Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 30
38 sviðsljós
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 JjV
Unglingar frá Norðurlöndunum læra að leika rokktónlist:
Fjórar nýjar hljómsveitir stofnaðar
Tónlistarskóli FÍH hefur verið
undirlagður í vikunni vegna nám-
skeiðs í rokktónlist sem staðið hef-
ur yfir. Hingað eru komnir 23
krakkar frá Norðurlöndunum sem
ásamt íslenskum krökkum stofnuðu
hljómsveitir og lærðu í vikunni að
leika popptónlist. Námskeiðið er
haldið á vegum Norðurlandanna og
er markmiðið að fá krakka frá öll-
um Norðurlöndum til þess að starfa
saman.
„Tilgangurinn með þessu er fyrst
og fremst norrænt samstarf. Okkur
langaði til þess að koma því þannig
fyrir að krakkar frá Norðurlöndum
hittust og léku saman popptónlist,"
segir Stefán Stefánsson sem séð hef-
ur um námskeiðið fyrir hönd ís-
lands. Álíka umsjónarmenn eru um
þetta verkefni alls staðar á Norður-
löndum.
Tónlistarmönnunum er blandað
saman frá ólíkum löndum þannig að
eitt band skipa einn frá hverju
landi. Fjórir islenskir kennarar sjá
um að kenna þeim en þaö eru Eyþór
Gunnarsson, Gunnar Hrafnsson,
Bjöm Thoroddsen og Pétur Grétars-
son. Krakkarnir eru á aldrinum
16-26 ára; Danir, Norðmenn, Svíar,
íslendingar og Finnar. Sumir eru
álíka góðir og atvinnumenn en eng-
ir atvinnumenn eru með í nám-
skeiðinu. Hljómsveitimar fjórar
halda tónleika á Ingólfstorgi í dag
kl. 15 í samráði við Hitt húsið.
„Til þess að komast á námskeiðið
þurftu krakkamir að senda inn
Beint úr búðinni, sem auglýsti í smáauglýsingum DV, kom þessi glœsilega hillusamstœða.
Hún fékkst fyrir aðeins 52.400 kr. og fer sérlega vel við beyki borðstofuborðið sem þau hjónaleysin
keyptu á dögunum.
Þau vantar enn allt milli himins og jarðar, s.s. sófasett, sófaborð, berðstofuborð eg stóla, hornskáp
með gleri, hillusamstœðu, náttborð, bókahillur, garðstóla, þurrkara, vask, blöndunartæki,
eldhúsviftu, standlampa, sjénvarp, örbylgjuofn, blóm o.fl.
DV getur þeim 300.000 kr. í brúöargjöf til að byggja upp framtíðarheimili sitt með hlutum sem
þau finna í gegnum smáauglýsingar DV.
Þau eiga 102.600 kr. eftir.
Hvað kaupa þau nœst?
Nú er tími til að selja! /
a\\t mil/i him/n.
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Jara og Einar á réttri hillu!
Þeir voru önnum kafnir krakkarnir
sem sóttu tónlistarnámskeið í FÍH f
vikunni.
hljóðupptöku og síðan var valið úr
hverjir kæmust á námskeiðið. Stef-
án Ingólfsson, Sveinbjöm Hjartar-
son og Katrín Valdimarsdóttir tóku
þátt fyrir hönd íslands," segir Stef-
án.
Námskeiðshaldarar buðu krökk-
unum auk námskeiðsins upp á út-
sýnisferðir um landið. Verkefnið er
styrkt af NOMUS, Norræna menn-
ingarmálasjóðnum, Reykjavík og
Flugleiðum. Víða um Norðurlönd er
verið að vinna samsvarandi verk-
efni. -em
Demi Moore:
Varð að setja
á sig hárkollu
Leikkonan Demi Moore vakti
mikla athygli þegar hún mætti
nauðasköllótt á frumsýningu nýj-
ustu myndar sinnar, Striptease, ný-
lega. Þó öllu sé trúandi á stjörnurn-
ar í Hollywood lét Moore ekki raka
af sér hárið til þess að vekja athygli
heldur var hún nauðbeygð til.
Þegar tökum á Striptease lauk
byrjaði Moore strax í tökum á nýrri
mynd, GI Jane, en í henni leikur
hún hermann, harðan og sköllóttan
nagla. Þegar tökur voru byrjaðar
var kallað á hana til að endurtaka
nokkrar senur í Striptease og varð
hún þá að setja á sig hárkollu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd minnir Moore talsvert á eig-
inmann sinn, Bruce Willis - bæði
eru þau hárlaus. Hármissirinn er þó
ekki það eina sem hefur breytt
Moore því að augabrúnir hennar
voru einnig hækkaðar á einhvem
hátt.
Sjálfur hefur Willis aðeins breytt
útliti sínu. Hann er nú orðinn ljós-
hærður.
Hjónin Bruce Willis og Demi Moore
eru talsvert lík, bæði svona hárlaus.
Moore lét raka af sér hárið því að
hún leikur hermann í nýrri mynd.