Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 I iV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Rússnesk rúlletta Sigur Jeltsíns í forsetakosningunum í Rússlandi er hvorki neinn sigur lýöræðisins þar í landi né merki þess, aö traust stjórnmála- og efnahagsástand verði í landinu. Sigurinn hefur þvert á móti í för með sér fram- hald á óstjórn og tilheyrandi einræðistilhneigingum. Enginn þeirra þriggja frambjóðenda, sem lengst náðu i forsetakosningunum, getur talizt neinn lýðræðissinni og markaðsbúskaparmaður á vestræna vísu. Sá fulltrúi slíkra sjónarmiða, sem lengst komst í fyrri umferð kosn- inganna, fékk ekki nema 7% atkvæða kjósenda. Jeltsín hefur gróflega misnotað forsetavaldið til að tryggja endurkjör sitt. Hann beitti ríkisflölmiðlunum óspart í sína þágu í kosningabaráttunni og rústaði íjár- hag ríkisins í umfangsmiklum atkvæðaveiðum. Hvort tveggja gefur eftirmönnum hans afar slæmt fordæmi. í tíð Jeltsíns hefur land ekki verið með lögum byggt, svo sem tíðkast á Vesturlöndum, heldur hefur hann stjórnað með tilskipunum að austrænum hætti. Tilskip- anir hafa verið tilviljanakenndar, hafa rekizt hver á ann- arrar horn eða hafa hreinlega dagað uppi. Önnur jákvæða fréttin frá Moskvu barst milli tveggja umferða kosninganna. Það var brottrekstur nokkurra harðlínumanna úr hirð Jeltsíns og endurreisn hagfræð- ingsins Tsjúbai, sem er síðasti Móhíkaninn úr sveit vest- rænt hugsandi manna í fóruneyti forsetans. Hin jákvæða fréttin barst eftir síðari umferðina. Það var tilkynning Jeltsíns um, að Tsjernomyrdin forsætis- ráðherra mundi halda embætti sínu. Það er fremur traustur miðjumaður, sem gerir enga stóra hluti og reynir af varfærni að halda sjó í lífsins ólgusjó. Hafa verður þó í huga, að Tsjernomyrdin hefur lítinn skilning á vestrænu markaðshagkerfi og að Tsjúbai hef- ur ekki fengið ráðherraembætti að nýju. Því má reikna með, að afturhvarfið frá vestrænum markaðsbúskap verði ekki hægara en það hefur verið að undanförnu. Til að tryggja sig í síðari umferð kosninganna fékk Jeltsín til liðs við sig hershöfðingjann Alexander Lebed, sem náði þriðja sæti í fyrri umferðinni. Lebed er núna orðinn öryggisráðherra og einn valdamesti maður ríkis- ins. Hann á eftir að valda vandræðum. Lebed minnir á suðurameríska einræðisherra úr röð- um herforingja. Hann ber ekki gramm af skynbragði á efnahagsmál og gefur lítið fyrir kjaftavaðalinn og sein- virknina, sem oftast fylgir lýðræði. Hann er fullur for- dóma og hefur lýst ímugust á vestrænni menningu. Ekki eru horfur á, að Jeltsín geti hamið þennan hættulega bandamann sinn. Jeltsín er heilsulaus, svo sem títt er um rússneska ofdrykkjumenn á hans aldri. Hann er langtímum saman frá störfum eða kemur fram þrútinn af drykkju eða náfólur og stífur af veikindum. Ef Jeltsín fellur frá, er Tsjernomyrdin formlega séð eftirmaður hans. Hins vegar má búast við, að valds- hyggjumaður á borð við Lebed reyni að nota millibils- ástandið til að sölsa undir sig aukin völd. Það væri mjög í stíl valdafikinna hershöfðingja í þriðja heiminum. Kosningaúrslitin í Rússlandi sýna fyrst og fremst, að almenningur hefur algerlega hafnað vestrænum umbót- um. Afturhvarfið var raunar byrjað á síðustu misserum fyrra kjörtímabils Jeltsíns og mun halda áfram á næsta kjörtímabili undir áhrifum Tsjernomyrdins og Lebeds. Einkum marka kosningaúrslitin aukna óvissu og ör- ari tilskipanir, svo sem oft má sjá, er valdafiknir hirð- menn berjast um að stýra hendi fárveiks foringja. Jónas Kristjánsson Kosningaslagur magnaði kreppuna í Rússlandi Harðsóttar forsetakosningar í Rússlandi hafa ekki aðeins gengið nærri heilsu Borís Jeltsíns for- seta, sem vann í síðari umferð stærri sigur en útlit þótti fyrir, og virðist þar hafa notið manna- breytinga sem hann gerði hið næsta sér á stjórnartindinum í Kreml milli kosningaumferða. Mestu kann að skipta fyrir fram- haldið að við nýrri ríkisstjórn blasa meginvandamál rússnesks þjóðfélags í enn magnaðri mynd en þegar lagt var upp í kosninga- baráttuna á útmánuðum. Við er að fást afleiðingarnar af því úrræði Jeltsíns forseta að leit- ast við að bæta álit sitt meðal kjós- enda sem verst hafa farið út úr upplausnartíma hagkerfaskipt- anna með skyndilegu örlæti á rík- isfé. Starfsmönnum ríkisfyrir- tækja og lífeyrisþegum, sem mátt hafa bíða eftir greiðslum svo mán- uðum skiptir, er lofað skuldaskil- um. Öldruðum, sem misstu spari- fé sitt í verðbólguhít, er heitið bót- um. Illa stöddum ríkisfyrirtækj- um, sem í rauninni eiga engan rekstrargrundvöll, eru boðaðir styrkir. Samtímis þessu hefur botninn dottið úr íjáröflun í ríkissjóð Rússlands. Skattskilum hefur hrakað stórlega, bæði vegna auk- innar greiðslutregðu í von um eft- irgjöf samfara kosningunum og vegna þess að innheimtumenn ríkisins hafa viljað forðast að ganga hart að skuldurum, ef slíkt kynni að hafa pólitískar afleiðing- ar á viðkvæmum tíma. Niðurstaðan er sú að peninga- prentun hefur aukist um allan helming og ríkissjóðshalli magn- ast. í apríl nálgaðist hallinn tólf af hundraði af landsframleiðslu og var þá enn á uppleið en í láns- samningi við Alþjóða gjaldeyris- sjóðinn hafði verið samið um að sú tala skyldi í hæsta lagi nema 3,85% af landsframleiðslu. Af þessu hlýst að verðbólgan er komin á skrið á ný í Rússlandi. Nú er því spáð að verðbólgustigið geti komist upp í tíu af hundraði á mánuði með haustinu en sam- kvæt samningnum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn vár gert ráð fyr- ir að sú tala yrði þá að komast niður í einn af hundraði. Afleiðingin er, að gleggstu manna yfírsýn í Moskvu, kreppa í fjárfestingarmálum og ríkisfjár- málum með haustinu. Þá spá margir að fam undan sé hrun sumra þýðingarmikilla banka og botninn detti úr markaðinum fyr- ir ríkisskuldabréf vegna þess að hve miklu leyti hvert útboð hefur verið fjármagnað með öðru í stað raunverulegra endurgreiðslna. Þetta ískyggilega útlit kann að vera skýringin á því hvers vegna Gennadí Zjúganov, forsetafram- bjóðandi kommúnista, hélt að mestu að sér höndum í stað þess að heyja raunverulega kosninga- baráttu tímabilið milli kosninga- umfeða. Þá sat hann um kyrrt i Moskvu og rak kynningarstarf- semi með hangadi hendi. Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson Varð þetta til að gefa þeirri skoðun byr undir vængi að fram- bjóðandinn kærði sig í rauninni ekki um að taka við stjórn Rúss- lands eins og útlitið er. Ekki dró úr slíkum vangaveltum að helsta framlag hans til opinberrar um- ræðu á þessu tímabili var tillaga um þjóðstjórn aUra stjómmála- afla, með þriðjungi ráðherraemb- ætta fyrir menn Jeltsíns og sama hlutfalli fyrir kommúnista annars vegar og aðra flokka hins vegar. Viktor Tsjernomyrdín lét það verða sitt fyrsta verk, eftir að Jeltsín hafði falið honum að vera áfram í forsæti fyrir nýrri ríkis- stjórn, að gefa i skyn að þar yrði fulltrúum frá kommúnistum boðið að taka einhver sæti. Er það í samræmi við afstöðu sem Alex- ander Lebed, stoð og stytta Jeltsíns í síðari kosningaumferð- inni, hafði áður látið í ljós. Atburðarásin á öðru forseta- tímabili Jeltsíns getur svo mjög mótast af því hvert hlutverk hann fær Lebed sem lýst hefur yfir að hann sækist eftir raunverulegum völdum, sérstaklega í öryggismál- um og við að koma á röð og reglu innanlands. Ef hershöfðinginn fyrrverandi fær fuUtingi ti að ráð- ast gegn óöldinni og fjármálaspill- ingunni, sem fengið hefur að grafa um sig í Rússlandi með þeim að- ferðum sem slíkum mönnum eru einatt tamastar, er hætt við upp að spretti ný ógnarstjórn. Eftir feluleikinn með krank- leika Jeltsins forseta síðustu daga fyrir kosningar hlýtur að ríkja vafi um hversu hann endist á nýju kjörtímabili. Nú er enginn vara- fors'eti en forsætisráðherra á að fylla skarðið fram að nýjum for- setakosningum. Þessu vill Lebed breyta og verða sjálfur varamaður Jeltsíns. Viktor Tjsernomyrdín forsætisráðherra (t.h.) óskar Borís Jeltsín forseta til hamingju í Kreml morguninn eftir síðari umferð forsetakosninganna. Símamynd Reuter skoðanir annarra ___________________py Leyfiö hinum að vera með „Löndin sjö (helstu iðnríki heimsins) eru enn ( ábyrg fyrir rúmlega helmingi framleiðslu heimsins | en nýju iðnríkin í Asíu og Rómönsku Ameríku gera j kröfur um sífellt meiri athygli. Þaö er hér sem efna- I hagsvöxturinn er hvað mestur og sem flest ný störf ! eru sköpuð. Sú spurning gerist því áleitin hvort for- I ustulöndin í þessum heimshlutum eigi ekki að fá að vera með þegar stóru löndin fjalla um skipan efna- hagsmála í heiminum" Úr forustugrein Jyllands-Posten 1. júlí. Um ágæti efnahags- þvingana „Efnahagsþvinganir geta verið lögmæt og gagn- leg aðferð fyrir Bandaríkin til að þrýsta á önnur ríki um að breyta móðgandi stefnu sinni. Með því t.d. að banna bandarískum fyrirtækjum að eiga við- I skipti viö eða fjárfesta í íran, er verið að láta stjóm- völd í Teheran gjalda fyrir að flytja út hryðjuverka- staifsemi, reyna að komast yfir kjarnavopn og brjóta mannréttindi á gróflegan hátt. Það eykur líka á trúverðugleika viðleitni stjórnvalda í Washington að fá ríki Evrópu og Asíu í lið með sér. En því mið- ur láta flest önnur lönd ekki sannfærast." Úr forustugrein New York Times 2. júlí. Séð hvað setur í Hong Kong „íbúar Hong Kong þekkja að sjálfsögðu fyrirlitn- ingu kínverskra stjórnvalda á mannréttindum. Eins og fram hefur komið i fréttum hefur mikill fjöldi fólks og starfstétta þegar sætt sig við þá sjálfs- ritskoðun sem fyrirhuguð valdataka Kínverja hefur haft í för með sér. Með það i huga er athyglisvert að íbúarnir ætla almennt að vera um kyrrt og sjá hvað setur.“ Úr forustugrein Politiken 3. júlí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.