Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1996, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 sviðsljóé 45 andi Pamelu fyrir að hafa svikið munnlegan samning fyrir um þrem- ur árum. Ákæran hljóðaði upp á fimm milljónir dollara. „Ég veit ekki hvað ég á að þora að segja mikið um þessa ákæru þvi málið er enn fyrir rétti. í stuttu máli þá las ég kvikmyndahandrit fyrir þremur árum og sagðist hugs- anlega geta leikið í myndinni. Ég dró það síðan til baka því ég var upptekin í öðrum verkefnum. Myndin var framleidd og gekk víst ekki vel og núna vill framleiöand- inn meina að ég hafi lofað honum hinu og þessu og slæmt gengi mynd- arinnar sé mér að kenna. Það eru svo margir sem reyna að svíkja þig og græða á þér á allan hugsanlegan máta. Hvers kyns ákærur eru þjóðaríþrótt Bandaríkjanna og ekk- ert skrýtið því hér eru helmingi fleiri lögfræðingar en í öllum öðrum löndum heimsins samanlagt. Þegar ég kom fyrst til Bandaríkjanna frá Kanada þá var ég alveg ein og eigin- lega enginn sem hugsaði um mig. Ég var mjög óreynd og saklaus i við- skiptum og það er hreint ótrúlegt hvað margir hafa svikið mig og stolið peningum frá mér, sérstak- lega þessi fyrstu ár.“ Pamela nefnir til sögunnar óheið- arlega lögfræðinga, umboðsmenn og bókhaldara sem gerðu samninga án hennar vitundar og sýsluðu með hennar peninga á meðan hún vann átján tíma í sólarhring og hafði ekki neinn tíma til að hugsa um fjármál- in. Hún segir að meira að segja Pía- yboy hafi notfært sér reynsluleysi hennar í viðskiptum. Treysti fólki „Það er ekkert leyndarmál að ég fékk ekki borgaða krónu fyrir myndbandið sem Playboy gerði með mér og var í fyrsta sæti i sölu í ein- ar 15 vikur. Þetta er að mínu mati ósanngjarnt, ekki svo að skilja að ég sé svakalega peningagráðug heldur finnst mér bara að ég eigi rétt á að fá alla vega einhverja sanngjarna þóknun fyrir. Ég treysti því bara í sakleysi mínu að fólk væri heiðar- legra í viskiptum en hef þurft að læra af reynslunni að það er langt í frá.“ Pamela er eðlilega mjög spennt að eignast barnið og segist ekki geta beðið eftir að geta tekið það með í tónleikaferðalag með Tommy Lee og Motley Crue. Þau hjón ætla að leigja stóra rútu með leikherbergi fyrir barnið og öðrum nútíma þægindum og ferðast síðan með hljómsveitinni um Bandaríkin. Páll Grímsson Pamela segist vera mjög ánægð með BarbWire. Hún sé gerð í teikni- myndasögustíl þannig að litimir séu sérstakir. Kvikmyndatakan sé hröð og klippingar mjög snöggar, svolítið eins og á tónlistarmynd- bandi. Bardagasenurnar og tækni- brellurnar séu líka mjög flottar. Hún telur að það hafi heppnast mjög vel að gera nútímalega og spennandi afþreyingarmynd. Kven- hetjur séu ekki mjög algengar í kvikmyndum þannig að nú komi í ljós hvort fólk sé tilbúið að meðtaka kvenhetju sem stenst öllum karl- mönnum snúning. - Ef þú eignast stelpu og hún seg- ir þér einn daginn að hún ætli að sitja fyrir hjá Playboy, heldur þú að þú munir samþykkja það? „Já, ég er viss um að ég mundi standa með henni í því ef hún hefði áhuga á því að sitja fyrir. Playboy tímaritið og eigandinn Hugh Hefner hafa hjálpað mér mikið og ég væri ekki stödd þar sem ég er í dag nema fyrir þeirra hjálp. Tímaritið útveg- Mikið er af bardagasenum og hasar í BarbWire, klippingar eru hraðar og myndin er öll í teiknimyndastíl. Óvenjulegt er að sjá Pamelu í þessum stellingum. Pamela hefur vakið athygli karlmanna um heim allan fyrir kynþokka sinn sem þó er ekki náttúrulegur nema að hluta til heldur búinn til með aðgerðum lækna. Pamela er þekktust fyrir dúkkuleik sinn í sjónvarpsþáttunum Strandverðir þar sem hún hefur verið óspör á að sýna líkamann. Hér glittir líka í vörumerki hennar. kynnst. Það má vel vera að á yfir- borðinu líti hann ekki út fyrir að vera ljúfur en það hefur auðvitað ekkert með það að gera hvernig manneskja hann er. Mér flnnst það einmitt vera mjög skemmtileg sam- setning að hann er harður rokkari á yfirborðinu en viðkvæmur, rómant- ískur og ljúfur sem lamb undir niðri. Ég eyðilegg örugglega ímynd- ina og feril hans sem rokkara með því að segja þetta en þetta er alveg dagsatt." Pamela elskar rólur og segir að hún hljóti að hafa verið api í fyrra lífi. Þegar hún var krakki dreymdi hana að vinna sem loftfimleikakona í sirkus. Þau hjónin keyptu stóra rólu og hengdu hana upp fyrir ofan flygilinn í stofunni. „Flygillinn er sérhannaður fyrir Tommy með eftirlíkingar af öllum tattóveringunum hans á hliðunum," segir Pamela. „Og lappirnar eru úr járni sem er beygt á ákveðinn hátt. Hann er mjög goðsagnakenndur í útliti. Fyrir ofan flygilinn hangir rólan mín og ég er vön að sitja nak- in í henni og róla mér fram og til baka á meðan Tommy spilar á flygilinn og semur ný lög. Tommy segir að þetta hjálpi honum við að semja lög, sé eins konar vítamín- sprauta fyrir sköpunargáfuna." aði mér atvinnuleyfi í Bandarikjun- um og það hefur verið mjög ánægju- leg lífsreynsla að vinna fyrir Play- boy. Fæstir vita að ég hef bara setiö fyrir hjá þeim nokkrum sinnum en tímaritið hefur síðan verið að birta gamlar myndir sem voru teknar um leið og fyrstu forsíðumyndirnar sem það birti af mér. Ég er alltaf svolítið hissa en jafnframt montin þegar Playboy birtir myndir af mér. Les- endur hljóta að vera orðnir ansi þreyttir á að sjá mig aftur og aftur, það er kominn tími á að skipta mér út fyrir einhverja aðra fyrirsætu." Pamela segir að fólk hafi miklar ranghugmyndir um hvernig það er að vera heimsfrægur. Frægðin hafl í för með sér marga galla sem ef- laust margir gætu ekki hugsað sér að eiga við. Aðdáendur hafa reynt að brjótast inn til hennar, sent hót- unarbréf og gert símaat. Henni er líka tiðrætt um ljósmyndara sem sitja fyrir henn hvert sem hún fer og oft stökkvi þeir út úr runnum og þeir séu ófáir innkaupapokarnir sem hún hafi misst úr höndunum því henni hafi brugðið svo mikið. Tommy er sterkur „Eg er viss um að einn daginn á ég eftir að sparka einhvem niður í misgripum fyrir ræningja eða eitt- hvað álíka. Samkvæmt lögum þá mega þessir ljósmyndarar. stunda sína vinnu á þennan hátt af því að þeir eru með myndavélar um háls- inn. Án hennar væru þeir að brjóta lög og ég gæti kært þá fyrir ofsókn- ir. Ég er alveg hætt að fara út alein, annað hvort eru lífverðir með mér eða þá að við Tommy erum saman. Ég er mjög örugg með Tommy við hliðina á mér því hann er sterkur og hikar ekki við að berja frá sér. Það liggur við að ég þurfi að ráða einhvern til að passa að Tommy lemji ekki einhvern í köku. Þetta eru aðeins nokkrir hlutir sem eru óhjákvæmilegir fylgifiskar frægðar- innar. Maður á nákvæmlega ekkert einkalíf lengur og það er mjög erfitt að lifa þannig lífi og'læra að sætta sig við þá staðreynd.“ Eftir að Tommy Lee og Pamela giftu sig hefur sögunum í fjölmiðl- um fjölgað um allan helming. Pamela segist ekki vita af hverju kjaftasögurnar eru svona margar en segir að þau sé bæði mjög opin og hreinskilin og reyni ekki að fara leynt með hvað þeim finnst um þjóðfélagið í heild eða persónulega hluti sem tlestir haldi leyndum. Ný- lega lögsótti kvikmyndaframleið- Ánægð með BarbWire

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.