Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Qupperneq 27
JDV LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 ísland --------—plötur og diskar— 1 It 1. ( 1 ) Pottþétt 4 Ýmsir | 2. ( 2 ) Load Metallica t 3. ( 3 ) The Score Fugees t 4. ( 9 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette t 5. (10) Trainspotting Ýmsir t 6. ( 6 ) Paranoid and Sunburnd Skunk Anansie t 7. ( 5 ) Oider George Michael t 8. ( - ) Stone Free Leikrit t 9. (11) Glinggló Björk og Tríó Guðmundar Ingólfss. 110. (13) íslandslög 3 Ýmsir 111. (- ) Sumar nætur Stjórnin 112. (- ) Reif í botn Ýmsir 4 13. ( 7 ) Post Björk 114. (-) Óskalög sjómanna Ýmsir 115. (16) A Different Class Pulp 116. (12) Rokkveisla aldarinnar Ýmsir 117. (- ) í berjamó Reggae on lce 118. (- ) Falling Into You Celine Dion 119. ( 8 ) Ástfangnir Sixties 120. (- ) Down on the Upside Soundgarden London t 1.(2) Three Lions Baddiel & Skinner | 2. (1 ) Killing Me Softly Fugees t 3. ( 3 ) Mysterious Girl Peter Andre Featuring Bubble R.... t 4. (- ) Tattiva Kula Shaker t 5. ( 5 ) Because You Loved Me Celine Dion t 6. (— ) Oh Yeah Ash and Keith Allen t 7. (- ) Jazz it Up Real 2 Real f 8. ( 7 ) Don'tStop Movin' Livin' Joy t 9. (- ) Where Love Lives (Ramix) Alison Limerick 4 10. ( 4 ) Always Be My Baby Mariah Carey NewYork ^ - -lög- t 1. (1 ) The Crossroads Bone Thugs-N-Harmony t 2. ( 2 ) You're Makin' Me High/Let It Flow Toni Braxton t 3. ( 4 ) How Do U Want/California Love 2Pac (Featuring Kc and Jojo) 14 4. ( 3 ) Give Me One Reason Tracy Chapman t 5. ( 8 ) Macarena Los Del Rio It 6. ( - ) Always by My Baby Mariah Carey t 7. (- ) Because You Loved Me Celine Dion 4 8. ( 7 ) Theme From Mission Impossible Adam Clayton & Larry Mullen t 9. (- ) Why I Love You So Much/Ain't N.. Monica 4 10. ( 9 ) Nobody Knows The Tony Rich Project Bretland -plöturogdiskar---- t 1. ( - ) Recurring Dream Crowded house 4 2. ( 1 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette I4 3. ( 2 ) Mosely Shoals Ocean Colour Scene t 4. ( 6 ) Falling into You Celine Dion 4 5. ( 4 ) The Score Fugees 4 6. ( 5 ) Older George Michael t 7. (-)Naked Louise 4 8. ( 3 ) Till I Die Bryan Adams 4 9. ( 8 ) Ocean Drive Robert Miles t 10. ( -) The Smurfs Go Pop The Smurfs Bandaríkin — plötur og diskar— J 1. (1 ) Load Metallica J 2. ( - ) New Toni Braxton 4 3. ( 2 ) The Score Fugees 4 4. ( 3 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette 4 5. ( 4 ) Falling into You Celine Dion 4 6. ( 5 ) New Beginning Tracy Chapman J 7. ( 7 ) 1999 Eternal Bone Thugs-N-Harmony t 8. (11) Soundtrack The Nutty Professor 4 9. ( 8 ) Hootie And the Blowfish Fairweáther Johnson 410. ( 9 ) Crash Dave Matthews Band Nigel Kenneay - snýr sér að því að hljóðrita eigin tónlist Nigel Kennedy hefur gerbreytt um stíl og fæst nú í fyrsta sinn við eigin tón- list á plötunni Kafka. Platan Kafka hefur að geyma ell- efu lög sem meistarinn segir að byggist á keltneskum grunni. Daginn sem við íslendingar fógn- uðum því að 52 ár eru liðin síðan þjóðin öðlaðist sjálfstæði sendi breski fiðlusnillingurinn Nigel Kennedy frá sér sína fyrstu plötu með eigin tónsmíðum. Platan nefn- ist Kafka og er sú fyrsta sem kemur út frá meistaranum í fjögur ár. Og hann lætur sér ekki nægja að spila á fiðlu að þessu sinni heldur grípur hann einnig í víólu, selló, saxófón, píanó og mandólín. Nigel Kennedy hefur hingað til getið sér afar gott orð fyrir túlkun sína á verkum gömlu meistaranna. Plata hans með Árstiðunum eftir Vivaldi, sem út kom seint á síðasta áratug, hefur slegið öll met í sölu klassískra platna. Eftir að hún kom út sendi hann frá sér tvær til við- bótar, með verkum Brahms og Beet- hovens, en síðan kom fjögurra ára hlé. „Mér fannst ég hafa náð hátindin- um í túlkun klassískrar tónlistar og hvenær á maður að snúa sér að ein- hverju öðru ef ekki á hátindinum?" segir Kennedy. „Ég hef alltaf haft þörf fyrir að skapa mína eigin tón- list. Mér fannst vera búið að setja mig á einhvern afmarkaðan hás og það fannst mér hamla tónlistarlegri þróun minni. Ég ákvað því að snúa mér að öðrum hugðarefnum." Dauði tíminn á tónlistarferli Kennedys kom meðal annars til vegna þess að hann varð að gangast undir aðgerð á hálsi. „Það atvik gaf mér kærkomið tækifæri til að stíga út úr frægðarfarinu sem mér fannst ég vera fastur í og hugleiða í ró og næði hvað mig langaði til að gera,“ segir listamaðurinn. „Ég hefði svo sem getað farið að framleiða ein- hvers konar listapopp. En ég hef aldrei leikið tónlist í því augnamiði að hún slægi í gegn. Fyrst hef ég spilað og haft svo áhyggjur af því eftir á hvort einhver vildi hlusta á hana. Ég held ekki að tónlistin komi að neinu gagni nema einhver vilji hlusta á hana. Það er álíka og að uppgötva afbragðs veitingahús og segja engum frá því hvilíkir eðal- réttir séu á matseðlinum." Hendrix-áhrifin Þegar Nigel Kennedy kom hingað til lands á Listahátíð fyrir nokkrum árum var ferill hans á tímamótum. Hann hafði þá orð á því að hann langaði til að spila tónlist Jimis Hendrix i framtíðinni. „Kafka varð til upp úr þessum Hendrix-pælingum," segir hann. „Það voru hins vegar alls konar leiðindi i gangi í tengslum við erf- ingja Hendrix. Endalaust rifrildi og fullt af fólki sem sagði að það væri erfingjar hans. Mér sýndist því að ef ég gerði plötu með lögum Hendrix kæmist hún aldrei í búðarhillurnar vegna deilna og lögfræðinga og þess háttar vesens. Kannski er ein ástæða þess að mig langaði til að gera plötu með Hendrixmúsík sú að þótt ég hafi haft það í huga í ein tíu ár að gera plötu eftir mínu eigin höfði skorti mig sjálfstraust til að hijóðrita eigin lagasmíðar," bætir Nigel Kennedy við. „Á endanum ákvað ég þó að láta Hendrix róa í bili og snúa mér að öðru. Ég get snúið mér að tónlist- inni hans aftur þegar ég verð átt- ræður því að Jimi er sígildur laga- höfundur rétt eins og Bach og þeir hinir.“ Fjöldi samstarfsmanna Nigel Kennedy segist hafa ákaf- lega gaman af keltneskri tónlist. Músíkin hans á Kafka hljómar óhefðbundin en Kennedy telur að bakgrunnur hennar sé samt kelt- neskur. Hann fékk David Bottrill til að stýra upptökum plötunnar með sér. Og síðan flutti hann nánast inn í Rockfield hljóðverið í Monmouth í fjóra mánuði og vann sleitulaust að plötunni. Fjöldi tónlistarmanna kom við sögu. Fyrst skal frægan telja Manu Katché sem hefur meðal annars unnið með Sting og Peter Gabriel. Kennedy neitaði að kalla til menn sem höfðu unnið sér það helst til frægðar að vinna með frægum tónlistarmönnum en gerði undan- tekningu með Katché. Úr sinni eigin hljómsveit valdi Nigel Kennedy gítarleikarana Doug Boyle og John Etheridge og Rory McFarlane kontrabassaleikara. Aðr- ir sem koma við sögu eru Pino Palladino og Danny Thompson (bassar), Stephane Grappelli (fiðl- ur), David Heath (flauta), Nana Vasconcelos (ásláttur) og söngvar- amir Stephen Duffy, Jan Siberry, David Roscarrick-Wholey og Brix E. Smith. Fleiri listamenn leggja Nigel Kennedy lið á plötunni, þeirra á meðal gamla poppgoðið Donovan. Kennedy segist ekki vera hættur að hljóðrita sígilda tónlist þótt hann sé farinn að fást við sína eigin. „Mig langar til að skapa minn eigin tón- listarheim sem ég get unnið í,“ seg- ir hann. „Sígild plata öðru hverju, síðan ein eins og þessi eða þá að ég fer og spila spunatónlist einhvers staðar. Ég vil bara ekki að neinn ýti á eftir mér. Eðlisávísunin á að fá að ráða því við hvað ég fæst næst.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.