Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 46
54
vefnum
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 '
Margir óttast að í
tæknivæddu nútíma-
samfélagi einangrist
einstaklingurinn.
Tæknin getur líka
fært fólk nær hvað
öðru. Um það snýst
tölvuspjall eða Inter-
net Relay Chat á
ensku. Þór Sigurðs-
son, kerfisstjóri hjá
Orkustofnun, hefur
fylgst grannt með
þessum málum. Hann
segir að fyrir tveimur
árum hafi þrjú þús-
und manns notað
spjallið að jafnaði úti
um allan heim. Nú
munu sex til sjö þús-
und manns vera sam-
tímis að spjalla. Á ís-
landi er talið að um
10-60 notendur séu að
spjalla á netinu að
jafnaði, heildaiijöld-
inn er mun meiri.
U«k tðmt ia % i'iBi*!
Hér má sjá heimasíöu íslensku spjallrásarinnar #Joko. Hana stundar fólk á öllum aldri en
mest ber á fólki á tvítugs aldri og upp úr. Slóöin á síöuna er htt//:www.treknet.is/JOKO
Tolvuspjall:
Að ánetjast
Spjallað yfir fjarlægðir
Margir notendur spjallsins eru
nemendur Háskóla íslands. Einn af
'þeim er 23 ára kona í heimspeki-
deild. „Maður á í ýmiss konar sam-
ræðum, stundum eru þetta jafnvel
perrasamræður.“ Mörgum finnst
þægilegt að tala um alla heima og
geima án þess að mynda önnur náin
tengsl. „Persónulega finnst mér
betra að segja einhverjum sem ég
þekki ekkert frá mínum vandamál-
um ef svo ber undir, því viðkom-
andi dæmir mann ekki út frá ein-
hverju öðru en þvi sem sagt er,“
segir 23 ára starfsstúlka á Vogi.
Algengt er að fólk haldi tengslum
við fjarlæga vini með spjallinu. „Ég
byrjaði til að geta haldið sambandi
við útlendinga sem ég kynntist í
skólanum,“ segir 26 ára gömul
belgísk lagastúdína sem hefur notað
tölvuspjallið í ár. „Maður
myndar oft náin tengsl og það
gildir sérstaklega um það fólk
sem maður skrifast á við eða
hefur talað við í síma. Ég held
að því líði eins gagnvart mér.
Ég hef kynnst mörgum í gegn-
um þetta en séð þá fæsta.“
Samræðurnar á netinu eru
fjölbreyttar en margir viðmæl-
endur telja þær róandi. Frelsi
tjáningarformsins er mönnum
líka dýrmætt. Belgíski neminn segir
að hún verði að spjalla eftir 10 ár.
„Þetta er eina leiðin til að fylgjast
með vinum í öðrum löndum."
Heilbrigð skemmtun eða
óeðlileg fíkn?
Oft er setið við klukkustundum
saman og stofnaðar hafa verið rásir
fyrir þá sem eru að reyna að hætta.
Sumir segja jafnvel að það sé í raun
ekkert líf þama „úti“ og varla sé
hægt að vera án nettengingar. Oft
sitja menn fyrir framan tölvuna
frekar en að horfa á sjónvarp.
„Stundum er sjónvarpið leiðinlegt
og þá er ekkert hægt að gera en hér
ræður maður öllu sjálfur. Ég myndi
segja að sjónvarp sé þreyttur mið-
ill,“ segir nemi í 10. bekk. Skemmti-
legar uppákomur verða þegar fólk
hittist í fyrsta sinn. Oft er ákveðið
að fara á kaffihús, sund eða í bíó.
Aðalmálið er að hittast og kynnast
betur. Oft er mikill munur á fram-
komu og hegðun fólks í daglega líf-
inu eða þegar það spjallar. Þeir sem
eru frakkir að spjalla era kannski
feimnir i öðrum sam- ______
skiptum. -JHÞ l- r
'í. 't* J6- 35 3£r
Tónlist
Óskabam
íslands,
Björk, hefur
að sjálf-
sögðu kom-
iö sér vel
fyrir á net-
inu. Slóðin
til Bjarkar
er:
http://www.bjork.co.uk/bjork/
Ríkharður H. Friðriksson
heldur úti síðu með fjölda teng-
inga á tónlistarsíðu. Þar er að
finna allt frá tölvutónlist yfir í
gagnagrunninn Classical Music
Department sem eins og nafnið
gefur til kynna fjallar um klass-
íska tónlist. Slóöin á síðuna
hans Ríkharðs er http://rvik.ls-
mennt.ls/~rhf/llnks.html
Islenskar kvikmyndir
Kvikmyndasjóður íslands
hefur slóðina http://www.centr-
um.is/fllmfund/
Þar eru ítarlegur upplýsing-
ar um íslenska kvikmyndagerð
siðastliðin 20 ár. Síðan er ein-
göngu á ensku.
íþróttir
Internetfíklar:
Internetið á hverjum
einasta degi.
2. Þú missir allt tímaskyn
þegar þú notar Internetið.
3. Þú ferö æ sjaldnar út.
4. Þú eyöir sífellt minni tíma í
aö boröa heima hjá þér eöa í
vinnunni. í staö þess borðar þú
snarl fyrir framan skjáinn.
5. Aðrir kvarta yfir því að þú
eyöir of miklum tíma á Internet-
inu.
6. Þú neitar því að þú eyðir of
miklum tíma á Internetinu.
7. Þú skoöar póstinn þinn
of oft á dag.
8. Þú heldur því blákalt fram að
þú eigir bestu heimasíöu á vefn-
um og segir öllum frá henni.
9. Þú ferð inn á Internetið þegar
þú ert þegar á kafi í vinnu.
10. Þú finnur fyrir létti þegar
fjölskyldan er ekki heima og þú
getur farið inn á Internetið í
friði.
Leita sér hjálpar
á Internetinu
Sumum verður hált á því
að nota sér Internetið.
Þeir missa stjóm á lífi
sinu og verða bjargar-
lausir Intemet-flklar.
Fólk hættir að borða,
það missir samband
við fjölskylduna, vini
og kunningja en þess í
stað er setið langdvöl-
um fyrir framan skjáinn.
Nú geta þeir sem þjást af
þessum frekar óskemmtilegu
hliðarverkunum tölvu-
byltingarinnar dregið
andann léttar því að
nú hafa sprottið upp
samtök fólks sem
telur sig hafa út-
keyrt sig á upplýs-
ingahraðbraut-
inni. Hægt er að
skrá sig í sérstaka
stuðningshópa á
Internetinu sem
vinna gegn þessum
Risastóran íþróttagagna-
grunn er að finna á http:
//www.sportsmania.com/
Boðið er upp á þann mögu-
leika að slá inn lykilorð sem
gagnagrunn-
urinn leitar
svo að. Þegar
orðið hafna-
bolti var
slegið inn
fundust tæp-
lega hundrað
tengingar
um þá einu
_________________ íþrótt.
Banda-
ríska sjónvarpsstöðin NBC hef-
ur einkarétt á útsendingu sjón-
varpseftiis frá ólympíuleikun-
um í Atlanta. Stöðin heldur úti
glæsilegri heimasiðu helgaðri
leikunum. Slóðin er
http://www.olympic.nbc.com/
• Þar má lesa fréttir frá leikun-
um, lesa sér til um íþróttahetj-
umar sem keppa í Atlanta og
hægt er að keppa í spurninga-
keppni um leikana með aðstoð
tölvupósts. Hin opinbera síða
ólympíuleikanna er ekki síður
glæsileg. Slóðin þangað er
http://www.atlanta.olymplc.org/
Allt sem þú vildir vita um
tennis og meira til má finna á
slóðinni
http://www.geoclties.com/At-
hens/3615/tennis.html
Þar má skoða reglur um
tennis, heimasíður þar sem
sagt er ítarlega frá tennisleikur-
um og síðast en ekki síst er
mikill fróðleikur um svokallaða
tennisolnboga.
Geimferðir
þróun
A’isha Ajayi, sem er prófessor í
upplýsingafræðum við Rochester
tæknistofnunina í New York, segir
að ásóknin í Intemetið sé einungis
hluti af langri þróun. „Fólk er sífellt
að eyða meiri tíma með tæknibún-
aði en öðru fólki. Þessi þróun hófst í
raun þegar útvarpið kom á markað-
inn á fjórða áratug þessarar aldar.
Það að stunda Internetið er í raun
viðbrögð við samfélagsgerð þar sem
fólk hefur einangrast."
Sagðar eru reynslusögur og boðið
er upp á hjálp fyrir Interfikla á slóð-
unum http://www.hkstar.com/%7
Ejoewoo/symptom.html og http:
//www.geocities.com/SlllconVal-
ley/3010/lndexrev.html
Menn geta svo velt þeirri þver-
sögn fyrir sér að þeir séu að leita sér
hjálpar við Internetfíkn á netinu
sjálfu. -JHÞ
Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, hefur sina heima-
síðu á slóðinni
http://www.nasa.gov/ Þar má
skoða nýjustu myndimar frá
Hubble
stjömu-
sjónaukan-
um, skoða
fréttir af
nýjustu af-
rekum
NASA og
auðvitað
er hægt að
leita uppi
fróðleik með hjálp gagna-
granns. Sérstaka athygli skal
vakin á síðunni sem hefúr að
geyma upplýsingar um rann-
sóknir stofnunarinnar á jörð-
inni og lofthjúp hennar.
Umsjón
Jón Heiðar Þorsteinsson