Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Page 4
4
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 JjV
Eigendur Stöövar 3 berjast fyrir lífi hennar:
Rekstrarstöðvun náist
nauðasamningar ekki
- bjartsýnn á að dæmið gangi upp, segir Gunnar M. Hansson stjórnarformaður
„Skilyrði nýrra fjárfesta er að
okkur takist að lækka skuldastöð-
una. Eina leiðin til þess er að fara í
nauðasamninga. Ég er bjartsýnn á
að dæmið gangi upp en ef það gerist
ekki þá blasir ekkert annað við en
greiðsluþrot. Auðvitað er þetta önn-
ur staða en við hefðum kosiö. Við
verðum að geta tekið áföllum, bitið
á jaxlinn og haldið ótrauðir áfram,“
sagði Gunnar M. Hansson, stjórnar-
formaður íslensks sjónvarps hf. sem
rekur Stöð 3, í samtali við DV.
Eigendur stöðvarinnar berjast
fyrir lífi hennar og hafa boðið
stærstu lánadrottnum greiðslu upp í
35% af almennum kröfum. Söfnun
nýs hlutafjár hefur ekki gengið sem
skyldi og því ákvað stjóm íslensks
sjónvarps að fara þessa leið.
Skuldir nálgast hálfan millj-
arð króna
Gunnar vildi ekki upplýsa hverj-
ar skuldir stöðvarinnar væru en
samkvæmt heimildum DV nálgast
þær hálfan milljarð króna. Sem
kunnugt er hafa tæknileg vandamál
með myndlykla komið í veg fyrir
tekjur af áskrift og hefur Stöð 3 ver-
ið að tapa hátt í 40 milljónum króna
á mánuði.
Hluthafar hafa samþykkt að færa
niður hlutafé um 60%, eða úr 250 í
100 milljónir króna, svo nauðasamn-
Húsnæði Stöðvar 3 í Húsi verslunarinnar. Forráðamenn fyrirtækisins róa Irfróður og hafa ákveðið að leita heimilda
til nauðasamninga við kröfuhafa. Skuldir Stöðvar 3 nálgast hálfan milljarð króna. DV-mynd BG
ingar takist. Stærstu hluthafar eru
Gunnar Jóhannsson í Holtabúinu,
Ámi Samúelsson, Árvakur, Nýheiji
og Japis. Flestir þessara aðila hafa
ákveðið að auka hlutféð í Stöð 3.
Aðspurður sagði Gunnar að Sjó-
vá- Almennar og Eimskip væru
meðal þeirra aðila sem væra enn að
íhuga kaup á hlutafé í stööinni en
hann vildi ekki greina frá öðram
fjárfestum.
Um stærstu kröfuhafa vildi
Gunnar ekki upplýsa. Enginn
þeirra væri með stóra kröfu, hér
væru á ferðinni fjölmargir aðilar
sem hefðu komið að rekstrinum
með einu eða öðra móti.
Gunnar sagði að áform um nýtt
myndlyklakerfi frá evrópskum
framleiðenda væra óbreytt. Stefnt
væri að því að taka það í notkun í
nóvember, þó ekki 1. nóvember eins
og áætlað var í fyrstu vegna nauða-
samninganna.
Aðspurður sagði Gunnar það
aldrei hafa komið til greina að fara
með fyrirtækið í gjaldþrot. Þá hefði
enginn fengið neitt upp í kröfur og
menn þurft að bjnja upp á nýtt.
„Við erum að reyna að gera þetta
sem sársaukaminnst fyrir sem
flesta. Nauðasamningaleiðin er far-
sælust. Þá njóta allir kröfuhafar
sama réttar,“ sagði Gunnar M.
Hansson. -bjb
Rót gossins í Vatnajökli:
Rakin til megineldstöðvar
- efnagreining sýnir tengsl við Bárðarbungueldstöðina
„Efnagreining á ösku úr gosinu í
Vatnajökli, sem fram fór hjá Nor-
rænu eldflal'astöðinni, sýnir að gos-
ið á ættir að rekja til Bárðarbungu.
„Það er fleira sem bendir til að þetta
sé fremur skylt Bárðarbungueld-
stöðinni en Grímsvötnum," segir
Guðmundur E. Sigvaldason, for-
stöðumaður Norrænu eldfjallastöðv-
arinnar.
Guðmundur segir að efnagrein-
ingin bendi til þess að eldstöðin
tengist kvikukerfi Bárðarbungueld-
stöðvarinnar sem er megineldstöð,
en kvikan, sem komið hefur upp í
gosinu nú, hafl náð að malla lengi
undir yfirborðinu áður en hún
braust fram. Á þessum langa tíma
hafi hún náð að kristallast auk þess
sem efnasamsetning hennar hafi
einnig breyst allverulega frá því
sem er í Bárðarbungukvikunni.
Guðmundur segir að þó að þessi
tengsl eldstöðvanna og Bárðar-
bungu hafi verið staðfest telji hann
ekki ástæðu til að óttast stórgos í
Bárðarbungu. Gosið nú sé rénandi
og búast megi við að það lognist út
af.
Spurður um ástæður þess að
Grímsvatnahlaup láti á sér standa
segir Guðmundur að ástæða sé til
að leggja eyrvm við því sem íbúar
Öræfanna hafa sagt um hlaup úr
vötnunum og hvernig jökullinn hafi
breyst, bæði lyfst og þanist út í að-
dragandanum. „Þetta era menn sem
_ hafa lifað með þessu og era engir
glannar," segir Guðmundur E. Sig-
valdason. -SÁ
Vatnajökull sléttur og felldur:
Ekkert bólar
á hlaupi
- ómögulegt aö segja hvenær þess er von
„Þaö bólar ekkert á hlaupi úr
Grímsvötnum," sagði Oddur Sig-
urðsson, jarðfræðingur hjá Orku-
stofnun, við DV í gær, nýkominn
ofan af Vatnajökli.
„Viö komumst ekki nema upp í
rætur Grímsfjalls en urðum frá að
hverfa vegna mikils hvassviðris,
auk þess sem mjög skýjað var
þannig að ekki sást yfir vötnin.
Að öðru leyti var allt slétt og fellt
á jöklinum alla leiðina upp eftir
og enga missmíð á honum að sjá,“
sagði Oddur.
Oddur segir engan vafa leika á
aö vatnið muni hlaupa fyrr eöa
síðar, spurningin sé bara hvenær,
en því ráði án efa fjöldamargir
þættir sem séu alls ekki þekktir.
Þess vegna sé illmögulegt að segja
fyrir um hvenær hlaup hefjist.