Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Side 15
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ1996 15 Sumarverk í fullum gangi á Bessastöðum þar sem fimmti forseti íslenska lýðveldisins tekur við búi fyrsta dag næsta mánuðar. DV mynd GVA Þiónusta við þjóðina Þá hefur þjóðin kosið sér nýjan forseta - þann finunta sem gegnir því embætti frá því lýðveldið var stofnsett á Þingvöllum árið 1944 - og það með svo miklum atkvæða- mun að úrslitin urðu flestum ljós um leið og fyrstu tölur voru birtar síðastliðið laugardagskvöld. Ekki fer á milli mála að vend- ingarnar í forsetamálunum síð- ustu mánuðina komu mörgum verulega á óvart og það jafnvel svo að sumir virðast vart trúa því enn aö fyrrum formaður Alþýðubanda- lagsins • hafi náð glæsilegu kjöri sem næsti þjóðhöfðingi íslendinga. Reynslan frá 1968 Þar kemur margt til. Fram á miðjan vetur virtust flestir aðhyll- ast þá skoðun, sem mjög hefur ver- ið haldið á lofti allt frá því Krist- ján Eldjám gjörsigraði Gunnar Thoroddsen í forsetakosningunum árið 1968, að þjóðin vilji alls ekki hafa stjórnmálamann á Bessastöð- um. Þegar Kristján fór í sitt eftir- minnilega forsetaframboð hafði hann um árabil gegnt starfi þjóð- minjavarðar en var auk þess kunnur meðal landsmanna fyrir fræðistörf sín og fræðsluþætti í sjónvarpi sem þá var nýr áhrifa- valdur hér á landi. Gunnar Thoroddsen kom hins vegar, þrátt fyrir skamma viðdvöl sem sendiherra í Kaupmannahöfn, úr innsta hring stjómmálabarátt- unnar þar sem hann hafði undir það síðasta lent í kröppum póli- tískum dansi sem fjármálaráð- herra. Þótt margir drægju þá ályktun af úrslitunum 1968 að þjóðin hefði hafnað Gunnari Thoroddsen vegna þess að hann var stjórn- málamaður mun þó einnig hafa skipt mjög verulegu máli um úr- slitin að hann var tengdasonur fráfarandi forseta. Af andstæðing- um hans var óspart að því vikið í kosningabaráttunni að óeðlilegt væri að forsetaembættið gengi nánast í erfðir. Kristján farsæll Sérhver forseti hlýtur að gegna embætti þjóðhöfðingjans með sínu lagi i samræmi við hæfileika sína og lunderni. Hér á við hið gamal- kveðna: veldur hver á heldur. Þjóðinni líkaði ákaflega vel með hvaða hætti Kristján Eldjám rækti skyldur sínar sem forseti íslands á þeim tólf ámm sem hann sat í þessu virðulega embætti. Hann var afar farsæll í þjónustu sinni við þjóðina og stóð fyllilega undir því einstaka trausti sem landsmenn höfðu sýnt honum með yfirburða- stuðningi í kosningunum. Hann sýndi líka og sannaði í verki að forseti sem hafði enga persónulega pólitíska reynslu gat gegnt skyldum sínum við stjómar- myndanir að loknum Alþingis- kosningum án þess að þar félli nokkur blettur á - en um það var efast af andstæðingum hans í kosningaslagnum. Áhrif Vigdísar Þegar Kristján ákvað að gefa ekki kost á sér að nýju árið 1980 fór þjóðin því strax að leita að heppúegum eftirmanni hans utan stjómmálaflokkanna. Þótt einn kunnur stjómmálafor- ingi, Albert Guðmundsson, byði sig fram til forseta það ár skiptist langmestur hluti atkvæðanna á milli tveggja áhrifamanna í menn- ingar- og menntalífi landsmanna. Leikhússtjórinn og háskólarektor- inn, Vigdís Finnbogadóttir og Guðlaugur Þorvaldsson, skiptu með sér tveimur þriðju hlutum allra greiddra atkvæða - en Vigdís fékk sem kunnugt er einu pró- sentustiginu meira. Kristján Eldjám var afar virtur og ástsæll með þjóð sinni frá fyrstu stundu. Slíkan sess í hjört- um landsmanna ávann Vigdís Finnbogadóttir sér líka fljótlega eftir kjörið árið 1980, þótt hún hefði einungis fengið stuðning þriðjungs þjóðarinnar á kjördegi. Hún hefur hins vegar borið hróður lands og þjóðar mun víðar um heimsbyggðina en forverar hennar á forsetastóli gerðu. Með Laugardagspistill Elías Snæland Jónsson kosningu hennar varð nafh forseta íslands í fyrsta sinn í sögunni þekkt viða um veröldina - í upp- hafl vegna þess að hún var fyrsta konan sem náði kjöri sem forseti í almennum kosningum og ruddi þannig brautina en einnig vegna glæsilegrar framkomu sinnar. Enda hefur íslenska þjóðin tví- mælalaust haft margvíslegt gagn af þeirri miklu landkynningu sem tengst hefur nafni Vigdísar síð- ustu sextán árin. Þegar ljóst varð að Vigdís Finn- bogadóttir gæfi ekki kost á sér til endurkjörs hófst enn á ný leit að heppilegum eftirmanni utan stjómmálanna. Að vísu var vitað að nokkrir stjórnmálamenn höfðu um árabil rennt löngunaraugum til Bessastaða en talið sig hafa tak- markaða möguleika á að ná kjöri einfaldlega vegna þess að þjóðin vildi ekki stjórnmálamann sem forseta íslands. Á þessu viðhorfi varð hins veg- ar veruleg breyting á skömmum tima síðastliöinn vetur. Hvers vegna? \ Hvað breyttist? Vafalítið eru skiptar skoðanir á orsökum þessarar viðhorfsbreyt- ingar. Sumir afgreiöa málið með því einu að fullyrða að það hafi einfaldlega verið kominn tími á stjómmálamann í þetta embætti. En slíkt segir auðvitað lítið. Eitt atriði hafði tvímælalaust mest að segja í þessu efni. Það er framganga forsætisráöherra. Nafn hans kom sem kunnugt er fljótlega upp í umræðunni um líklega fram- bjóðendur. Hann tók sér langan umþóftunartima, nokkra mánuði. Með því hafði hann afgerandi áhrif á almenningsálitið. Eftir því sem leið á veturinn gerðu fleiri og fleiri sér grein fyrir því að svo sterkur foringi, formaður stærsta stjórnmálaflokks þjóðarinnar, hlyti að fá verulegt fylgi í forseta- kosningum. Það var þvi ekki leng- ur óhugsandi, heldur miklu frekar líklegt, að stjómmálamaður yrði næsti húsráðandi á Bessastöðum. Margir trúðu því lengi vel að forsætisráðherra færi í framboð til forseta. Á meðan þjóðin beið eftir ákvörðun af hans hálfu fóm því pólitískir andstæðingar hans að velta fyrir sér hugsanlegum keppi- naut og staðnæmdust brátt við Ólaf Ragnar Grímsson. Þar með var hleypt af stað þeirri atburða- rás sem allir þekkja. Kristján Eldjám er eini forset- inn í sögu lýöveldisins til þessa sem hefur verið kjörinn með meirihluta atkvæða allra lands- manna. Sveinn Bjömsson var val- inn af Alþingi. Ásgeir Ásgeirsson, Vigdis Finnbogadóttir og Ólafur Ragnar Grímsson náðu öll kjöri til þessa embættis fyrsta sinni með minnihluta greiddra atkvæða á bak við sig. Að sætta þjdðina Eftir forsetakosningarnar 1952 var mörgum manninum heitt í hamsi, ekki síst í Sjálfstæðis- flokknum þar sem sár innan- flokksátakanna voru lengi að gróa. Almenningur var hins vegar fljót- ur að sameinast um hinn nýja for- seta eftir að hann hafði tekið við embætti, og Ásgeir varð sjálfkjör- inn í þau þrjú skipti sem hann bauð sig fram eftir það. Reynsla Vigdísar Finnbogadótt- ur var mjög af sama toga. Þótt hún fengi einungis um þriðjung at- kvæðanna í fyrstu kosningunum tókst henni fljótt og vel að afla sér stuðnings þeirra landsmanna sem kosið höfðu aðra frambjóðendur. Hinn nýkjömi forseti hefur þeg- ar lagt áherslu á að mikilvægasta verkefni sitt sé að sameina þjóðina að loknu forsetakjörinu. Hann hef- ur, eins og Ásgeir Ásgeirsson á sinni tíð, háð marga pólitíska hildi. Slik átök hafa að sjálfsögðu skilið eftir sig sár sem gróa misvel eins og gengur. En nú heyra þau fortíðinni til. Þjóðhöfðinginn er í senn sameiningartákn þjóðarinnar og þjónn hennar. Hvort og hvenær eðlilegur friður ríkir um húsráð- andann á Bessastöðum hverju sinni er fyrst og fremst undir hon- um sjálfum komið. Engin ástæða er til að ætla annað en að nýkjörn- um forseta auðnist að fylkja lands- mönnum að baki sér með svipuð- um hætti og forverum hans í emb- ættinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.