Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 Jj\T 2 fréttir Foreldrar og dóttir stefndu Mosfellsbæ til greiðslu skaðabóta: Fá bætur vegna aðgerða barnaverndarnefndar - stúlkan tekin af heimili og vistuð á Unglingaheimili ríkisins: Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdj í gær bæjarsjóð Mosfellsbæj- ar til áð greiða foreldrum og dóttur þeirra á aðra milljón króna í miska- bætur vegna ákvöröunar barna- vemdarnefndar þar í bæ um að vista stúlkuna tímabundið á Ung- lingaheimili ríkisins gegn vilja þeirra. Háustið 1992 kom í Ijós að um- rædd stúlka hafði orðið fyrir kyn- ferðislegri misnotkun af hálfu bróð- ur síns. í ársbyrjun 1993 hófust síð- an afskipti bamaverndaryfirvalda af málefnum hennar. Hún sætti síð- áú ýmsum rannsóknum, meðal ann- ars á sjúkrahúsi. í lok október sama ár kvað barnavemdamefnd Mos- fellsbæjar síðan upp úrskurð þess efnis að hún teldi að stúlkan þyrfti að dvelja á Unglingaheimilinu m.a. til að „vemda hana fyrir árásum eða kynferðisáreiti annarra". Einnig átti að rannsaka geðheilsu hennar og samskipti við aðra fjöskyldumeðlimi. Ákveðið var að heimsóknir fjölskyldu hennar skyldu mjög takmarkaðar. Þessu mótmælti lögmaður fyrir hönd foreldranna en stúlkan var vi- stuð á Unglingaheimilinu. í byrjun desember kvað nefndin upp annan úrskurð - stúlkan skyldi áfram vi- stuð á stofnuninni. Foreldrarnir kærðu úrskurðinn til Barnavernd- arráðs íslands. Unglingaheimilinu líkt viö gæsluvarðhald í skýrslu sálfræðings Bama- vemdarráðsins kom síðan eftirfar- andi fram: ... „vistun stúlkunnar hafi orðið til að auka henni vanlíð- an, depurð og kvíða fremur en að vera sá stuðningur og umhyggja sem hún vissulega þmfi. Tuttugu og þriggja klukkustunda eftirlit i vist- un á sólarhring sé frelsistakmörkun sem líkist gæsluvarðhaldi. Stúlkan upplifl tveggja mánaða dvöl og inni- lokun sem refsingu og eingangrun fyrir það að hafa opnað sig um sifja- spellið". Barnaverndarnefnd kvað upp þriðja úrskurðinn þann 11. janúar 1994 - stúlkan skyldi vistuð á Bam- aspítala Hringsins til 25. janúar. Sex dögum síðar kvað Barnaverndarráð hins vegar upp úrskurð sem kvað á um að stúlkan skyldi fara heim til foreldra sinna. í kjölfar þessa kröfðust foreldrar skaða- og miskabóta úr hendi bæjar- sjóðs Mosfellsbæjar en því var hafn- að. Var málinu síðan stefnt fyrir héraðsdóm. í stefnu segir að bama- verndarnefndin hafi með ólögmæt- um hætti og stórfelldu gáleysi vald- ið stúlkunni og fjölskyldu hennar stórfelldúm þjáningum, miska og fjárhagslegu tjóni sem bæri að bæta þeim. Vægasta úrræöiö skal notað I niðurstöðu dómsins i gær vísar héraðsdómur til þess að nefndinni hefði borið að rökstyðja sérstaklega þá fullyrðingu sína að stúlkunni væri ekki borgið á heimili sínu. Nefndin hefði t.a.m. haft það úrræði Stefán Geir Karlsson myndlistarmaður heldur hér á módeli af einhyrningshorninu og fyrir aftan hann er Birgir Vign- isson rennismiður. Hann fræsar rekaviðardrumbinn til svo Stefán geti farið að vinna við hann meö höndunum. DV-mynd BG Húsavíkurbær selur eignarhlut í Fiskiöjusamlaginu: Getur orðið bana- biti meirihlutans - segir bæjarstjórinn - þá það, segir Alþýöubandalagið Rekaviðardrumbur: Verður sólúr á Hornafirði „Ég frétti af þessum sex metra langa og eins metra þykka drumb í Hornafírði og þegar ég falaðist eftir því að fá að smíða úr honum vildu menn ekki láta hann nema fá hann til baka. Eftir nokkuð langa hug- myndavinnu varð úr að ég smíðaði einhymingshorn sem Hornfirðingar ætla að nota sem sólúr,“ segir Stef- án Geir Karlsson myndlistarmaður sem smíðað hefur stærstu blokk- flautu í heimi og stærsta herðatré heims og enn fremur risa dómara- flautu sem smíðuð var í tengslum við HM hér á landi á síðasta ári. DV hitti Stefán að máli í Stál- smiðjunni þar sem Birgir Vignisson rennismiður var að fræsa drumbinn til í stórum dráttum. Stef- án tekur síðan við honum þegar búið er að taka það mesta og vinnur síðan afganginn í höndunum. En af hverju einhymingshom? „Lögunin á drumbnum og nafn Homaijarðar gefur tilefni til þess að gera horn og einhyrningurinn er eitt af elstu táknmyndum í listasög- unni. Hann táknar hreinleika," seg- ir Stefán. Hann segir verkefnið tengjast því að Hornafjarðarbær verður 100 ára á næsta ári og þá ætlar hann að vera búinn með verkið. Það verður 5,5 metra hátt, 70 sentímetrar þar sem það er sverast neðst og mjókk- ar í 20 sentímetra efst. Stefán er plötu- og ketilsmiður og skipatæknifræðingur og segist því geta smíðað bæði úr járni og tré. Hann segist, aðspurður um önnur verkefni af þessum toga, vera búinn að smíða módel að tónkvísl og von- andi verði ekki langt að bíða þess að risatónkvísl verði tilbúin, tónkvísl sem gefi frá sér eðlilegan tón. , -sv „Það verða sjálfsagt einhver átök um þessa sölu.ég hef trú á því,“ seg- ir Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, um fyrirhugaða sölu Húsavíkurbæjar á 13% af eignar- hlut sínum í Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur. Bærinn er meirihlutaeigandi í fyrirtækinu en verið er að sameina útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækin í bænum undir nafni Fiskiðjusam- lagsins. Eignarhlutur bæjarins er 54% og hefur stjórn Fiskiðjusam- lagsins óskað eftir því að kaupa 13% af þeim hlut þannig að bærinn verði ekki meirihlutaeigandi í fyrir- tækinu. Fyrirtækið viU kaupa hlutabréfin á genginu 1,71 og yröi söluverðið á bilinu 115-120 milljónir króna. Framsóknarmenn í meirihluta bæjarstjórnar vilja selja hluta bréf- anna í FH en Kristján Ásgeirsson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins, er á öðru máli og einnig telur hann verð bréfanna stórlega vanmetið. En getur þetta sett meirihlutasam- starfið í bænum í hættu? „Já, þetta getur vel orðið banabiti meirihlutans. Framsóknarmenn vilja selja, telja að það sé spursmál um hvort tekst að efla fyrirtækið og koma þvi á markaö. Það er talið skilyrði að sveitarfélagið sé ekki meirihlutaeigandi i fyrirtækinu eigi það dæmi að ganga upp. Þetta er ná- kvæmlega það sama og hefur verið að gerast hjá bæjarstjórn Akureyrar gagnvart ÚA,“ segir Einar Njálsson bæjarstjóri. „Mér finnst furðulegt að menn skuli búa sér til gengi sem ekki er í samræmi við tillögur sem munu liggja fyrir hluthafafund um skipt- ingu gengis í hvoru fyrirtæki fyrir sig,“ segir Kristján Ásgeirsson og á þá við félögin Fiskiðjusamlag Húsa- víkur og Höfða sem verið er að sam- eina undir nafni Fiskiðjusamlags- ins. „Ég er á móti þvi að fólkið fái ekki að eiga það sem það á og að það eigi ekki að selja .á réttu gengi en gefa hluthöfum svo og svo marg- ar milljónir. Það á að selja á geng- inu 1,71 en ég tel gengið 3 miklu réttara og þá geta menn reiknað það út,“ segir Kristján en þarna myndi muna um 80 milljónum króna. „Ef þetta kostar að meiri- hlutinn fer þá bara fer það þannig. Fólkið á þetta og fyrir það er ég að vinna en þeir e.t.v. bara fyrir Fram- sóknarflokkinn," segir Kristján Ás- geirsson. .g^ Þú getur svarað þessari - _ spurningu meö því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já Q Nei <21 : p rödd FOLKSINS 904 1600 Hafa konur nægileg völd í Sjálfstæðisflokknum? að vísa umræddum bróður af heim- ilinu - ef nefndin teldi hann dvelja þar. Einnig var vísað til þess að meðalhófsregla í stjórnsýslu tak- marki vald stjórnvalds á beitingu úrræða til að ná fram markmiðum sínum - meðal annars með því að gera þá kröfu að þegar fleiri en eins úrræðis sé völ skuli velja það úr- ræði sem vægast er. Bæjarsjóður Mosfellsbæjar er dæmdur til að greiða stúlkunni hálfa milljón króna í miskabætur en foreldrunum 300 þúsund krónur. Mosfellsbær er jafnframt dæmdur til að greiða fjölskyldunni 450 þús- und krónur í málskostnað. -Ótt ; stuttar fréttir I ] Inn í hvalaráðið Davíð Oddsson sagði á lands- | fundi Sjálfstæöisflokksins í gær j að til þess að íslendingar gætu hafið hvalveiðar að nýju þyrftu þeir að ganga aftur I Alþjóða S hvalveiðiráðið. | Hofuðandstæðingar Jón Baldvin Hannibalsson segir að með ræðu sinni á lands- fundi Sjálfstæöisflokksins hafi Davíð Oddsson stillt jafnaðar- mönnum upp sem höfuðand- stæðingum flokksins. Gulskríkja í kirkjugarði Ný fuglategund, sú 335., bætt- i ist við íslenska fuglalistann um ii síðustu helgi. Samkvæmt RÚV | sást til gulskríkju við kirkju- | garð í Nesjum við Hornafjörð. - Gulskríkja er smávaxinn, amer- | ískur spörfugl. Norðansóngvari einnig Þá greindi RÚV frá því að fugl- inn norðansöngvari sást nýlega í ; kh'kjugarðinum á Selfossi. Mikið hefur borið á sjaldséðum fuglum I hér á landi vegna sterki'a vinda, : s.s. kampasöngvara, síkjasöngv- | ara og spésöngvara. Kaupmáttarkröfur ! Raíiðnaðarmenn hafa sett fram kröfu um að kaupmáttur á . næsta samningstíma aukist um Í3_5% á ári. Kröfugerðin var samþykkt á miðstjórnarfundi í gær, að sögn RÚV. Hækkandi síldarbréf Hlutabréf Síldarvinnslunnar halda áfram að hækka í verði. Gengi bréfanna var í gær komið tt í 12,00 eftir að 10 milljóna við- | skipti höfðu farið fram með Ibréfin. Niður Aldeyjarfoss Breskur ofurhugi fór nýlega niður Aldeyjarfoss í Skjálfanda- fljóti á kajak. Samkvæmt RÚV er fallhæð fossins um 20 metrar. Verkfall í annað sinn Dagsbrúnarmenn hjá Mjólk- I ursamsölunni og Emmess-ís Ílögðu niður vinnu í gærmorgun í annað sinn á tveimur vikum. Naglana undir Fljúgandi hálka var á vegum norðanlands og austan í gær. Nokkur minni háttar óhöpp urðu í umferðinni og hvetur lög- | reglan bifreiðaeigendur til að | setja vetrardekk undir vélfáka ■ sina. -bjb linniiiiii—iii ii ii .nr'rmr'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.