Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 31
iujiglingaspjall
linglingarnir fylgjast vel með tískunni og ganga í háum skóm með þykkum botni og hæl:
Skórnir eru ýktir og við erum kynþokkafyllri
- segja unglingsstelpurnar
„Mér finnst þessi nýja skótíska
alveg frábær. Það er langflottast að
hafa botninn þykkan og skóna sem
hæsta. Það er ekkert óþægilegt að
ganga í þeim,“ segir Elísa Sverris-
dóttir sem DV hitti að máli i
Kringlunni. Elísa var að kaupa
sér skó en skótískan líkist því
helst er var vinsælt á sjö-
unda áratugnum. Hælar
eru afar háir og botnarnir
þykkir. Bæði er um há
leðurstígvél að ræða og
bandaskó og aðralokaða
skó. Sumir þeirra eru
með korkhæl og kork-
botni.
„Þessi tíska er búin
að vera vinsæl í sumar
og sífeflt koma á mark-
aðinn nýir skór. Flestir
unglingar fylgjast mjög
vel með tiskunni og
kaupa sér það nýjasta.
Ég er ein af þeim sem
fylgjast með og það eru
allir í svona skóm. Mað-
Elísa Sverris-
dóttir er þeirrar
skoðunar að
strákunum þyki
stelpurnar kyn-
þokkafullar í háu
skónum.
DV-myndir ÞÖK
ur er núll og nix ef maður fylgir
ekki tískunni. Þetta er svolítið
furðulegt samt. Strákunum þyk-
ir við vera miklu flottari og
kynþokkafyllri ef við erum í
háum skóm. Það er líka
svo gaman að fylgjast
með tískunni og stund-
um kemur það manni
inn í vissar klíkur að
vera töff,“ segir El-
ísa. Unglingarnir á
íslandi hafa löng-
um verið þekktir
fyrir það að eltast
við tískuna i
skófatnaði sem
öðru. Að þessu
sinni koma
skórnir frá Spáni
og eiga það allir
sameiginlegt að
vera miklir um
sig með þykkum
sóla og hæl. Að
sögn þeirra sem
starfa í skóbúðun-
um er þessi þykk-
botnatíska mest-
megnis stíluð inn á
aldurinn 12-18 ára og
eru þykkbotna íþrótta-
skór mjög vinsælir.
„Mér finnst þessir þykku
skór alveg frábærlega flott-
ir en ég fylgist líka svo vel
með tískunni. Ég veit samt
ekki af hverju ég fylgist með tísk-
unni. Maður verður ekki vinsæll í
hópnum nema að gera það.
Skemmtilegast að eyða tímanum með skemmtilegu fólki
Fullt nafn: Karl Pétur Jónsson
Fæðingardagur og ár: 30. ágúst
1969
Maki: Sonja Dögg Pálsdóttir
Börn: Engin. Bifreið: Rjómalituð
VW bjalla, 1973 árgerð.
Starf: Kynningarstjóri Stone Free.
Laun: Afar misjöfn.
Áhugamál: Fjölmiðlar, kvik-
myndir, bókmenntir, leikhús,
stjórnmál, útivera, íþróttir og flest
annað sem viðkemur daglegu lífl.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói?.Já, ég vann 365 kr. í
fyrsta lottódrætti íslandssögunn-
ar, en síðan ekki söguna meir,
enda legg ég yfirleitt ekki peninga
undir nema ég geti sjálfur haft
áhrif á sigurlíkurnar.
Hvað finnst þér skenuntilegast
að gera? Að eyða tíma með
skemmtilegu fólki, t.d. konunni
minni, fjölskyldu minni og vinum
mínum, sem eru hver öðrum
skemmtilegri. Lautarferðir í El-
liðaárdalinn meö systrabörnum
mínum eru einnig hátt á listanum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Skattskýrsluna mína.
Uppáhaldsmatur? Við hjóna-
leysin erum miklir matgæðingar
og erfitt að nefna einhvem einn
rétt sem uppáhalds.
Uppáhaldsdrykkur? Ég er mjög
hrifinn af vel krydduðum spænsk-
um rauðvínum, sérstaklega Rioja-
vinum. Af brenndum drykkjum
kýs ég helst gin og tónik og svo er
afltaf gott að fá sér Grand
Marnier eða koníak eftir góða
máltíð. Koníakið má hins veg-
ar ekki vera mikiö yngra en
ég-
Hvaða bók langar þig mest
til þess að lesa? Sögu síðari hluta
tíunda áratugarins.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rásir 1 og 2 Ríkisútvarpsins
bjóða upp á langbestu dagskrána,
enda em til nægir (skatt)peningar
á þeim bænum. Það er varla sann-
gjamt að bera þær rásir saman við
litlar stöðvar á borð við Aðalstöð-
ina og FM 957, sem mér finnst gera
mjög fma hluti í dagskrárgerð
miðað við þá peninga sem úr er að
moða.
Hvaða sjónvarpsstöð horfir þú
mest á? Ég horfi mjög lítið á sjón-
varp þessa dagana, ef fótbolti er
undanskilinn, en sennilega horfi
ég mest á Sky News, Sky One og
CNN, svona undir venjulegum
kringumstæðum.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?
David Letterman.
Uppáhaldsfélag í íþróttum?
UMF Ragnan Reykjavík, knatt-
spyrnufélag sem félagar mínir
stofnuðu og ég á hlutabréf i.
Stefnir þú
að
Bfe r-t
einhverju
inni?
sérstöku í framtíð-
Lífshamingju með lágmarkserfiði.
Gera fólkið í kringum mig ham-
ingjusamt og sjálfan mig í leiðinni.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Ég tók langt sumarfrí í vetur og
dvaldi í Montpeflier í Suður-
Frakklandi við afslöppun og hóg-
Íífi.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur i dag? Þrátt fyrir langa
fjarveru úr handboltanum held ég
að Stefán Sigurðsson, handknatt-
leiksmaður úr Haukum, hljóti að
vera sá allra fremsti.
Uppáhaldstímarit: Ýmist breska
GQ eða breska Esquire, FHM er of-
arlega á listanum einnig.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Það
skiptir engu máli hvemig ég svara
þessari spurningu, ég lendi í vand-
ræðum og kýs því að þegja.
Ertu hlynntur eða andvígur rík-
isstjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Jim Cartwright, það ræt-
ist vonandi síðar í mánuðinum.
Gæti einnig vel hugsað mér að
spjalla kvöldstund við Milan
Kundera og Snæfríði íslandssól.
Uppáhaldsleikari: Kjartan Guð-
jónsson er sennilega einn hæfileik-
aríkasti gamanleikari þjóðarinn-
ar, en þess má geta að hann er í
burðarhlutverki í Stone Free.
Uppáhaldsleikkona: Margrét Vil-
hjálmsdóttir vinnur án alls efa
leiksigur í Stone Free, sem frum-
sýnt verður í Borgarleikhúsinu 12.
júlí, og er í mestum metum hjá
mér íslenskra leikkvenna ásamt
Sigrúnu Eddu Bjömsdóttur,
sem var snilldargóð í Hinu
ljósa mani.
Uppáhaldssöngvari: Emilí-
ana Torrini.
Uppáhaldsstjórnmálamað-
ur: Þeir em margir en sá efhi-
legasti er Guðlaugur Þór Þórð-
arson, varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Vesturlandi.
U ppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tinni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir
og fótbolti. Dagsljós var líka yfir-
leitt mjög skemmtilegt.
Uppáhaldsmatsölustaður: Le
Cercle Des Anges í Montpellier.
Ritt segir að Björk sé best
„Ur því að ég er komin hingað
ætla ég að sjálfsögðu að sjá bæði
Nick Cave og Björk. Þau spila það
sem ég kalla gæðatónlist."
Það var ekki einhver unglingur-
inn sem lét þessi orð falla á Hró-
arskelduhátíðinni í Danmörku um
daginn heldur framkvæmdastjóri
umhverfismála hjá Evrópusam-
bandinu, hin umdeilda Ritt Bjer-
regaard. „Þetta er alveg frábær há-
tíð,“ bætti hún svo við.
Ritt hafði aldrei áður sótt þessa
miklu popphátíð sem kunnugir
segja að sé sú mesta og besta á
gjörvöflum Norðurlöndum.
Ritt Bjerregaard var þó fremur
skúffuð yfir því að uppáhaldstónlist-
armaðurinn hennar meðal rokkara,
stjóíinn Bruce Springsteen, skyldi
ekki vera meðal þeirra sem tróðu
upp.
Eins og sönnum umhverfisskrif-
finna frá Brussel sæmir hafði Ritt
vakandi auga með öflu sem tengist
starfsvettvangi hennar á meðan hún
dvaldi meðal hátíðargesta. Hún lýsti
til dæmis yfir mikilli ánægju með
að sjá að bjórinn var seldur í endur-
nýtanlegum umbúðum.
Áður en Ritt hristi sig og skók
undir tónlist Bjarkar og Nicks
Caves snæddi hún með skipuleggj-
endum Hróarskelduhátíðarinnar. Á
matseðlinum var gómsætur laxa-
réttur.
Ritt Bjerregaard á Hróarskelduhá-
tíöinni, þess albúin ab hlusta á
Björk.
-
hin hliðin
finnst þessir skór vera fyrir 15-20
ára aldurinn," segir Anna
Theodorsdóttir, 18 ára.
„Mér finnst þetta „ýkt cool“ flott-
ir skór. Ef skór eru með þunnum
botni og lágum hæl verður táin svo
asnalegt. Skórnir eru mjög þægileg-
ir þó þeir séu svona háir. Ég held að
pabba og mömmu þyki þessi skó-
tiska líka flott en annars
myndi það ekki skipta
mig neinu máli. Ég
myndi kaupa mér svona skó þó svo
þeim þætti þeir ljótir. Ég reyni að
fylgjast mjög vel með tískunni til
þess að vera ekki púkó,“ segir
Særún Ástþórsdóttir.
Stelpurnar virðast láta sig hafa
það að kaupa tískuskóna hvað sem
þeir kosta en verðið er auðvitað
mjög misjafnt eftir búðum. Algengt
verð er í kringum 6-8000 krónur.
-em
Anna
Theodorsdóttir
fylgist vel meö
tískunni til
þess aö falla
inn í hópinn.