Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Page 19
X>V LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 VISA-bikarkeppnin í Kaupmannahöfn: Mestu tilþrifin í skákum Háðins - fjórir vinningar skilja að Karpov og Kamsky íslensku skákmeistararnir voru heldur mistækir á opna mótinu í Kaupmannahöfn, sem lauk sl. fimmtudagskvöld, og náðu ekki að blanda sér í baráttuna um allra efstu sætin. Þegar einni umferð var ólokið voru sex skákmenn jafnir og efstir með 7,5 vinninga en efstu ís- lendingarnir, Margeir Pétursson og Jóhann Hjartarson, deildu 20.-36. sæti með 6,5 vinninga. Héðinn Steingrímsson hafði hlotið 6 vinn- inga, Björn Þorfinnsson 5, Davíð Kjartansson og Bragi Þorfinnsson 4,5 og Atli Hilmarsson 4 v. Mótið er liður í norrænu VISA- bikarkeppninni, sem hófst með opna Reykjavíkurskákmótinu í febrúar. Þar voru Norðmenn sigur- sælir en á Kaupmannahafnarmót- inu hafa gestir utan Norðurlanda lengstum barist um efstu sætin. Efstu menn voru Kortsnoj, Ros- entalis, Hodgson, Gulko, Kogan og nokkuð óvænt, Hillap Persson. Mar- geir og Jóhann áttu því nokkra von um góða stigagjöf í bikarkeppninni, en norrænu keppendurnir tefla um þátttökurétt í lokuðu móti haustið 1997, sem hugsanlegt er að fram fari hér á landi. Margeir tapaði óvænt í 6. umferð fyrir Sune Berg Hansen og Jóhann varð að sætta sig við ósigur gegn Peter Heine Nielsen í 9. umferð. Jó- hann hefur m.a. teflt við Speelman ^ og Hodgson og lyktaði báðum skák- unum með jafntefli. Jóhann og Mar- geir tefldu saman í 8. umferð og voru ekkert að tefja allt of lengi við taflið - úr varð friðsamleg rimma. Héðinn Steingrímsson tekur nú þátt í alþjóðlegu skákmóti eftir nokkurt hlé en hann leggur stund á nám við Háskóla íslands og því hef- ur lítið tóm gefist til að sinna skák- gyðjunni. Æfingaleysið sagði til sín um miðbik mótsins er Héðinn varð að bíta í það súra epli að tapa þrem- ur skákum i röð. En þá var honum nóg boðið og í 8., 9. og 10. umferð hafa andstæðingar hans steinlegið. Rennum yfir tvær þessara skáka, sem eru hvort tveggja i senn, stutt- ar og snaggaralegar: 9. umferð: Hvítt: Héðinn Steingrímsson Svart: Ole Bo Andersen Grunfeldsvörn. I. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 < 7. Rf3 c5 8. Hbl 0-0 9. Be2 b6 10. Bb2?! e6 11. d5? Nýstárleg hugmynd hvíts stenst I ekki, eins og Héðinn er fljótur að sýna fram á. II. - exd5 12. cxd5 Bf5 13. Hal Be4! 14. Bc4 b5! 15. Bxb5 Db6 16. Db3 Bxd5! 17. c4 Ef 17. Dxd5 Dxb5 18. Dxa8 He8+ og auðvelt er að sjá að skammt er til leiksloka. 17. - Bxb2 18. Hbl Einnig er 18. Dxb2 Bxc4 vonlaust. 18. - Bxf3 19. Dxf3 Df6! 20. Dxa8 Dxc3+ 21. Ke2 Dc2+ 22. Kf3 Dd3+ 23. Kf4 23. - Be5+! I - Og hvítur gaf. Ef 24. Kxe5 Dd4 mát! 10. umferð: Hvitt: Héðinn Steingrímsson Svart: Gunnar West Hansen Tískuvörn. 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. c3 d5 4. Rd2 e5?! 5. dxe5 dxe4 6. De2 De7 7. Rxe4 Dxe5 8. Rf3 Hér var 8. Bf4 skemmtilegur möguleiki - ef 8. - Dxf4 9. Rf6+ og mát í næsta leik, eða 8. - De7 9. Bxc7! o.s.frv. 8. - De7 9. Bg5 f6 10. Bf4 f5 11. Red2 c6 Svartur hefur kastað „tempóum" á glæ í byrjuninni og liðsskipanin situr á hakanum. Óhætt er að mæla með drottningakaupum, nú eða síð- ar, þótt ekki leysi þau vandann. 12. Rc4 Rd7 13. 0-0-0 Rb6? 14. Dd2! Rd5 15. Hel Be6 16. Rg5 Rxf4 17. Rd6+ Kf8 18. Dxf4 Bh6 19. Rxe6+ Dxe6 20. Dxh6+! Rxh6 21. Hxe6 - Hvítur hefur unnið mann og ekki þarf að spyrja að leikslokum. Héðinn vann létt. Karpov nægir vinningur til viðbótar Anatoly Karpov hefur fengið 9,5 vinninga gegn 5,5 vinningum Kam- skys í einvígi þeirra í Kalmikíu. Karpov þarf því aðeins einn sigur til viðbótar - eða tvö jafntefli - til þess að standa upp'i sem sigurveg- ari. Karpov var nálægt því að tapa 13. skákinni, sem hann þó átti afar vænlega um tíma. Þegar skákin fór 1 bið hugðu fáir honum líf - Kams- ky átti tveimur peðum meira. En „mislitir biskupar“ voru í stöðunni, sem Karpov tókst að nýta sér. Eftir 90 leiki var fram komin fræðileg jafnteflisstaða, þrátt fyrir að Kams- ky ætti enn peðin tvö til góða. 114. skákinni varð hins vegar hið gagnstæða uppi á teningnum. Nú hafði Karpov peði meira en Kamsky og gat gert sér vonir um jafntefli vegna mislitra biskupa. En veldur hver á heldur, segir máltækið. Kar- pov gerði sér auðveldlega mat úr yf- irburðum sínum og jók forskotið í fjóra vinninga. í 15. skákinni ætlaði Kamsky að blása til sóknar með svörtu og tefldi Benónývörnina háskalegu. Karpov hafði hins vegar engan áhuga á því að flækja taflið og stýrði í jafnteflis- höfn. 14. einvígisskákin: Hvítt: Gata Kamsky Svart: Anatoly Karpov Nimzo-indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5 5. Bd3 Rc6 6. Re2 cxd4 7. exd4 d5 8. cxd5 Rxd5 9. 0-0 Bd6 10. Re4 Be7 11. a3 0-0 12. Bc2 Dc7 13. Dd3 Hd8 14. Rg5 g6 15. Bb3 Rf6 16. Hdl Bf8 17. Bf4 De7 18. De3?! Rd5 19. Bxd5 exd5! 20. Rf3 Dxe3 21. fxe3 Það sem á eftir kemur er sígilt dæmi um baráttu biskupaparsins gegn biskup og riddara. 21. - f6 22. Hacl Bf5 23. h3 h5 24. Rc3 g5 25. Bh2 h4 26. Rd2 Kf7 27. Rb3 Hac8 28. Rb5 a6 29. Rc3 skák Jón L. Árnason b5 30. Re2 b4! 31. a4 He8 32. Kf2 Kg6 33. Rgl Ra7 34. Rc5 Kamsky reynir að blíðka goðin með peðsfórn. 34. - Hc6 35. Rf3 Hec8 36. b3 a5 37. Ke2 Be4 38. Kd2 Bxc5 39. dxc5 Hxc5 40. Hxc5 Hxc5 41. Hcl Hxcl 42. Kxcl Rc6 43. Bc7 f5 44. Kd2 44. - d4! 45. exd4 f4 46. Ke2 Bd5 47. Kf2 Bxb3 48. Re5+ Rxe5 49. dxe5 Bxa4 50. Bxa5 b3 51. Bc3 Kf5 52. Bb2 Bc6 53. Kfl Bd5 54. Kf2 Ke4 55. Ke2 Bc4+ 56. Kd2 f3 . 57. gxf3+ Kxf3 58. e6 Bxe6 59. Bf6 g4 60. hxg4 h3 61. Be5 Bxg4 - og nú gafst Kamsky upp. Opið mót í Bolungarvík Um næstu helgi verður haldið opið atskákmót í Bolungarvík, sem er liður í afmælishátíð vegna 50 ára afmælis Bolvíkingafélagsins í Reykjavík. Mótið hefst kl. 17 á föstu- dag 12. júlí og verður fram haldið laugardaginn 13. júlí. Tefldar verða 9 umferðir og verða veitt verðlaun, kr. 25 þús., 15 þús. og 10 þúsund fyr- ir þrjú efstu sætin. Skráning á mót- ið er í síma 456-7120 (Magnús). Mót- ið er í umsjá Taflfélags Bolungar- víkur. I ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆJrÆl Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 ■ sunnudaga kl. 16-22 Smo- auglýsingar ov 55050$$ JBT o STEYPUVIBRATORAR - Á ÍS7./\ IS/JJ/ / i I IH 40 Án. - Við bjóðum upp á allargerðir steypuvíbratora hvort sem um er að ræða fyrir hellugerð eða fyrir stórframkvæmdir. á hreint frábæru verði. Verð frá aðeins kr.>72My’Kjstaðgreitt! Leitið upplýsinga Þ.ÞORGRÍMSSON & CO -* ÁRMÚLI 29 108 RVK SlMAR: 553-8640 8.568-6100 KaWenMj Uði í tekxtefms ? Kalodernia!, *fme- . Hand- og naglakrem fyrir normal húð Handsápa með pumpu Andlitskrem með Aloe Vera fyrir normal húð Body Lotion (húðkrem) fyrir normal húð Body Milk (húðmjólk) fyrir þurra húð Handgel fyrir þurra húð Andlitskrem fyrir þurra húð HUÐSNYRTIVORUR frá Schwarzk^f Ofnæmisprófaðar Umhverf isvænar • pH gildi hlutlaust Umboðsaðili Schwarzkopf á íslandi p B. tetuissön etur ]if Suðurgötu 14 • S: 552 1020 i.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.