirbúa brottför í Smuguna og þar er meining- in að salta aflann. Matthías Angantýsson verkamaður er hér að vinna við að taka salt um borð í Hegranesið á Sauð- árkróki en skipið leggur af stað á mánudaginn.DV-mynd DV-mynd ÞÖK Uppbætur lækkaðar hjá elli- og örorkulífeyrisþegum: Mega hafa sjötíu og fimm þúsund í laun á mánuði - og eiga eiga 2,5 milljónir í peningum og verðbréfum Smuguveiðamar era að hefjast. Sindri frá Vestmannaeyjum er kom- inn í Smuguna en var ekkert farinn aö afla i gær. Þá vora þrír togarar á svæðinu og tíu rækjuskip. Mörg skip til viðbótar eru að tygja sig til brottfarar. Samkvæmt upplýsingum frá LÍÚ er Siglir frá Siglufirði til dæmis á leiðinni, tveir Grandatogarar ætl- uðu í vikunni, einnig Hringur frá Grundarfirði og Breki VE fer á næstunni. Orðið getur um að ræða 45-50 skip ef eitthvað veiðist. Um helm- ingur skipanna verður frystitogar, fáir ísfisktogarar, sennilega innan við tíu, en mikið er að aukast að salta aflann. Stefnir frá ísafirði fer trúlega úm miðja næstu viku en verið er að gera hann kláran fyrir saltfisk. „Við verkum eingöngu í salt núna en það höfum við ekki gert í Smugu- veiðum áðúr. 'ísfisktogararnir era bundnir við að vera akki lengur en svona fjórtán daga en með því að verka í salt lengjum við túrana upp í um tuttugu daga,“ sagði Björgvin Bjamason, framkvæmdastjóri íshús- félags ísfirðinga. Frystitogararnir geta hins vegar verið tvo til þrjá mánuði í hverri veiðiferð. -ÞK Vill láta loka gæslu- velli á Skaganum DV, Akranesi:______________ Nýverið heimsótti Herdís Storgaard, fullrúi Slysavarnafélags- ins, Akranes og skoðaði nokkrar lóðir, gæsluvöll og dagheimili. Hún tók út lóðir og húsnæöi Garðasels og Vallarsels. Einnig skoðaði hún lóðir á Akraseli, Bakkaseli og lóðir Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Við þessa athugun kom í ljós að leiktækin á Akraseli og Bakkaseli eru flest ónýt og gæsluvellinum vill Herdís láta loka. Leiktækin era ónýt og jarövegurinn vonlaus. Þá setti Herdís spurningarmerki við staðsetningu nýja leikskólans við Laugarbraut m.a. vegna mikillar umferðar við kirkjuna. Búist er við að rætt verði um málið í bæjarráöi næstu daga. -DÓ Samstaða um Ólaf í embætti DV, Húsavík________________ í Víkurblaðinu sl. fimmtudag gaf að líta heilsíðu með mynd af Ólafi Ragnari Grímssyni þar sem 24 fyrir- tæki tóku sig saman og skrifúðu undir áskoran til landsmanna um að standa saman um embætti for- seta íslands um leið og þau óskuðu honum velfarnaðar í starfi. -AGA Breytingar á uppbót elli- og ör- orkulífeyrisþega taka gildi um næstu mánaðamót. Fólk má eiga 2,5 milljónir i peningum og verðbréfum og hafa heildartekjur, að meðtöld- um bótum almannatrygginga, undir 75 þúsund krónum á mánuð til að fá uppbótina óskerta, fari það yfir þessi mörk er uppbótin skert. „Uppbætur vora lækkaðar í janú- ar í vetur hjá elli- og örorkulífeyris- þegum. Við reyndum að fá þetta leiðrétt og það endaði með því, eftir setu á mörgum fundum, að við gát- um haldið þessu inni. Lengra komumst við ekki og erum sáróá- nægð með þetta. Ætlunin er að end- urskoða þetta og viðræðum var lof- að í haust,“ sagði Guðríöur Ólafs- dóttir, formaður Sjálfsbjargar og framkvæmdastjóri Félags eldri borgara. Hún sagði að starfsmenn hjá ráðuneytinu hefðu fullyrt að ekki hefði verið endurskoðað hvort tekjuviðmiðun hefði breyst hjá fólki og dæmi væru um að tekjur hefðu hækkað án þess að bótaupphæð hefði breyst. „Þessar bætur eru allt að 8 þús- undum á mánuði og ætlunin er að afnema þær alveg hjá sumum en lækka hjá öðrum," sagði Guðríður. Fólk þegar byrjað að hringja Óánægja er meðal elli- og örorku- lífeyrisþega með þessi mál að sögn Guðríðar. „Fólk er þegar byrjað að hringja í okkur vegna skerðingarinnar og við munum skoða málið og taka á því áður en kemur að gerð fjárlaga fyr- ir næsta ár. Það er svo margt í þessu sem þarf að endurskoða,“ sagði hún enn fremur. Ásgerður Ingimarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, tók í sama streng. „Mér list náttúrlega ekki vel á þetta og við erum að skoða þetta. Ég held satt að segja að þetta geti kom- ið sér illa fyrir marga og það kemur sér verst fyrir þá sem hafa einhvem lífeyrissjóð. Fólk er að koma til okk- ar, það byrjaði um leið og það fékk bréfin. Mér finnst eins og verið sé að refsa þeim sem voru búnir að vinna sér inn lífeyrissjóðsréttindi," sagði Ásgerður. Samráð við samtök bótaþega Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins, sagði aö miðað hefði verið viö, þegar reglugerðin var smíðuð, að vera nálægt lægstu laun- um. „Þetta var unnið í samstarfi við samtök bótaþeganna og reynt að hafa samráð eins og frekast var unnt um innihald reglugerðarinnar. Niðurstaðan var sú að þetta væri eitthvað sem væri skynsamlegt og á sama tíma var reynt að bæta hag þeirra sem verst voru settir. Það fór mikil vinna í að reyna að gera þetta í eins góðu samráði og hægt var og menn skildu sáttir. Tilgangurinn var ekki að spara heldur að tryggja að þeir verst settu fengju uppbót," sagði Davíð. -ÞK Þrennir tónleikar verða haldnir á Norðurlandi næstu daga þar sem flutt verða 17 lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hall- grímssonar. Flytjendur eru Signý Sæmundsdóttir, sópran, Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Hávarður Tryggvason, sem spilar á kontra- bassa, Anna Guðný Guðmundsdótt- ir píanóleikari og Sigurður Ingvi Snorrason sem leikur á klarinett. Tónleikamir verða á sunnudag- inn í Húsavíkurkirkju, mánudaginn í Bakkakirkju í Öxnadal og í Grund- arkirkju í Eyjafjarðarsveit á þriðju- daginn. Hagnaður 27 milljónir DV, Suðumesjum______________ Á aðalfundi Sjúkrahúss Suður- nesja og Heilsugæslustöðvar Suður- nesja nýlega voru ársreikningar stofnananna lagðir fram en þeir hafa verið samþykktir af stjómar- mönnum. Fram kom hjá Jóhanni Einvarðssyni framkvæmdastjóra að halli á SHS hefði verið rúmlega 8,6 milljónir króna en á HSS varð rúm- lega 26,7 milljóna kr. hagnaður. Anna Margrét Guðmundsdóttir, formaður stjórnarinnar, sagði frá skýrslu Ríkisendurskoðunar og benti á að álag á starfsmenn SHS væri 7 sinnum meira en hjá saman- burðarsjúkrahúsum í skýrslunni. Hún sagðist vona að grunnur fjár- magns til SHS yrði endurskoðaður. -ÆMK Grænmetissalan Enn ein- hverjar væringar Þótt verðið á grænmeti hafi ekki breyst mikið frá því í gær, er það hækkaði nokkuð, er ennþá einhver verðmunur milli verslana. Einna jafnast er tómataverðið en Bónus býður lægsta verð, kr. 283 kg og er það 23% lægra en hæsta verð. Bónus hefur og lægsta kílóverð á agúrkum, kr. 215, 25% lægra en hæsta verð. Rauð paprika er ódýrast hjá Fjarðar- kaupum, 42% lægra en þær dýrastu. í þessari verðkönnun DV var litið til nokkurra stórra verslana á höf- uðborgarsvæðinu. -saa Verð ó raBÍmji jjujj/íúujjj 500 kr ----------- 497 J 498-. 400 300 289 200 100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.