Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 6. JULI 1996
Borís Jeltsín Rússlandsforseti getur ekki leitt kommúnista hjá sár á nýju kjörtímabili:
Samsteypustjórn óumflýjanleg
til að sigrast á erfiðleikunum
Borís Jeltsín Rússlandsforseti var
hvergi sjáanlegur þegar tapparnir
flugu úr kampavínsflöskunum og
aðstoðarmennirnir fögnuðu sigri
hans í síðari umferð forsetakosning-
anna á miðvikudag, ekkert frekar
en síðustu viku kosningabaráttunn-
ar þegar slæmska í hálsi gerði hann
nánast óvirkan og ósýnilegan.
Það gerist ekki oft að sigurvegari
kosninga komist upp með að leika
jafn lítið hlutverk á lokasprettinum,
og raun varð á með Jeltsín, né hef-
ur varla nokkur svo afgerandi sig-
urvegari látið fara jafn lítið fyrir
sér eftir að ljóst var hvert stefndi.
Frekari umbætur vænt-
anlegar
Glæsilegur sigur Jeltsíns veitir
honum viðtækara umboð og meira
athafnafrelsi en stjórnmálaskýrend-
ur höfðu átt von á. Það opnar mögu-
leikana á enn frekari efnahagsum-
bótum í átt til markaðshagkerfis.
Lars Poulsen Hansen, sérfræðing-
ur við Dönsku alþjóðamálastofnun-
ina, sagði að hinn mikli munur, 13
prósentustig, á Jeltsín og keppi-
nauti hans, Gennadí Zjúganov, leið-
toga kommúnista, þýddi að forset-
inn hefði fengið yfirgnæfandi stuðn-
ing við umbótastefnu sína. Hansen
velti því þó fyrir sér hvort það væri
nóg.
„Spurningin er hvað gerist næst.
Ef heilsufar hans er jafn bágborið
og það lítur út fyrir að vera kunna
að vakna efasemdir um að hann geti
gegnt forsetaembættinu til ársins
2000,“ sagði Hansen.
Martröðin sem varð
ekki að veruleika
segir ráðgjafi frambjóðanda kommúnista, Gennadís Zjúganovs
Borís Jeltsín Rússlandsforseti ávarpaöi þjóöina aö morgni fimmtudagsins 4. júlí og þakkaöi henni fyrir aö veita
sér brautargengi í eitt kjörtímabii enn. Um leiö hvatti hann til þjóðareiningar.
SímamyndReuter
milli hans og forsetans.
Ef Jeltsín reynist einhverra hluta
vegna ófær um að gegna embætti
forseta Rússlands kveður stjórnar-
skrá landsins svo á um að forsætis-
ráðherrann, Viktor Tsjernomyrdin,
sem Jeltsin skipaði aftur í embætti
á fimmtudag, taki við í þrjá mánuði
þar til nýjar kosningar hefðu farið
fram. En orð Lebeds og athafnir
henda til að hann þyrsti í völd og
kynni að grípa í taumana.
Hvatt til þjóðareiningar
Jeltsín getur ekki hunsað komm-
únista algjörlega Wegna styrkrar
stöðu þeirra í þinginu. Þeir eru í að-
stöðu til þess að hafna Tsjernomyr-
din sem forsætisráðherra. Þingleið-
togi þeirra sagði hins vegar á
fimmtudag að hann byggist við að.
þingið mundi staðfesta Tsjernomyr-
din ef hann yrði tilnefndur opinber-
lega.
Forsetinn hvatti líka til þjóðar-
einingar eftir sigur sinn á miðviku-
dag.
„Ég er viss um að i stjórn minni
verður pláss fyrir alla þá sem þið
treystið. Við skulum ekki skipta
landinu í sigurvegara og hina sigr-
uðu,“ sagði Jeltsín í stuttu sjón-
varpsávarpi til kjósenda á fimmtu-
dagsmorgun.
Þingstyrkur kommúnista gerir
þeim kleift að hægja á eða stöðva al-
veg umbótafrumvörp sem lögð eru
fyrir þingið eins og þeir hafa gert
frá því þeir bættu miklu fylgi við
sig í kosningunum í desember síð-
Heilsufar Jeltsíns er kannski
helsti óvinur hans þessa stundina
en völd hans munu ekki aðeins tak-
markast af þeim sökum. Hann er
dæmdur ti} að taka menn með önn-
ur sjónarmið en sín eigin inn í rík-
isstjómina til þess að geta glímt við
efnahagsvandann. Kommúnistar,
óvinir hans, hafa tögl og hagldir á
þinginu og margir kjósendur studdu
hann bara með semingi.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti gat
Ihins vegar áreiðanlega ekki hugsað
sér betri gjöf þegar hann vaknaði á
sjálfan þjóðhátíðardag Bandaríkj-
anna 4. júlí en að heyra að sigur
Jeltsíns væri í höfn. Þar með var
ljóst að martröðin um að kommún-
istar kæmust hugsanlega aftur til
valda í Kreml varð ekki að veru-
leika. Clinton kallaði sigur Jeltsíns
líka „sigur fyrir lýðræðið".
Þótt bandarísk stjómvöld hafi op-
inberlega aðeins lýst stuðningi sín-
um við umbótastefnuna fóru emb-
ættismenn þó ekki leynt með það í
einkasamtölum að þeir höfðu
áhyggjur af velgengni Zjúganovs.
Ekki koma okkur í vand-
I ræði, Jeltsín
Embættismaður í Washington
sagði að það sem riði á að gera núna
væri að vinna áfram að því að setja
Rússa á bekk með öðrum þjóðum og
að við fyrstu hentugleika yrði að
reyna að semja um inngöngu þeirra
í Heimsviðskiptastofnunina (WTO),
arftaka GATT.
„Þar sem þessar kosningar eru
nú frá getur Clinton einbeitt sér að
því að reyna sjálfur að ná endur-
kjöri í nóvember. Hann getur beðið
Viktor Tsjernomyrdin, sem Jeltsín Rússlandsforseti skipaöi aftur í embætti forsætisráöherra
á fimmtudag, fær hlýjar móttökur hjá hinum fræga kvikmyndaleikstjóra Níkíta Míkhalkov viö
komuna á blaöamannafund á fimmtudag.
Jeltsín um að gera nú ekki neitt
sem gæti komið bandarískum
stjórnvöldum í vandræði," sagði Ilja
Prízel, sérfræðingur við Paul Nitze
alþjóðamálaskólann í Washington.
Heilsuleysi og valdabar-
átta í Kreml
Stjórnmálaskýrendur telja að ef
heilsuleysi Jeltsins gerir aftur vart
við sig kunni slíkt að hafa í fór með
sér valdabaráttu í Kreml. Þá færu
menn líka að hafa áhyggjur af því
hver væri við stjómvölinn í Rúss-
landi, einkum þegar litið er til þess
að Alexander Lebed, nýskipaður yf-
irmaður öryggismála, hefur farið
fram á víðtæk völd og látið að því
liggja að hann hafi áhuga á að verða
varaforseti.
Margir hafa áhyggjur af því að
Jeltsín muni ekki endast heilsa til
að gegna embættinu eitt fjögurra
ára kjörtímabil til viðbótar. Aðstoð-
armenn hans segja að nýjasti kvill-
inn sem hrjái hann sé bara bronkít-
is. Forsetinn hefur hins vegar þegar
lifað lengur en meðalkarlinn í
Rússlandi getur gert sér vonir um
og í ofanálag hefur hann tvisvar
sinnum fengið hjartaáfall.
Frjálslynda þingkonan Galína
Staróvojtóva, sem studdi Jeltsín í
síðari umferð kosninganna, sagði að
mikið ylti á því hvaða menn væru í
kringum forsetann.
Lebeds Verkamenn tóku gamla slitna rússneska fánann á Kremlarhöll
niöur og settu nýjan í staöinn eftir sigur Borísar Jeltsíns í síö-
Helsti arj umferjj forsetakosninganna.
ovissuþatt-
urinn er
framtíðar-
hlutverk og
völd Lebeds, sem varð í þriðja sæti
í fyrri umferðinni og fékk öryggis-
málaembætti sitt í skiptum fyrir
stuðning við Jeltsín.
Lebed hefur farið fyrir brjóstiö á
ýmsum með athugasemdum sínum
og framkomu. Sumir stjómmála-
skýrendur spá þvi að þess verði
ekki langt að bíða að átök blossi upp
astliðnum.
„Myndun samsteypustjórnar er
óumflýjanleg. Tsjernomyrdin og
Lebed töluðu um það af því að við
sigrumst ekki á vaxandi efnahags-
kreppu nema við stöndum saman,“
sagði Alexei Pódberjozkín, ráðgjafi
Gennadís Zjúganovs.
Reuter