Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1996, Side 12
2 menning LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 DV Hallgrímur Sveinsson, staðarhaldari á Hrafnseyri: Gefur út bækur um „glampandi Jón" Líklega er það forvitni sem fær flesta ferðalanga til að koma við á Hrafnseyri við Arnarfjörð, þessu höfuðbóli og sögustað sem allir ís- lendingar tengja við sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar. Á Hrafnseyri er Hallgrímur Sveinsson staðarhaldari upptekinn við að sýna ferðafólki bæ Jóns Sigurðssonar sem verið er að endurbyggja. Auðheyrt er að þar er maður sem þekkir sögu Hrafhseyr- ar og sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn- ar. Hallgrímur hefur verið skóla- stjóri og bóndi í mörg ár en síðustu ár hefur hann fengist við skriftir og bókaútgáfu. „Ég hætti sem skólastjóri á Þing- eyri fyrir þremur árum og sneri mér í staðinn að bókaútgáfu. Útgáf- una kalla ég Vestfirska forlagið og er markmið hennar einkum að kynna sögu Jóns Sigurðssonar for- seta auk þess aö kynna þjóðlegan fróðleik og mannlíf hér fyrir vest- £m,“ sagði Hallgrímur. „Fyrsta bókin kom út árið 1994 og hét hún Jón Sigurðsson forseti - ævisaga í hnotskum. Þann 17. júní kom svo þessi bók út á ensku og dönsku og með fjölbreyttara mynda- vali en í bókunum eru alls hundrað ljósmyndir, þar á meðal flestar ljós- myndir sem til em af Jóni Sigurðs- syni. Er þetta í fyrsta skipti sem ævisaga Jóns er gefin út í bók á er- lendum málum fyrir utan danska þýðingu á verki Páls Eggerts Óla- sonar sem prentuð var í Kaup- mannahöfn í seinna stríðinu en hún mun nú vera í fárra höndum. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lands, skrifaði formála að báðum bókunum. Ef vel gengur er ætlunin að gefa bókina út á þýsku, frönsku og hinum Norðurlandamálunum," sagði Hallgrímur. Ekki sjálfgefið „Tilgangur minn með þessu er að rifja upp ævintýrið um Jón Sigurðs- son og koma því á framfæri. Eink- um þó að vekja athygli á þeirri bar- dagaaðferð sem hann notaði, að beita pennanum og sögulegum rök- um i stað byssunnar og sverðsins, en það eru því miður enn í dag al- gengustu vopnin í sjálfstæðisbar- áttu þjóða. Einnig og ekki síður að benda á hlut Dana. Þeir hlustuðu á „glampandi Jón“, eins og Benedikt Gröndal kallaði hann í kvæði, og báru fyrir honum mikla virðingu. Það var alls ekki sjálfgefið að Danir tækju mark á Jóni sem kominn var alla leið ofan af Vestfjörðum á ís- landi. En persónuleiki hans og yfir- burðaþekking varð þess valdandi að þeir gátu ekki annað. Á hitt ber einnig að líta að Jón Sigurðsson var ekki gallalaus fremur en aðrir dauð- legir menn en okkur íslendingum hættir til að setja hann upp á stall sem goðinborna veru og gleymum að fjalla um hann með kostum hans og göllum,“ sagði Hallgrimur enn fremur. Hann segir að bækurnar séu hannaðar með tilliti til gjafa og henti sem slíkar jafnt þjóðhöfðingj- um sem alþýðufólki. Safnar þjóðlegum fróðleik í sumar kom út bókin Mannlíf og saga í Þingeyrarhreppi á vegum Vestfirska forlagsins. Efni bókar- innar hefur Hallgrímur safnað og skrifar að stórum hluta sjálfur. Þama er á ferðinni 1. hefti í vænt- anlegri ritröð um þjóðlegan fróðleik gamlan og nýjan úr Þingeyrar- hreppi. Ekki er annað vitað en Vest- firska forlagið sé eina starfandi bókaforlagið í ísafjarðarbæ, frá Langanesi í Arnarfirði að Geirólfs- gnúpi á Ströndum. Á þessu svæði Hallgrímur Sveinsson með nokkrar af þeim bókum sem hann hefur gefið út undanfarið. DV-myndir Örn Þórarinsson eru einnig tvö önnur sveitarfélög, Bolungarvík og Súðavík. Hallgrímur og eiginkona hans, Guðrún Steinþórsdóttir, hafa ann- ast vörslu og umhirðu Hrafnseyrar síðan árið 1964 samkvæmt sérstök- um samningi við Hrafnseyrarnefnd. Á Hrafnseyri hafa þau alla tíð haft sauðfjárbúskap en dvalið á Þingeyri á vetuma og þá ráðið sér vetrarfólk til að sjá um búskapinn. Mikil aðsókn var að safni Jóns Sigurðssonar á staðnum í sumar og var hún meiri en í fyrra að sögn Hallgríms. Um safnvörslu annaðist Guðrún Þorgeirsdóttir sem undan- farin sumur. Þá hafa margir lagt leið sína á staðinn gagngert til að sjá fæðingarbæ Jóns Sigurðssonar sem Hrafnseyrarnefnd er að láta endurbyggja. -ÖÞ erlend bóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. laln Banks: Whlt. 2. Catherlne Cookson: The Obsesslon. 3 Bernard Cornwell: The Winter Klng. 4. Nicholas Evans: The Horse Whlsperer. 5. Stephen King: Coffey on the Mile. 6. Nick Hornby: Hlgh Fldelity. 7. Len Delghton: Hope 8. Patricla D. Cornwell: From Potter's Fleld. 9. Jostein Gaardei: Sophie's World. 10. Ken Follett: A Place Called Freedom. Rit almenns eðlis: 1. Bill Bryson: Notes from a Small Island. 2. Lorenzo Carcaterra: Sleepers. 3. Bill Watterson: There's Treasure Everywhere. 4 Danlel Goleman: Emotional Intelligence. 5. M. Cotterell & A. Gllbert: The Mayan Prophecles. 6. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 7. Paul Bruce: The Nemesis Rle. 8. Margaret Forster: Hldden Llves: A Famlly Memolr. 9. Susan Jeffers: Feel the Fear and Do It Anyway. 10. Chrls Ryan: The One That Got Away. | Innbundnar skáldsögur: 1. Dick Francls: To the Hilt. 2. Meave Binchy: Evenlng Class. 3. Frederlck Forsyth: lcon. 4. Ben Elton: Popcorn. 5. Stephen King: Desperation. Innbundin rit almenns eðlis: 1. Dave Sobel: Longitude. 2. R. Andrews & P. Schellenberger: The Tomb of God. 3. Humphrey Carpenter: Robert Runcie: The Reiuctant Archblskop. 4. Francis Gay: The Frlendshlp Book 1997. 5. Roy Strong: The Story of Brltain. (Byggt á Tho Sunday Times) Sex höfundar í leit Metsölukiljur Bandaríkin að Booker-verðlaunum í fyrra kom sænska akademían fáum á óvart með vali sínu á nóbels- verðlaunahafa í bókmenntum. Sér- fræðingar höfðu um nokkurra ára skeið talið líklegt að þessi eftirsótt- ustu verðlaun bókmenntanna myndu fljótlega falla írska ljóð- skáldinu Seamus Heaney í skaut. Með það í huga var nánast sjálfgef- ið að akademían notaði tækifærið í ár til að slá spámennina út af lag- inu, og það tókst henni bærilega með því að heiðra aldraða pólska skáldkonu, Wislawa Szymborska, sem nóbelsskáld ársins 1996. Kunn- ugir telja að hún sé vel að verðlaun- unum komin. En fleiri bókmenntaverðlaun hafa verið í sviðsljósinu síðustu dagana, að minnsta kosti í Bret- landi, en þar er október mánuður eftirsóttustu bókmenntaverðlauna í Bretlandi, Bookersins, sem gefa í aðra hönd á þriðju milljón króna og gjarnan að auki mikla sölu verð- launabókarinnar. Sex sögur Á dögunum tilkynnti dómnefnd hvaða sex skáldsögur kæmu til álita sem handhafi Bookerverðlaunanna að þessu sinni - en endanleg niður- staða verður tilkynnt við hátíðlega athöfn rétt fyrir mánaðamótin. Þær hafa verið valdar úr miklum fjölda skáldsagna sem samdar hafa verið á ensku, sumar af þekktum rithöfund- um. Þessir sex keppinautar um verð- launin eftirsóttu eru sem hér segir: Every Man for Himself eftir Beryl Bainbrigde. Last Orders eftir Gra- ham Swift. Alias Grace eftir Marg- aret Atwood. Reading in the Dark eftir Seamus Deane. The Orcbard Pólska skáldkonan Wislawa Szym- borska, nóbelskáld ársins 1996. Umsjón Elías Snæland Jónsson on Fire eftir Shena Mackay. A Fine Balance eftir Rohinton Mistry. Svo sem venja er i Bretlandi hafa veðbankar þegar dregið sínar álykt- anir og telja tvær þessara bóka lang- líklegastar til að sigra - þ.e. skáld- sögurnar eftir Bainbrigde og Swift. Skal því fjallað lítið eitt nánar um þau hér á eftir. Höfundur Waterland Graham Swift sem er faeddnr i London árið 1949, vakti nokkra at- hygli með fyrstu skáldsögum sínum (The Sweet Shop Owner, 1980, og Shuttlecock, 1981), en sló eftirminni- lega í gegn árið 1983 með Waterland sem er af mörgum talin sígild skáld- saga, og það víðar en í Bretlandi. En um leið varð hún sú mælistika sem gagnrýnendur miðuðu seinni skáld- sögur hans við og fundu léttvægar (Out of This World, 1988, og Ever af- ter, 1992). Með Last Orders virðist Swift loksins hafa rifið sig lausan frá þessum samanburði, enda fer hann þar út á nýjar brautir í stíl og efnis- tökum. Sagan segir í löngum ein- ræðum frá íjórum félögum í London. Þeir hittast á kránni sinni til að búa sig undir ferð til Margate, þar sem þeir hyggjast dreifa ösku nýlátins félaga síns í sjóinn. Um borðiTitanic Beryl Bainbrigde er af annarri kynslóð en Swift: 61 árs að aldri, fædd í Liverpool árið 1934. Hún hef- ur lifað viðburðaríka ævi, átt í stormasömum samböndum við karl- menn, sem oftar en ekki hafa farið illa með hana, og eignast þrjú börn. Bainbridge fór að senda frá sér skáldsögur um miðjan sjöunda ára- tuginn, um það leyti sem hún settist að í London, og hefur reyndar tvisvar áður verið tilnefnd til Booker-verðlauna með sama hætti og nú - en það var síðast fyrir meira en tveimur áratugmn. Every Man for Himself, skáldsag- an sem sumir telja að nú muni færa henni Bookerinn, var fimm ár í vinnslu. Þar segir frá hinni örlaga- ríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic Skáldsögur: 1. Stephen Klng: The Green Mile: Coffey on the Mlle. 2. V.C. Andrew: Melody. 3. Sldney Sheldon: Mornlng, Noon & Night. 4. Stephen King: The Green Mlle: Night Journey. 5. Mlchael Crictonl: The Lost World. 6. Sue Grafton: „L“ is for Lawless. 7. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 8. Olivia Goldsmith: The First Wives Club. 9. Tami Hoag: Cry Wolf. 10. Catherlne Coulter: The Helr. 11. Nancy Taylor Rosenberg: Trial by Flre. 12. Stephen Klng: The Green Mlle: Two Dead Girls. 13. Stephen King: The Green Mlle: The Bad Death of Eduard Delacrolz. 14. Stephen Klng: The Green Mile: Coffey’s Hands. 15. Stephen Klng: The Green Mile: The Mouse on the Mile. Rit almenns eðlis: 1. Mary Pipher: Revlvlng Ophelia. 2. Mary Karr: The Llar's Club. 3. Thomas Cahill: How the Irlsh Saved Civlllzation. 4. J. Douglas & M. Olshaker: Mindhunter. 5. Jonathan Harr: A Civil Action. 6. Gall Sheehy: New Passages. 7. Ellen DeGeneres: My Polnt... And I Do Have One. 8. Erma Bombeck: All I Know about Anlmal Behavior I Learned In Loehmann’s Dressing Room. 9. Andrew Weil: Spontaneous Healing. 10. James Carville: We're Rlght, They’re Wrong. 11. Colin L. Powell: My American Journey. 12. M. Scott Peck: The Road Less Traveled. 13. Thomas Moore: Care of the Soul. 14. Lorenzo Carcaterra: Sleepers. 15. Isabel Allende: Paula. (Byggt á New York Times Book Revlew)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.